Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1984, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1984, Blaðsíða 36
36 DV. FIMMTUDAGUR 23. ÁGUST1984. Jackie þykir bera atdurinn vel. Þessi mynd er tekin fyrir utan ibúð hennar i New York. Jacqueline Kennedy Onassis varð 56 ára í siöasta mánuöi og af því tilefni reyndi breska blaöið The Sun aö komast aö einhverju um þessa um- töluðu konu sem hefur tekist, þrátt fyrir frægöina, aö halda einkahögum sínum út af fyrir sig. Jackie er gífurleg eyöslukló. Hún keypti fatnaö fyrir 300.000 dollara á ári en þegar þrengdist í búi hjá henni eftir lát Onassis þá hefur hún tekiö þaö til bragös aö fá lánaðan fatnað frá þekktum fatahönnuöum og auglýsa þar meö vöruna. Ef hún fær lánaða kjóla frá evrópskum tískuhúsum þá sendir hún þá gjarna til baka meö Con- corde þotunni, en þaö er þrátt fyrir allt ódýrara en aö kaupa rándýran kjól sem hún notar bara í eitt skipti. Jackie drekkur aldrei sterka drykki en kýs evrópsk eöalhvítvín. Hún keðju- reykir en aldrei opinberlega. Hún vill ekki aö tekin sé mynd af henni meö sígarettu. Henni finnst pylsur, hamborgarar og ostakaka ofsalega gott og fær hún stundum bílstjórann sinn til að kaupa pylsur handa þeim báðum sem þau borða í bílnum. Viömót Jackie gagnvart Kennedy- fjölskyldunni er fremur kuldalegt en hún ber ennþá giftingarhring Kenne- dys. Hún skrifaði sitt hinsta bréf til hans sem hún lagði í kistuna fyrir jaröarförina. Jackie er frekar stórfætt og hún gengur alltaf á lághæluöum skóm. Hár hennar er tekiö aö grána og litar hún þaö rauöleitt. Hún fer á hárgreiöslu- Istofu þrisvar í viku. Hún fer sjaldan í Ihandsnyrtingu og getur ekki gumað af fallegumnöglum. Jackie missir yfirleitt aldrei stjórn á skapi sínu en þó hefur þaö greypst í minni fólks aö hún varð taumlaus af bræöi er hún kom að Kennedy þar sem hann var reykjandi maríjúana í Hvíta húsinu. Að lokum segir breska blaðið The Sun aö Jackie svitni aldrei hvernig svo sem blaöiö hefur komist á snoðir um þaö. En blaðið fullyröir að Jackie svitni ekki einu sinni þegar hún sé úti að hlaupa í heitu veöri. Þegar hún hleypur í Central Park í New York hleypur hún alltaf á móti vindi. Þar höfum við það. FARRAH FAWCETT BREYTIR UM HÁRGREIÐSLU Boy George, sem hvað helst hefur getið sór frægðar fyrir söng sinn með hljómsveitinni Culture Club, hefur nú tekið upp á þviað hanna fatnað sem við hann verður kenndur. Fatnaðurinn er gerður bæði fyrir karla og konur. Farrah með Ijónsmakkann. Farrah Fawcett er búin að breyta um hárgreiðslu og ber það helst tH tíðinda af þeirri manneskju fyrir utan það auðvitað að hún er að leika i nýrri kvikmynd með Beau Bridges. Hárgreiðsla Farrah vekur yfirleitt athygli enda orðin nokkurs konar vörumerki manneskjunnar. Fyrir nokkrum árum varð Farrah fræg fyrir griðarmikið hárflóð sem einna helst líktist Ijónsmakka og varð það mörgum konunum til eftirbreytnil Núna er umfang makk- ans hennar Farrah heldur minna, hárið orðið rennislótt og nokkuð stritt. Nýjasta hárgreiðsla Farrah Fawcett. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.