Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1984, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR 25. AGUST1984.
47
VIÐTAL: ÁRIMI SNÆVARR
MYNDIR: KRISTJÁN ARI EINARSSON
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
hefur tekid vid embœtti ödru sinni. Fjögur
ár eru liðin frá því að frú Vigdís fagnaði
sigri með stuðningsmönnum sínum á fögr-
um júnímorgni fyrir utan heimili sitt á
Aragötunni. Fjögur ár eru frá því að
íslenskir kjósendur brutu blað í sögunni
— ekki aðeins sögu eigin lands heldur og
sögu alls heimsins, því Vigdís er fyrsta
kona sem kosin hefur verið til forseta
lands síns í almennum kosningum. Nú er
Vigdís Finnbogadóttir hefur hafið annað
fjögurra ára kjörtímabil sitt fór Dag-
blaðið-Vísir fram á viðtal við forsetann —
og var leyfi til þess góðsfúslega veitt.
AÐ TAKA AFSTOÐU
TIL MÝRRA TÍMA
— viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands.
Fjögur ár eru liðin frá því að þú tókst við em-
bætti forseta Islands. Þegar þú litur til baka,
ertu ánægð með þessi fjögur ár?
„Ég á ákaflega erfitt með að meta slíkt sjálf.
Það verður fyrst og síðast að spyrja þjóðina
hvort hún sé ánægð þegar upp er staöið. Mér
skilst að hún hafi sætt sig við þetta fyrsta kjör-
tímabil úr því að hún fól mér að sitja annað.
Engum er svo farið að vera ánægður með allt
sem hann gerir en að sjálfsögðu hafa verið
stundir í þessu starfi er mér hefur fundist ég ná
til fólks. Ekki síst þegar ég hef verið fulltrúi
þjóðarinnar erlendis. Þá hef ég oft fundið að
menn hafa viljað hlustað á það sem við höfum
að segja héma heima á Islandi.”
— Hvað erþér efst í huga þegar þú lítur yfir
farinn veg?
Sú mikla velvild og vinátta sem ég hef mætt
hvarvetna sem ég hef komið. Eg hef fundið það
svo vel að Islendingar vilja varðveita þettal
1 embætti í sínu þjóðlífi.”
Tímarnir breytast hratt
— Er einhver atburður öðrum fremur minnis-
stæður?
„Eg á erfitt með að taka einn atburð fram
yfir annan af öllu því sem ég hef reynt og lifað
undanfarin fjögur ár.”
— Reyndust störf forseta að einhverju leyti
ólík því sem þú hafðir gert þér í hugarlund?
„Enginn sem ekki hefur gegnt þessu embætti
getur gert sér fulla grein fyrir hvemig það er.
Eg skal fúslega játa að sú mynd sem ég gerði
mér af forsetaembættinu, áður en ég var kjörin,
reyndist á margan hátt vera öðruvísi þegar til
kastanna kom. Enda þótt forsetaembættið sé aö
flestu leyti í ákaflega föstum skorðum þá breyt-
ast tímarnir svo hratt að stöðugt þarf að taka af-
stöðu til alls hins nýja sem okkur berst innan-