Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Blaðsíða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER1984.
Dregið úr ríkisf ramkvæmdum:
ATVINNUVEGIRNIR QGA
FORGANG AÐ ÞESSU FÉ
— sagði Steingrímur Hermannsson um aðgerðirnar í ef nahags- og atvinnumálum
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra gerði grein fyrir nýj-
um verkefnalista ríkisstjómarinnar
á almennum stjórnmálafundi að
Hótel Sögu í gærkvöldi. Um 200
manns sóttu fundinn sem var haldinn
á vegum fulltrúaráðs framsóknarfé-
laganna í Reykjavík. Forsætis-
ráðherra svaraði spumingum fund-
armanna að ræöu sinni lokinni.
Erlendar skuldir nema 62%
af þjóðarframleiðslu
1 upphafi ræðu sinnar fór
Steingrímur nokkrum orðum um
ástand og horfur í islenskum efna-
hagsmálum. Hann sagði að þjóöar-
framleiösla hefði dregist saman um
10% á þessu ári og kaupmáttur rým-
aö um 12%. Viöskiptahalli við útlönd
stefndi í 4% í lok þessa árs og að
erlendar skuldir landsmanna næmi
um 62% af þjóðarframleiðslu. Hag-
vöxtur hefði ekki átt sér stað á
Islandi á undanförnum þremur árum
og að Þjóðhagsstofnun sæi ekki fram
á neina breytingu þar á.
Forsendur aðgerðanna
„Við verðum að auka hagvöxtinn,”
sagði Steingrímur. „Það er eitt
höfuömarkmið þessara aðgerða.”
Hann sagði að til þess að það næði
fram að ganga yrði að koma til öflug
nýsköpun í atvinnulífinu.
Steingrímur sagði aö stefnt væri að
því að verðbólga yrði ekki meiri en
10% í lok þessa árs og erlendar
skuldir ekki meira en 61% af þjóöar-
framleiðslu. Gengið mætti ekki
breytast um meira en 5%. Þetta gæfi
svigrúm til erlendrar lántöku að
upphæö um 7.200 milljónir króna til
að standa undir nýjum fram-
kvæmdum og afborgunum af eldri
lánum. Af þessari upphæð væri
áætlað aö um 2.700 milljónir færu til
atvinnuveganna. „Atvinnuvegirnir
eiga forgang að þessu fé en ekki
ríkiö,” sagði Steingrímur.
Hann sagöi að stefnt væri að halla-
lausum rekstri ríkissjóðs á árinu
1985. Það væri því óhjákvæmilegt að
fresta ýmsum framkvæmdum á
vegum rikisins, svo sem við byggingu.
skóla og sjúkrahúsa.
Steingrímur sagði að ofangreind
markmið gerðu ekki ráð fyrir
umtalsverðum launahækkunum á
næstunni. Hann bætti því viö að
ákveðið hefði veriö að framlengja
bann við vísitölubindingu launa.
Forsætisráðherra sneri sér því
næst að fyrirhuguðum aðgeröum
ríkisstjórnarinnar í efnahags- og at-
vinnumálum.
Tekjuskattur afnuminn í
áföngum
t máli hans kom fram aö ákveðiö
hefur verið að afnema tekjuskatt af
almennum launum í áföngum, strax
Steingrimur Hermannsson for-
sætisráöherra kynnir samkomu-
lag stjórnarflokkanna um nýjan
verkefnalista ríkisstjómarinnar á
almennum stjórnmálafundi að
Hótel Sögu í gærkvöldi. |
D V-mynd: Kristján Ari.
á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að
tekinn verði upp virðisaukaskattur,
einnig í áföngum.
Ætlunin er að fækka ríkisbönkum
og auka gjaldeyrisfrelsi, þannig að
fyrirtækjum verði leyft að taka lán
erlendis á eigin ábyrgð.
Þá eru uppi ýmsar hugmyndir um
breytingar á stjórnkerfinu til að
auka hagræðingu og bæta þjónustu
við almenning. Er til dæmis gert ráð
fyrir aö ríkisendurskoðun veröi færð
undir stjórn Alþingis.
Lagt er til að f járfestingarsjóðum
atvinnuveganna veröi fækkað í þrjá:
sjávarútvegssjóð, búnaðarsjóö og
iðnaðarsjóð. Sjóðum þessum er ætlað
að sinna hlutverki sínu með lánveit-
ingum í gegnum hið almenna banka-
kerfi.
Stefnt er að því að stofna sérstaka
byggðastofnun er stuöli að jafnvægi í
byggð landsins. Steingrímur sagði að
starfsemi hennar yrði mun
markvissari en Byggðasjóðs, sem
verður lagður niður, og mun stofnun-
inni ætlað að einbeita sér að
málefnum svæða sem eiga við mikla
erfiðleika að stríða.
Einnig er gert ráö fyrir að stofnaö
verði sérstakt þróunarfyrirtæki ríkis
og annarra sem vUja leggja fram
fjármagn tU að greiða fyrir ný-
sköpun í atvinnulífinu. Ríkissjóöur
mun veita 500 miUjónum króna tU
þessa verkefnis á árinu 1985. For-
sætisráðherra taldi þetta einn mikU-
vægasta þátt þessara aögerða. Hann
sagði að forráðamenn fyrirtækisins
ættu ekki aö bíða sofandi eftir um-
sóknum um styrki og lán, heldur
eiga sjálfir frumkvæði að nýsköpun í
atvinnulífinu.
Olíuverð á að endurskoöa með það
fyrir augum aö lækka það. Uppsafn-
aður söluskattur sjávarútvegsins
verður endurgreiddur, en hann
nemur um 400 mUljónum króna á
þessu ári.
I landbúnaöarmálum er ráðgert að
mjóUíurframleiðsla verði sem næst
innanlandsneyslu eftir tvö ár og kjöt-
framleiðsla eftir fjögur til fimm ár.
Ætlunin er aö leggja niöur út-
flutningsbætur á landbúnaðaraf-
urðir. Komiö verður í veg fyrir
byggðaröskun á landinu með upp-
byggingu nýrra atvinnugreina til
sveita. Sexmannanefnd verður lögð
niður en í staö hennar kemur
verðlagsráð hagsmunaaðUa er
ákvarðar búvöruverð með samning-
um.
Utflutningsstarfsemi landsmanna
verður endurskoðuð. Uppi eru
hugmyndir um að Utflutningsmið-
stöð iðnaðarins starfi sem ráðgjafar-
stofnun fyrir alla atvinnuvegina í því
sambandi.
Steingrímur sagði að lokum að
þetta væri ekki tæmandi útlistun
á þeim aögerðum sem gripið verður
til á næstunni, en að verkefnalistinn
svoneftidi yrði kynntur í heild sinni í
dag.
Nokkrar spurningar
Að lokinni ræöu forsætisráöherra
báru fundarmenn fram spumingar
og gerðu athugasemdir. Fundinum
lauk um klukkan ellef u og hafði hann
þá staðið í um tvo og hálfan tíma.
Fundarstjóri var Bjöm Líndal.
-EA.
Laust fyrir miðnætti i fyrrinótt kom upp eldur i húsi á Heliissandi. Hús-
iö, sem er gamait steinhús, var mannlaust en fyrri íbúar voru nýfiuttir
þaöen. Talsverðar skemmdir uröu en greiðlega gekk aö ráöa niöuriög-
um eldsins.
Hafsteinn-DV-mynd Ægir
BORGARAFUNDUR
UM ÁFENGISMÁL
Freeportklúbburinn boðar til al-
menns borgarafundar að Hótel Loft-
íeiðum, Kristalsal, laugardaginn 8.
septembernk. kl. 14.45.
Fundarefni er umf jöliun um áfanga-
skýrslu áfengismálanefndar ríkis-
stjómarinnar sem nýlega kom fram á
sjónarsviöið og fengið hefur töluverða
umfjöllun á lesendasíðum dag-
blaðanna.
Boðið hefur verið til fundarins öllum
nefndarmönnum, fulltrúum Sambands
veitinga- og gistihúsa, fulltrúum SÁÁ,
auk alþingismannanna Jóns Baldvins'
Hannibalssonar, Jóns Magnússonar og
fulltrúum annarra stjórnmálaflokka.
RUTUSTRIBIÐ
HELDUR ÁFRAM
— Fjölbrautaskólanemendur í Þorlákshöfn
saf na undirskriftum
Nemendur úr Þorlákshöfn, Hvera-
gerði, frá Hvolsvelli og Hellu hafa
flestir forðast að fara meö Sérleyfis-
bílum Selfoss í Fjölbrautaskólann á
Selfossi frá því skólinn hófst í byrjun
vikunnar. Þess í stað hafa þeir farið
með rútubilum heimamanna,
Kristjáni Jónssyni, sérleyfishafa í
Hveragerði, og Austurleið.
I Þorlákshöfn eru nemendur
byrjaðir að safna undirskriftum til að
mótmæla því að skólanefnd Fjöl-
brautaskólans skyldi úthluta þessum
akstri til Sérleyfisbíla Selfoss. Þeir
vilja að Kristján Jónsson annist
aksturinn eins og verið hefur undan-
farin ár.
Formaður skólanefndar, Hjörtur
Þórarinsson, segir að Sérleyfisbílarnir
hafi verið með lægsta tilboð í
aksturinn. Þess vegna hafi verið samið
viðþá.
Kristján Jónsson telur hins vegar að
sitt tilboðhafiekkiveriðóhagstæðara.
„Þetta er réttlætismál. Með í dæmið
verður einnig aö taka mannlega
þáttinn og byggðasjónarmið,” sagði
Kristján.
„Þetta er indælt stríð. Næstum því
hver einasti nemandi í Þorlákshöfn og
Hveragerði fer með okkur. Við höldum
áfram að keyra meðan krakkamir
koma til okkar. Það er ótrúlegt að við
förum að keyra einir í bíl, eins og þeir
hjá Sérleyfisbílum Selfoss,” sagði
Kristján.
„Við erum ekkert að þvarga,” sagði
Þórir Jónsson, framkvæmdastjóri Sér-
leyfisbílanna.
„Við keyrum á okkar tímum. Við
erum búnir að taka þessa vinnu að okk-
ur. Okkar samningur gildir til vors.
Það er öllum frjálst að koma sér í skól-
ann eftir öörum leiöum,” sagði Þórir.
Fyrir aksturinn greiða nemendur
gjald sem samsvarar strætisvagnafar-
gjaldi í Reykjavík. Kostnað að öðru
leyti greiða ríkissjóður og sjóðir sveit-
arfélaga í héraðinu.
Félag verkafólks í f iskiðnaði:
20 þúsund á mán-
uði í nauðþurftir
„Félag verkafólks í fiskiðnaöi”
hefur verið stofnað og á félagið að
sjá til þess að þær kröfur sem settar
eru fram við næstu samninga séu •
teknar inn í myndina.
Hlutverk félagsins er að efla
samheldni verkafólks í fiskvinnslu,
að gæta hagsmuna verkafólks í fisk-
vinnslu gagnvart atvinnurekendum í
samvinnu við stéttarfélögin og að
stuðla að verðmætaaukningu sjávar-
afurða með aukinni vöruvöndun
félagsmanna við vinnu sína.
Félagið lýsir yfir stuðningi við
raunhsefar kröfur Verkamanna-
sambands Islands: átta stunda
vinnudag, fulla atvinnu allt árið,
laun sem duga til að framfleyta sér, í
dag 20.000 krónur á mánuði, og að
bónusinn heyri fortíðinni til.
Við erum ekki tilbúin að lifa í þess-
ari andlegu, félagslegu og efnahags-i
legu kúgun lengur, sem ríkisstjóm-
irnar hafa búið okkur, um ókomna
framtíð,” segir í fréttabréfi frá hinu
nýstofnaða félagi.
JI