Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1984, Blaðsíða 12
12
DV. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER1984.
MHi Frjalst.óháö dagblaö
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON.
Ritstjórn: SÍOUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍOUMÚLA 33. SÍMI
27022.
Afgreiðsla,áskriftir, smáauglýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022.
Simi ritstjórnar: 686611.
Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12.
Prentun: Árvakurhf.
jÁskriftarveröá mánuði 310 kr. Verð í lausasölu 30 kr. Helgarblað 35 kr.
Ömurleg áætlun
Við birtingu lánsfjáráætlunar ríkisins hefur sannazt,
sem hér hefur verið haldið fram, að gatið á fjármálum
þess verður ekki hálfur eða heill milljarður á næsta ári.
Gatið veröur hálfum þriöja milljarði stærra eöa samtals
annaðhvort þrír eða hálfur f jórði milljaröur.
Samkvæmt lánsfjáráætlun hyggst ríkið og stofnanir
þess taka að láni átta milljarða og endurgreiða fimm.
Mismunurinn nemur þremur milljörðum. Og samkvæmt
síöustu fréttum af gati sjálfs f járlagafrumvarpsins er það
vanmetið um hálfan milljarð, svo að heildargatið verður
þrír og hálfur.
Hinn hálfi níundi milljarður, sem tekinn verður aö láni
á næsta ári, skiptist þannig: I A-hluta fjárlaga 1.861
milljón, í B-hluta 1.288, hjá fyrirtækjum ríkisins 1.800,
hjá húsbyggingarsjóðum ríkisins 1.558, hjá gæludýrasjóð-
um ríkisins 1.372 og um 500 milljónir í vanmatinu.
Til aö sýna, hversu rosalegar þessar tölur eru, má
nefna til samanburöar, aö lántökur sveitarfélaga eru
áætlaðar 153 milljónir og alls atvinnulífsins í landinu 1.836
milljónir. Allar eru þessar tölur úr lánsfjáráætlun ríkis-
stjórnarinnar frá því í fyrradag.
I þessari áætlun næsta árs kemur fram einstök bjart-
sýni um, að hægt veröi að afla innanlands hálfs þriðja
milljarös króna í lánsfé. Tilraunir ríkisstjórnarinnar til
að draga úr raunvöxtum og gera þá öfuga gefa þó ekki
mikla von um almennan sparnað fólks á næsta ári.
Til dæmis gerir áætlunin ráö fyrir, að innheimta og inn-
lausn spariskírteina ríkisins standist á næsta ári, þótt
hlutfallið í ár hafi verið neikvætt fyrir ríkið um 500
milljónir. Bauð ríkiö þó innleysendum upp á töluvert háa
raunvexti á þessu ári eða 8%.
Ennfremur gerir áætlunin ráö fyrir, aö lífeyrissjóöir
þjóöarinnar láni 1.220 milljónir til húsnæöislánakerfis
ríkisins, þótt þeir hafi í ár aðeins lánað ríkinu 430 milljón-
ir til þessara nota. Draga verður í efa, að ríkinu takist að
ná innanlands öllu þessu fé.
Ofan á þann innlenda sparnað, sem ríkið dreymir um,
telur það þurfa 7.300 milljónir í löngum erlendum lánum
og 1.200 í stuttum erlendum lánum. Við þessar tölur bæt-
ist 500 milljóna vanmatiö á fjarlagagatinu og loks ótil-
greint ofmat á innlendri öflun lánsf jár.
Um þessar mundir nema erlendar skuldir þjóðarinnar
42.660 milljónum og þjóðarframleiðsla ársins er að verða
67.300 milljónir, hvort tveggja samkvæmt lánsfjáráætlun
ríkisstjórnarinnar. Þar meö eru erlendar skuldir þjóðar-
innar komnar upp í 63,4% þjóðarframleiðslunnar.
Hið'stórfenglega gat á fjármálum ríkisins, stofnana
þess, fyrirtækja og sjóða, svo og ráðagerðirnar um stór-
felld lán í útlöndum eru skref til hækkunar erlendra
skulda upp fyrir 63,4% þjóðarframleiðslu og til hækkunar
erlendrar skuldabyrði upp fyrir 23% útflutningsverðmæt-
is.
Sem eitt hrikalegt dæmi um, hvernig ráðgert er að sóa
þessum mikla fjáraustri, má nefna, að lánsfjáráætlunin
gerir ráð fyrir eins milljarðs króna fjárfestingu í land-
búnaði á næsta ári, aðallega í hinum hefðbundna landbún-
aði, sem framleiöir afurðir, er ekki finnast að neinir
kaupendur.
Þegar milljarður er fjárfestur til að fá aö borga árlega
meira en milljarð í útflutningsuppbætur og niðurgreiðsl-
ur, er ekki við því aö búast, að milljarður finnist í nýjar
atvinnugreinar. Þannig er lánsfjáráætlunin ömurlegt
rugl, alveg eins og fjárlagafrumvarpið.
Jónas Kristjánsson.
„Sjálfstæðisflokkurínn, sem verið hefur allsráðandi iborginnihálfa öld, fyrir utan eitt kjörtimabil, villnú
enn auka á alræði sitt og alræðismöguleika i framtiðinni."
Fáein orð um lýðræði
Davíðs og sjálfstæðis-
manna hans í borgar-
stjóm Reykjavíkur
Þeir sjálfstæðismenn tala mikið
um frelsi og lýðræði. Þeir láta gjam-
an sem þeir eigi einkarétt á þeim
hugtökum í íslenskum stjómmálum.
Fyrir borgarstjóm Reykjavíkur
liggja nú tillögur til breytinga á
, .samþykkt um stjóm Reyk javíkur”.
Tillögur sjálfstæðismanna þar eru
hinar fróðlegustu í ljósi áðumefndra
hugtaka, frelsis og lýðræðis.
Þegar hefur veriö tekin ákvörðun
um að fækka borgarfulltrúum úr 21 í
15, en látum það vera. Mun alvar-
legra er að þeir ætla sér aö fækka í
ráðum og nefndum borgarstjómar.
Það þýðir verulega skerta mögu-
leika minnihlutaflokkanna til setu í
þeim nefndum sem fækkaö hefur
verið í og þar meö minni möguleika
til að fylgjast með og hafa áhrif á
gang mála. Þetta er væntanlega rök-
stutt af þeim sjálfstæðismönnum
þannig að veriö sé að skera niður
bákniö og auka einstaklingsfrelsiö?
Minnihlutaflokkarnir vildu auka
völd nefndanna, en þaö var auðvitað
fellt. Einnig vildu minnihlutaflokk-
amir auka áhrif borgarbúa með sér-
staklega kjörnum hverfastjórnum,
þar sem íbúar einstakra hverfa gætu
haft áhrif á sitt nánasta umhverfi.
Nei, það mátti ekki. Hefur líklega
verið of mikið bákn. Tillögum minni-
hlutaflokkanna um aukna valdbeit-
ingu er af þeim sjálfstæðismönnum
svarað með tillögum, sem viö fyrstu
sýn virðast e.t.v. horfa nokkuö til
aukins lýðræðis. Verða þær sjálfsagt
notaðar til þess síðar, aö sanna það
hversu lýöræðislegir þeú- eru, Davíö
og hans sjálfstæðismenn. Við skulum
skoöa þessar tillögur nánar.
I fýrsta lagi er viöbót við 29. gr.
svohljóðandi: „Borgarstjóri boðar
til almennra funda með borgar-
búum, þar sem borgarmálefni eru
kynnt og rædd.”
í skjóli ákvæðis
I skjóli þessa ákvæðis mun Davíð
borgarstjóri væntanlega og einkum
þegar líða fer að kosningum, arka út
um borg og bí. Halda mun hann litla
fundi og stóra fundi, sviðsetta af
Davíð borgarstjóra með Davíð borg-
arstjóra í aöalhlutverki, en embætt-
ismennina, flokksbræður hans, í
SKÚLI
THORODDSEN
LÖGFRÆOINGUR, REYKJAVÍK
aukahlutverkum. Þar mun borgar-
búum verða fluttur sjónleikurinn
,JFrægðarsögur” um framfarir í
málefnum aldraöra, bama, fátækra,
sjúkra, unglinga, starfsmanna borg-
arinnar o.fl., allt á kostnað borgar-
búa rétt eins og Birgir Isleifur gerði
fyrir kosningarnar 1978, nema hvaö
nú hefur Davíð „lýðræðislega heim-'
^ld” í „samþykkt um stjórn Reykja-
víkur” fyrir sjónleik sinn. Varla þarf
að taka það fram, aö sú tillaga Sigur-
jóns Péturssonar úr Alþýðubanda-
lagi, aö fulltrúar minnihlutaflokk-
anna fengju einnig að fara á þessa
„kynningarfundi” með borgarstjóra
var aö sjálfsögðu felld af þeim sjálf-
stæðismönnum.
I öðru lagi má skoða nýja 19. gr. er
svohljóðar:
„Borgarstjóm getur ákveðiö að
bera einstök mál undir borgarbúa
eða leita álits þeirra með öðrum
hætti, þegar ástæða þykir til. Niður-
stöður slíkrar atkvæðagreiðslu eða
skoðanakönnunar eru ekki bindandi
fyrir borgarfulltrúa.”
Þetta ákvæði og reyndar einnig sú
tillaga sjálfstæðismanna, að auglýsa
eftir tillögum og ábendingum borg-
arbúa við gerð fjárhagsáætlunar er
svar sjálfstæðismanna við valddreif-
ingarhugmyndum minnihlutaflokk-,
anna og hugmyndum þeirra um
hverfastjórnir. Við nánari skoðun á
tillögum sjálfstæðismanna kemur
hins vegar í ljós að álit borgarbúa á
að hafa að engu nema Davíð og
tindátum hans henti. Með tillögunum
er verið að gefa í skyn að fólkið ráði
eða fái einhverju ráöið, án þess að
nokkur trygging sé fyrir raunveru-
legum áhrifum. Til hvers er þá þessi
tillögugerð nema til að blekkja?
Alræði Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn, sem verið
hefur allsráöandi í borginni í hálfa
öld, fyrir utan eitt kjörtímabil, vill
nú enn auka á alræði sitt og alræðis-
möguleika í framtíðinni. 1 skjóli al-
ræðis síns í borgarstjóminni nú notar
Davíð borgarstjóri og félagar tæki-
færi til þess aö herða enn tök sín á
borgarkerfinu. Áhrif minnihluta-
flokka eru skert frekar en er. Davíð
tryggir sér ókeypis kosningafundi
um alla borg með flokksbræðrum
sínum úr embættismannakerfinu
þeirra sjálfstæöismanna, óáreittur
af pólitískum andstæðingum. A
fundunum sínum segir síðan Davíö
viö fólkið i borginni að nú geti það
haft meiri áhrif en áöur. Þökk sé hin-
um lýðræðislegu ákvæöum „í sam-
þykkt um stjóm Reyk ja víkur. ”
Skúli Thoroddsen.
• „Halda mun hann litla fundi og stóra
fundi, sviðsetta af Davíð borgarstjóra
með Davíð borgarstjóra í aðalhlutverkinu, en
embættismennina, flokksbræður hans, í auka-
hlutverkum.”