Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Qupperneq 9
DV. FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER1984. 9 Útlönd Útlönd Hérna voru bréfin Norðmenn eru enn að velta sér upp úr Quisling- málinu afkappi. Per Lör- berg sýnir hér blaða- mönnum bœkur og fleira sem var í eigu Quislings og var geymt í þessu kjallaraherbergi í Osló. Lörberg segir að þarna í kjallaranum hafi John Hveem fundið hin frœgu Quisling-skjöl sín. Ogarkov setturaf Marskálkurinn, sem fyrir ári komst í heimsfréttirnar fyrir út- skýringar sínar og réttlætingar á árásinni á kóresku farþega- þotuna, hefur verið leystur frá störfum sem formaður herráðs alls herafla Sovétríkjanna. 1 frétt Tass-fréttastofunnar um mannaskiptin er engin skýring gefin á því hví Nikolai Ogarkov marskálkur hefur veriö leystur undan skyldum og um leið frá emb- ætti aðstoðarvamarmálaráðherra. Hann er aðeins 67 ára að aldri. Sá, sem tekur við af Ogarkov, er Sergei Akhromeijeff (61 árs), en hann hefur verið varaherráös- formaður síðustu tíu árin. Tass segir að Ogarkov mar- skálkur hafi verið settur til ann- arra starfa en lætur ósagt hverra. Báöust afsökunar Nakasone, forsætisráðherra Japans, bar upp í kvöldverðarboði í Tokyo í gær mjög innilega fyrir- gefningarbeiðni viö Chun Doo Hwan, forseta S-Kóreu, fyrir þær ,,miklu þjáningar” sem Japan olli Kóreu þau 35 ár er Kórea var ný- lenda Japans. — Kvöldið áður hafði Japanskeisari ekki þótt taka djúpt í árinni þegar hann harmaði þá tíma við Kóreuforsetann. VINUR SAKHAROVS DÆMDUR FYRIR NEÐANJARDARÚTGÁFU Stærðfræðingurinn Júrí Sjíkanóvits var í gær dæmdur í fimm ára fangelsi og síðan fimm ára útlegð fyrir andsov- éskar aðgerðir sem eru yfirleitt aðal- sakirnar bomar á andófsmenn þar eystra. Þessi 51 árs gamli andófsmaður var handtekinn í nóvember í fyrra eftir að lögreglan hafði fundið eintök af neðan- jarðarriti mannréttindabaráttumanna „Tíðindaberinn” við húsleitir hjá nokkmm vina hans. Sjíkanóvits viöurkenndi fyrir réttin- um aö hann væri einn höfundur að þessu prentmáli þótt saksóknarinn gæfi í skyn að fleiri kynnu aö vera riðn- ir við útgáfuna. „Tíðindaberinn”, sem aöallega flyt- urfréttiraf andófsmönnum semsitjaí fangelsum, hefur komið út óreglulega í Moskvusíðanl968. Sjíkanóvits er einn náinna vina Andrei Sakharovs. Hefur Sjíkanóvits dvalið á árunum 1972 til 1977 í fangels- um og geðveikrahælum. Ráðherrar heimsækja Sharpeville: ÞURFTU AÐ FLÝJA í ÞYRLU Þrír ráðherra Suöur-Afríku urðu í gær aö flýja bæinn Sharpeville þar sem 31 maöur hefur farist í óeirðum undan- farið. Þeir komu til bæjarins á tveimur rútum með brynvarða herbíla beggja vegna. En stór hópur blökkumanna varöi veginn inn í bæinn og þrátt fyrir mikinn lögregluviðbúnað komust ráð- -<-------------------------m. Enn er ólga í mönnum í Sharpeville vegna hækkana á húsaleigu. herrarnir ekki í gegn. Þeir uröu því að snúa viö og fara til baka í þyrlum sem biðu eftir þeim. Suður-Afríkustjóm gaf í gær í skyn að leiguhækkanir hefðu ekki verið hin raunverulega ástæöa fyrir uppþotun- um. „Þaö er greinilegt að það voru vissir einstaklingar og samtök á bak við það sem gerðist,” sagði ráöherra laga og reglu. Námuverkamenn hafa nú lýst yfir verkfalli sem á að koma til fram- kvæmda þann 17. þessa mánaðar. Ef verkfallið tekst mun það lama gull- gröftlandsins. " Ú TSA L.Á—Ú TSA LA — Ú T S A LA ’ Seljum öll rúmteppi á útsölu meðan birgðir endast. önteppiékr. 1.000. IMQTIP þetta eiimstakatækifæri. Höfum ávallt mikið úrval af rúmum á besta verði og kjörum er þekkjast. Það er sama hvort þú vilt hafa það hvítmálað, úr Ijósum viði eða brúnbæsað. Þú færð það í Hreiðrinu. Þá höfum við úrval rúma úr furu og lútaðri furu í öllum breiddum. Simi 77440. EINNIG HÖFUM VIÐ FJÖLBREYTT ÚRVAL SVEFNBEKKJA OG UNGLINGAHÚSGAGNA. I til kl. 4. Sunnudag kl. 2-4.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.