Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Síða 8
8 DV. FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER1984. Útlönd Útlönd Kaldir sprengjuleitarmenn Þeir eru ekkl lengl að því, ísraelsku lögreglumennlrnlr, sem lítið er. Klukk- an 9.05 einn daginn bringdi kona og vildi tilkynna grunsamlegan bfl. Lögregl- an þaut á staðbm og tók alla sem bsgt var að ná í í 100 metra fjariægð frá bflnum. Sprengjuleltarmenn byrjuðu að leita í bflnum og fundu brátt slagorð máluð á véiarhlífina og í skotti bflsins fundu þeir svo 12 kflóa sprengju. Það tók 40 minútur að finna sprengjuna og ekki mátti miklu muna. Hún var stillt á að springa klukkan 10. Quid pro quo Vestur-Þjóðverjar lýstu yflr fyrir skömmu að þelr hefðu veitt bræðrum sinum í austri kaupheimild fyrir 950 milljónir marka. A sama tíma (fyrir tilviljun?) tilkynntu Austur-Þjóðverjar að þeir hefðu minnkað svolitið ferða- takmarkanir milli landanna. Nú þurfa ellllifeyrisþegar sem beimsækja Austur-Þýskaland ekki að breyta nema 15 mörkum á dag í austur-þýskan, verðlítinn gjaldeyri. Áður þurftu þeir að skipta 25 mörkum á dag, sem þeir þurftu svo oft ekki að nota. Nú geta austur-þýskir ellilífeyrisþegar heimsótt bæði ættingja og vini í Vestur-Þýskalandi. Áður fengu þeir einungis farar- heimild ef þeir gátu sannað að þeir ættu ættingja þar. Og nú á að verða auðveidara að senda hljómpiötur á miili. Guðog stjómmál Walter Mondale neitar því að hann hafi ætlað að ráðast á Reagan vegna yfirlýsinga hans um trúmál. ABC sjónvarpsstööin segir að í skrifaðri ræðu sem Mondale ætlaði að flytja á samkomu gyðinga í New York hafi Mondale ásakað forsetann um aö sýna trúarbrögðum óvirðnigu með því að draga guð inn i stjórnmálin. ABC sagðlst hafa fengið afrit af ræðunni sem Mondale ætlaði að flytja en Mondale hefur þegar sagt aö hann muni ræða um trúmál og stjórnmál. „Eg myndi ganga svo langt að kalla þetta fölsun,” sagði fréttafulitrúi Mondales. Blaðamenn í klípu Lifið er ekki dans á rósum fyrir tyrkneska biaðamenn. Yfirvöld eru mjög hörundssár og vlðkvæm fyrir allri gagnrýni. thaidssama dagblaðiðnu Tercu- man var nú í vikunni iokað í þriðja sinn á þremur árum. Engin ástæða var gefin fyrir lokuninni, en blaðamenn telja að yfirvöld hafi viljað refsa blaðinu fyrir að minnast um of á stjóramálaástandið fyrir byltingu hersins 1980. öllum heistu tyrkneskum blöðunum hefur verið lokað að minnsta kosti einu sinni frá því byltingin var gerð. 1 júlí ætiaði Tercuman að birta ævlminningar Suleyman Demirels, fyrrverandi forsætisráðherra, en þóknaðist óformlegum tilmælum stjóraarinnar að gera það ekki. En dálkahöfundurlnn Nazli Qicak tók saman í forsíðugrein sum viðhorf Demirels. Blcak fór í fangelsl í þrjá mánuði fyrir tvelm árum vegna grelnar sem hún skrifaðl og var gagnrýnin á herinn. Ekkikasta sandi Það borgar slg ekki að móðga Dan- merkurlögregluna. Maður nokkur, sem gaf lögreglumanni í Álaborg dónalegt merki með löngutöng, þurftl að borga sem svarar 1500 krónum íslenskum í sekt. Ef einhver gerir ráð fyrlr að komast í framtíð- inni upp á kant við Álaborgarlög- regluna má geta þess að öruggara er að kalla hana ekki „nashyrnings- svín”. Það kostar 750 krónur. En kallið hana frekar þaö en að henda sandi í höfuöið á hennl. Fyrir það þarf að punga út 3000 krónum ís- lenskum. Skútukonurí ófömm Átta konur voru dregnar upp úr Atlantshafi á mlðvikudag eftir að hrekjast í 12 tíma í björgunarbáti. Konurnar voru að taka þátt í sigllngakeppni yfir hafið, frá Frakklandi til Kanada. Þær urðu að yfirgefa skútuna sina þegar kvlknaði í henni. Belgiskt skip fann konuraar 600 mflum suðvestur af Eng- landi eftir að þær höfðu sett á ioft rautt neyðarblys. Shultz og Gmmyko ætla loks að hittast George Shultz, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, mun hitta Andrei Gromyko, starfsbróður sinn frá Sovét- ríkjunum, að máli 26. september eins og lengi hefur verið búist við. Báðir verða þá staddir í New York vegna setningar allsherjarþings Sam- einuðu þjóðanna. — Þeir hittust síðast í Stokkhóimi í janúar og þar áður í Madrid í september. I fyrra haföi veriö ákveöinn fundur þeirra tveggja í tilefni setningar alls- herjarþingsins en af fundinum varð ekki í þaö sinn af því að flugvallaryfir- völd í New York vildu ekki leyfa sovésku farþegaþotunni aö lenda i mótmælaskyni við árás Sovétmanna á kóresku farþegavélina. Þegar þing Sameinuöu þjóðanna stóð yfir, 1982, áttu þeir Shultz og Gromyko tvívegis saman fund. Lítið hefur veriö látið uppi um hvað þeir starfsbræðumir hyggjast ræða sérstaklega en vopnatakmörkunar- málin veröa þar á meðal. — Nokkrar Shultz. vangaveltur eru uppi um aö Reagan forseti, sem ávarpa mun allsherjar- Gromyko. þingið 24. september, kunni einnig að hitta Gromyko. Fréttamaður á valdi mannræningja í Beirút Enn hefur Reuter blaðamaðurinn Jonathan Wright ekki fundist. Hann hvarf frá Beirút fyrir rúmri viku og múhameðstrúarhópur hefur sagst halda honum. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Javier Perez de Cuellar, skoraði í gær á hópinn aö láta blaðamanninn lausan. Það sama gerði arabískt dagblað í London sem mannræningjarnir hafa haft samband við. Blaöið birti yfirlýs- ingu frá þeim en sagði svo í leiðara: „Við biöjum ykkur í nafni trúarinnar og hins mikla spámanns að gegna skyldum ykkar og gera ekki blaða- manninn að peöi ykkar. ” Wright var rænt þegar hann var á leið frá Beirút til Austur-Líbanons. Ráðherra í gr jótinu Fyrrverandi ráöherra Líberíu- stjómar hefur verið ákærður í heima- landi sinu um aö hafa stolið sem svarar um 25 milljónum króna. Þegar hann var granaður um þjófnaðinn, fyrir þremur árum, flúði hann land. Þegar hann kom svo aftur, nú í vik- unni, var hann strax handtekinn og ákærður. Hann sagöist ekki geta greitt tryggingarféð, sem krafist var, svo hann yrði aö sitja í fangelsi á meðan mál hans væri fyrir réttinum. „Fangelsið er ekki ókunnugur staður fyrir mér. Eg þekki það fyrir,” sagði ráöherrann, Chea Cheapoo. Hann var áður dómsmálaráðherra. Skutlan í fínu standi Geunskutlan Diseovery er í fínu standi á Canaveralhöföa eftir heim- komuna í gær. Starfsmenn Geim- vísindastofnunar Bandaríkjanna segja að skutlan líti betur út en hinar tvær, sem hafa verið sendar upp, gerðu eftir sína fyrstu ferð. Næsta skutla sem fer á loft verður Challenger í nóvember. Ætlunin er að hún og Discovery fari mánaðarlega út í geim fram í maí 1985. Nú er verið að fara yfir fyrstu skutluna, Kolumbíu, sem hefur farið sex ferðir. Nær engin vandræði sköpuðust í ferð Discovery. Vökvaþrýstikerfið lak lítil- lega og grýlukerti myndaðist utan á henni, en annað ekki. Umsjón: Guðmundur Pétursson og Þórir Guðmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.