Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER1984.
5
Pósturogsími:
Stöðvarstjórar
fá kauphækkun
Stöðvarstjórar hjá Pósti og síma
hafa fengið k jarabót. 1 gærmorgun var
undirritað samkomulag milli fjár-
málaráðuneytis og Félags isienskra
símamanna sem felur í sér að um
helmingur stöðvarstjóra hækkar um
einn tii tvo launafiokka.
Hækkunin kemur einkum til þeirra
stöðvarstjóra sem hafa verið í lægstu
launaflokkum. Viröast fulltrúar ríkis-
valdsins hafa fallist á það sjónarmið
að störf þeirra hafi að einhverju leyti
veriö vanmetin.
Laun stöðvarst jóra eru mismunandi
eftir umfangi starfseminnar. Við
röðum þeirra í launaflokka hefur verið
notað stigakerfi. Gefin eru stig út frá
veltu útibús, ibúafjölda og póstmagni.
Samstarfsnefnd símamanna og
fulltrúa ríkisvaldsins hefur að undan-
förhu verið að endurskoða stigakerfið.
Þessi endurskoðun hefur nú meöal
annars leitt til þess að lægstlaunuðu
stöðvarstjóramir hækka úr 13. launa-
flokki upp í 15. launaflokk, úr 16.398
krónum á mánuði upp í 17.566 krónur
eða um 1.168 krónur á mánuöi.
„Þetta er ekki til að hrópa húrra
fyrir,” sagði Ragnhildur Guðmunds-
dóttir, formaður Félags simamanna.
„Það er verið að leiðrétta fimm ára
gamla skekkju. Tölur um umfang
stöðvanna eru frá 1979. Þær hafa
breyst mikið síðan,” sagði Ragnhildur.
68 stöðvarstjórar af 90 eru í Félagi
símamanna. Hinir eru í Póstmanna-
félagi Islands. Búist er við að það félag
undirriti sams konar samkomulag á
næstu dögum.
-KMU.
Starfsmonn Gísla J. Johnson og fulltrúar IBM fagna því aö 100 töh/ur hafa
núþogar varið afhontar.
Hundraðasta IBM
einkatölvan seld
BVKO keypti 100. IBM einkatölvuna
af Gísla J. Johnsen fyrr í vikunni. Gísli
J. Johnsen sf. hefur haft IBM umboðiö
á Islandi í tæpt hálft ár og hafa tölvum-
ar hlotið mjög góðar viðtökur.
Fjölmargar pantanir liggja fyrir frá
skólum, stofnunum og fyrirtækjum um
kaup á IBM tölvubúnaði. Fyrirtækið
afhenti nýlega Háskóla Islands tölvur,
en fyrirhugað er að Háskólinn kaupi
tæpar 50 IBM tölvur á árinu. Einnig
hefur verið gerður samningur við
Innkaupastofnun ríkisins um söiu á
tölvum og viðhaldi og þjónustu við
þær.
Nýtt dótturfyrirtæki Gísla J.
Johnsen, Tölvubúnaður sf., markaðs-
setur hugbúnað fyrir tölvur og veitir
viðskiptavinum Gísla J. Johnsen
ráðgjöf við uppsetningu og notkun
tölvu- og hugbúnaðar.
-JI.
Menntamálaráðuneytið:
Fenemal ekki
í „handkaupi”
Vegna fréttar Fuglaverndunar-
félags Islands i DV frá 22. ágúst sl.
undir fyrirsögninni: ,,Arnarstofnmn í
hættu vegna eiturútburðar æðarrækt-
armanna: Dreifa eitri sem gæti drepið
alla Islendinga,” vill menntamála-
ráðuney tið að eftirf arandi komi fram.
I fréttum Fuglaverndunarfélagsins
stendur m.a.: „Mesta hætta sem nú
steðjar að erninum er eiturútburður
æðarræktarmanna. Undanfariö hafa
217 aöilar keypt í handkaupi hjá Lyf ja-
verslun rikisins 300 kg af fenemali sem
nægja myndi til þess að drepa alla
Islendinga. Þetta er gert með leyfi
menntamálaráðherra og samþykkt af
formanni eiturefnanefndar.”
Menntamálaráöuneytið vill að fram
komi að Lyfjaverslun rikisins hefur
aldrei selt neinum fenemal „i hand-
kaupi”. Samkvæmt reglugerð skal
Lyfjaverslun ríkisins afhenda eig-
endum og umráðamönnum æöarvarpa
fenemalskammta gegn skírteinum
sem gefin eru út af viðkomandi lög-
regluyfirvaldi að fengnum méðmælum
eiturefnanefndar.
Utlát Lyfjaverslunar ríkisins á
fenemali til einstakra „æðarræktar-
manna” var „undanfarið,” eða frá
árinu 1974, 38,350 kg í 165 afgreiðslum
og hafa þessar afgreiðslur farið til
samtals 86 einstaklinga.
A tímabilinu 1976—1983 afhenti
Lyfjaverslun ríkisins 179,5 kg af
fenemali til veiðistjóra Búnaðarfélags
Islands sem ekki er taliö með af-
hendingum til einstakra „æðarræktar-
manna.”
Ráðuneytinu þykir miður að Lyfja-
verslun ríkisins verði fyrir aðkasti
fyrir að fara í hvívetna eftir reglu-
gerðum sem menntamálaráðuneytið
hefur sett. -Ji.
Afhending
skírteina fer fram
sem hér segir:
í Tónabæ kl. 3-5 og Æfingastöðinni, Engihjalla 8, kl.
6-8 laugardaginn 8. og sunnudaginn 9. sept.
í Mosfellssveit, félagsmiðstöðinni Bóli, föstudaginn
14. sept. kl. 11-13 en þar verður kennt á laugardögum.
SÍMI4R71Q
VERIÐ VELKOMIN. KOLBRÚN AÐALSTEINSDÚTTIR
islandsmeistarinn, Stefðn Baxter,
kennir break.
Athugið:
Síóustu innritunardagar eru laugardag
og sunnudag.
Annors flokfts
lambokjöt
er fyrsta ftokks
motur'
Lambakjöti er skipt í flokka
eftir þyngd, útliti o.fl.
Kjöt í öðrum flokki er jafn
bragðgott og yfirleitt fitu-
minna en kjöt úr dýrari
flokkum.
Og svo er það
ódýrara!
Framleiðendur