Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Síða 30
42
DV. FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER1984
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Mamma og pabbi fóru með i skólann fyrsta daginn, rótt eins og aðrir for-
Viktoría litla Svíaprinsessa er byrj- sem er 61 árs, hana alltaf „prinsessu”
uð í skóla, rétt eins og aðrir krakkar á með virðulegri rödd.
hennar aldri. Bekkjarfélögum hennar í
Smedslattens skola í Bromma fannst Á hverjum degi fer vörður með’
það mjög spennandi að fá alvöru Viktoríu í skólann og hann bíður eftir
prinsessu í bekkinn. Eftir fjórtán daga að hún sé búin. Þá fer hann meö hana
í skólanum er það þó ekki lengur neitt heim aftur. Að sjálfsögöu má ekkert
sérlega spennandi. Viktoría hefur koma fyrir litlu prinsessuna. Viktoría
eignast 22 bekkjarfélaga og þeir kalla sjálf er himinlifandi með þetta allt og
hana aldrei annað en „þú” eða bara hefur frá mörgu að segja þegar hún
Viktoríu. Hins vegar kallar kennarinn, kemur heim á daginn.
Kennarinn hailsar upp á nemanda sinn, en hún kallar Viktoríu atdrei annað
en prinsessuna.
KRÓNPRINSESSAN
BYRJUÐ í SKÓLA
Hver er þetta???
Hver skyldi þetta vera? Jú, þetta
er leikkonan Nastassia Kinski með
son sinn, Aljosha, sem fæddist 29.
júní. Nastassia er 23ja ára. Hún var
aðeins f jórtán ára þegar móðir henn-
ar kynnti hana fyrir leikstjóranum
Roman Polanski. Astarsamband
varð á milli þeirra og Polanski gerði
Nastössiu að stjömu. Siðan þá hefur
Nastassia alltaf valið sér eldri menn.
Faðir Aljosha er Egyptinn Ibrahim
Moussa en þau tvö hafa lengi þekkst.
Menn bíða nú eftir að þau tilkynni
brúðkaup sitt sem að öllum líkindum
verður í haust.
Nastassia er öllum stundum með
soninn en hún tekur móðurhlutverkið
mjög alvarlega enda mun það hafa
verið ósk hennar að verða mamma
löngu áður en hún varð ófrísk. Sér-
staklega er hún sögð hafa verið hrif-
in af dökkum bömum. Það er því
kannski ekkert skrýtið þó hún hafi
valið dökkan mann sem föður að
barnisínu.
ERFITT HJÁ LIZ
Liztdog, fateg, og tíboðkt streyma tíi
henrtar.
Það var mikið áfall fyrir Liz Taylor
er fyrrverandi eiginmaður hennar lést
svo skyndilega. Liz, sem gengið hefur í
gegnum stranga afvötnun og megrun,
er aftur orðin falleg sem fyrr. Hún er
hætt að drekka og farin að hugsa um
útlitið. En þetta var áður en Richard
dó. Nú hafa vinir hennar miklar
áhyggjur af því hvort hún kemst yfir
sorg sína án áfengis og eituriyfja.
Viktor Luna, vinur Liz síðasta árið,
hjálpaöi henni mikiö til að ná sér á
strik. Nú hefur Liz hins vegar sagt skil-
ið við hann. Hún hefur sést í fylgd með
ungum leikara aö nafni Tony Geary.
Richard Burton og Liz Taylor notuðu
flöskuna sem huggun er eitthvað
bjátaði á hjá þeim. Þau gátu aldrei
rætt sarnan edrú. Þau gátu ekki verið
saman en samt ekki heldur verið án
hvort annars. Væntumþykja var mikil
á báða bóga og þau voru miklir vinir
allt þar til hann dó. Liz hefur nú eftir
breytingarnar á sjálfri sér fengið góð
tilboð um leik í kvikmyndum og allir
vona að hún þoli álagið og haldi áfram
að hugsa um sinn eigin líkama!
flrlr/ eru margir mánuðir síðan
þessi mynd var tekin af Uz en það
var áður en vinur hennar, Viktor
Luna, fókk hana tilað leggjast Inn á
heOsuhœf í KaSfomki.