Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Blaðsíða 31
DV. FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER1984. 43 LANGAR AÐ EIGNAST STÓRA FJÖLSKYLDU hans, Ijós- myndafyrirsætan Christina Brink- lay. Billy Joel ætlar að gifta sig í haust og sú heppna er aö sjálfsögðu vinkona hans síöasta árið, Christine Brinkley. Billy mun vera svo ánægður og mont- inn með tilvonandi eiginkonu sína að hann segir það hver jum sem heyra vill að brúökaupið standi fyrir dyrum. Christine hefur sjálfsagt ekkert á móti þessum ráðahag heldur því hún hefur fylgt unnusta sínum á ferðalagi hans um heiminn. Tónleikaferðalag Billy Joel endaði á Wembley í London þar sem hann hélt þrenna tónleika. Christine var á þeim öllum. Siöustu tónleikum hans var sjónvarpað beint um Evrópu. Islenska sjónvarpið hefur sýnt fyrri hluta þessara tónleika. Áhorfendur á Wembley voru ekki í neinum vafa um hver væri „Uptown girl” er Billy söng þaö lag. Hann sendi fingurkoss yfir í stúkuna þar sem Christine sat. Kvikmyndatökumaður- inn frá BBC gleymdi aðalpersónunni og elti fingurkossinn með myndavél- inni. Þar lenti hann á Christine sem klappaði í takt við tónlistina. Á blaðamannafundi fyrir konsertinn var Billy Joel m.a. spurður um Christine. — Eg skrifaði ekki Uptown girl um hana — það var önnur stúlka, sagði Billy. — Það voru svo margar stúlkur í lífi mínu fyrst eftir að ég skildi. Eftir að ég hafði kynnst Christine þá fannst mér lagið vel geta átt við hana. Ekki sagðist Billy vera búinn aö ákveða hvenær næsta plata kæmi út en það yrði örugglega innan árs. Nú óskar Billy helst eftir að eignast fjölskyldu. — Eg er orðinn 35 ára gamall og ekki seinna vænna. Eg get vel ímyndað mér að ég sé gamall afi með langt, hvítt skegg sitjandi í bakgarðinum meö fullt af bamabömum. Tónlistin hefur alltaf verið stærsti hlutinn af lífi minu en ég vil ekki fara á mis við aö eignast fjölskyldu fyrir hana, sagði Billy Joel. Engar skemmtanir, takk Linda Grey, Dallasstjama sem er orðin 43 ára, er nú nýtrúlofuö. Sá heitt- elskaði heitir Paul Constanzo, 32 ára músíkant. Þau kynntust á hátíð mikilli í New York í september í fyrra og í desember flutti hann inn til hennar. Paul skildi við alla vini sína og klúbb- ana í New York, þar sem hann spilaði á trompet, til að eiga fjölskyldulíf með Lindu og bömum hennar, Jeff sem er 19 ára og Kelly sem er 17 ára. Paul drekkur ekki áfengi og það kemur sér vel fyrir Lindu sem er áfengissjúklingur. I stað þess að skemmta sér stunda þau íþróttir af fullum krafti. Linda Grey skildi við mann sinn, Ed Trasher, í febrúar í fyrra eftir 21 árs hjónaband. Hún hóf villt skemmtanalíf eftir skilnaðinn og allt þangaö til hún kynntist Paul. Hann þolir það líka alveg ágætlega aö hún sé stjarna en það gat fyrri maður hennar ekki gert. Linda er ellefu árum eldri en unnusti hennar, Paul, sem var trompetieikari i klúbbum i hlow York. Sviðsljósið — Björa Borg segir ekki Kemur Jannike Björling til með að fæða bam það sem Marianna þráði aö eignast — með sínum Björn Borg? Þannig velta blöð út um allan heim sér upp úr þeim fréttum að Jannike sé bamshafandi. Þau sögöu þaö bæði í Los Angeles við blaðamenn þar. Hún sagði það er heim kom en þá neitar hann. — Við eigum ekki von á bami og við höfum ekki ákveðið neitt með framtíðina, segir Bjöm Borg nú. Jannike mun halda áfram aö búa hjá fjölskyldu sinni og sjálfur ætla ég að búa í íbúð minni í Monaco, þrátt fyrir að ég muni vera með annan fótinn héríSvíþjóð. Maríanna mun hafa fengið mikið áfall er Borg tilkynnti henni að hann vildi skilnaö. Ekki batnaði það þegar hún las í blöðum að Jannike ætti von á bami. Sjálf hefur Marianna þráð aðeignastbam. Stóra spurningin er nú hvort sagan af væntanlega baminu er sönn eða ekki. Það hlýtur að koma í ljós fyrr eða síðar. Hvort hamingjan á rniHi Borg og hinnar sautján ára gömlu Jannike var bara stutt ævintýri er ekki gott að segja um. Við í Sviðsljós- inu fylgjumst með öllum fréttum er þetta mál varðar og birtum jafnóð- um og þær berast. Það fór vel á með þeim skötuhjúunum en hvort ellt er búið núna er ekki gott að segja. Hún mun að minnsta kosti búa hjá fjölskyldu sinni áfram. ERHÚN ÓFRÍSK EBA EKKI?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.