Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1984, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1984, Blaðsíða 22
22 DV. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER1984. Myndbönd Myndbönd 1 Myndirnar eru úr Mistral’s daught- er, Falcon Crest og Með allt á hreinu. Executioners song er byggö á hinni þekktu skáldsögu Norman Mailers um Garry Gilmore, fangann sem bað um að verða tekinn af lífi. Tommy Lee Jones leikur Gilmore og þykir fara vel með hlutverkið. Mistral's daughter Jólamyndband Stig (Steinar dreifir) er „mini-serían” Mistral’s daughter meö þeim Stacy Keach og Stefanie Powers í aöalhlutverkum. Stacy, sem eyðir þessum jólum í fangelsi fyrir kókaínsmygl, leikur Mistral, frægan málara. Spannar sagan æviferil hans frá millistríðsárunum og fram á vora daga en ýmsar persónur fléttast inn í þann söguþráð. Af öðrum jólamyndböndum Stig má nefna góðkunningja okkar Tomma og Jenna, 4 hluta, Pink Panther-teikni- myndirnar, en þær eru að koma á myndbönd nú í fyrsta sinn, og svo má ekki gleyma jólaglaöningnum í Dynasty-þáttunum. Sjálf aðaltíkin Joan Collins mætir til leiks í fyrsta sinn núumjólin. Upp úr áramótum kemur svo mynd- band meö strumpunum frá Stig. Svipað og gerist með Rasmus mun þetta myndband verða með íslensku taU og er Laddi að vinna í því þessa dagana. -FRI. Jólamyndbönd Jólamyndbönd Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna í ár eru helst Falcon Crest-þættirnir, sem þegar hefur veriö fjallaö um hér, myndimar Educating Rita, An officer and Gentleman og Fíladrengurinn. Educating Rita hefur verið sýnd í kvikmyndahúsi hérlendis, var raunar jólamynd í fyrra. Hún fjaUar um sam- skipti drykkfellds prófessors viö nokkuð óvenjulegan nemenda sinn. Michael Caine leikur prófessorinn en Julie Waltes nemandann og varð hún heimsfræg fyrir leik sinn í þessari mynd. An officer and gentleman hefur einnig verið sýnd í kvikmyndahúsi hér- lendis en þar er fjallað um veru ungs sjóforingja í sjóherskóla og ýmsar freistingar er hann verður að takast á við. Ekki gengur allt sem skyldi enda varla von þegar Debra Winger er ein af freistingunum. Agætlega leikin mynd sem fjallar um gamalt og þvælt efni á oft á tíðum frumlegan hátt. Fíladrengurinn er barnamynd. Fjallar hún um samskipti. ungs munaðarlauss Indverja, Toomai og fUs hans, Kala-nag. Toomai er mahut eða fílahirðir og hann og risavaxinn vinur hans vinna á griöastað fyrir villt dýr á Indlandi. Þeir lenda í útistöðum við veiðiþjófa sem ætla sér að ná í nokkur hlébarðaskinn. íslenskt tal Meðal barnaefnis á jólamynd- böndum frá Háskólabíói er Rasmus klumpur meö íslensku tali en þetta er fyrsta myndband sinnar tegundar sem gefið er út hérlendis meö íslensku tali. Af öðrum jólamyndböndum Há- skólabíós ber helst að geta íslensku kvikmyndarinnar Með allt á hreinu, Stuðmanna-myndarinnar sem mikilla vinsælda naut hérlendis í hittifyrra. Önnur jólamyndbönd eru Who will love my children og Executioners song. Sú fyrri er ekta „vasaklúta- mynd” með Ann Margret í aðalhlut- verki. Hún leikur 11 barna móöur sem gift er drykkjusjúklingi. Hún á sjálf við ólæknandi krabbamein að stríða og fjallar myndin um hvernig henni gengur við að koma börnum sínum í fóstur. VINSÆLDALISTINN í ENDURSKOÐUN Enginn vinsældalisti er á síðunni í dag, eins og flestir taka væntanlega eftir. Astæða þess er sú að verið er að vinna að endurskóðun á listanum og því hvernig hann er tekinn saman. Meðal stærstu atriða í þessari endur- skoðun er að reyna að koma í veg fyrir ólöglegar spólur á honum en mikið hefur verið kvartað yfir þeim á listanum af hálfu þeirra aðila sem eiga myndbandsréttinn á við- komandi spólum. Þó þessar spólur eigi rétt á aö vera á listanum sökum vinsælda er það alls ekki ætlun DV að ýta undir ólöglega starfsemi að þessu leyti. Nýr og endurbættur vinsældalisti okkar lítur svo væntanlega dagsins ljós eftir áramótin. HAMMERSMITH IS OUT Aðalhlutverk Richard Burton, Elizabeth Taylor. Loiktjóri Peter Ustinov. Ein af fjölmörgum myndum sem frægasta leikarapar allra tíma geröu, að þessu sinni undir stjórn Peter Ustinov. Miðað við þetta einvalalið átti maður von á ívið betri mynd. Þótt Elizabeth Taylor hafi hlotið titilinn leikkona ársins 1972 í Berlín fyrir frammistööu sína á þá- verandi eiginmaöur hennar ekki góðan dag, einkum vegna ofleiks. Aðstoöarmaður á geðveikrahæli gerir samning við stórhættulegan glæpamann, Hammersmith (Burt- on), sem þar er í einangrun. Gegn því að hann sleppi bófanum út ætlar sá að gera aðstoðarmanninn ríkan. Það verður úr og brátt virðist allt ganga í haginn fyrir þá tvo og ástkonu aðstoðarmannsins (Taylor). Ástkonan þolir svo ekki ríkidæmið og leggst í drykkjuskap. Hann vill því fá Hammersmith til að koma henni fyrir kattarnef en sú ósk hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar. -FRI. CHINATOWN Aðalhlutverk: Jack Nicholson, Eaye Ounaway. Leikstjóri: Roman Polanski. Þessi mynd var útnefnd til 10 óskarsverðlauna á sínum tíma og hlaut m.a. óskarinn fyrir sviðsmynd. I henni hefur tekist alveg frábærlega að endurskapa það andrúmsloft sem ríkti í suðurhluta Kaliforníu á milli- stríðsárunum, andrúmsloft sem gaf af sér margar af bestu leynilögreglu- sögum sem skrifaðar hafa verið. Jack Nicholson leikur einka- spæjara í „Marlow-stílnum”. Hann —fær að því er virðist auðvelt verkefni í sambandi við framhjáhald en verk- efnið vex og verður æ skuggalegra eftir því sem á líður. Brátt er hinn lífsþreytti einkaspæjari flæktur í morðmál upp fyrir eyrnasnepla. Nicholson og Dunaway, sem hin dularfulla kvenpersóna með vafa- sama fortíð, eiga góðan dag f myndinni. Telja verður Chinatown með athyglisverðari myndum leik- stjórans Roman Polanski. -FRI. ÓGNVEKJANDf LÝSING Á HUGSAMLCGHí fRAMTlÐ œrmc*WM)m « ÍWNHfcWWf ifvtmwí a! POM2A FLÓTTINN í FRAMTÍÐINA Leikstjóri: Peter Fonda. Aðalhlutverk: Kevin Hearst og Keith Carradine. Peter Fonda er þekktur leikari. Hann hefur einnig staðiö bak við kvik- myndavélina einstöku sinnum, aö minnsta kosti einu sinni með frá- bærum árangri. Var það Easy Rider,, mynd frá blómatímabilinu. Fjallað var um tvo unga og reiða menn á mótorhjólum á leið sinni um þjóðvegi Bandaríkjanna. Flóttinn í framtíöina er mjög langt frá gæðum fyrrnefndrar myndar. Þetta er framtíöarmynd sem fjallar um vísindamenn sem hafa fundið upp tímavél og nota ungt fólk í tilraunaskyni og senda þaö inn í framtíöina. I framtíðinni hefur orðið gjöreyðing á mannkyninu og allt er í eyði og eyðileggingin er alls staðar. Flóttinn í framtíðina er langdregin og illa leikin. Söguþráðurinn heföi aö mínu mati getað verið meira spennandi en það eina sem gleöur augað er kvikmyndatakan öðru hverju. Peter Fonda hefur greinilega gott auga fyrir linsunni. HK. SIOASTA HETJA KVIKMYNDANNA, BOGIE, THELASTHERO Loikstjóri: Vincont Sherman. Aðalieikendur: Kevin O'Connor, Kathryn Harold og Ann Wedgeworth. Þrátt fyrir að Humphrey Bogart sé bú- inn aö liggja i gröfinni i tuttugu og fimm ár er hann ótrúlega vinsæll og helstu myndir hans eru enn sýndar í kvikmyndahúsum um allan heim. The Last Hero er byggö á ævisögu hans. Það er Kevin O’Connor er leikur Bogie og þótt í byrjun sé hann ekki sannfærandi þá vinnur hann á eftir því sem á myndina líður. Sérstaklega nær hann hinni sérstöku rödd hans. Humphrey Bogart byrjaöi kvikmynda- feril sinn seint eöa þrjátíu og niu ára. Hann fékk sitt tækifæri sem harðsvíraður glæpamaöur og næstu ár á eftir voru hlutverk hans öll í þeim stíl. I einkalífinu gekk mikiö á. Drykkja hans og slagsmál við eigin- konuna voru nær daglega á síðum slúðurblaða. Það var ekki fyrr en hann hitti viö kvikmyndatöku unga sýn- ingarstúlku sem var að byrja feril sinn, Laurecen Bacall, að líf hans fór í fastar skorður. The Last Hero er ágæt afþreying en segir okkur frekar litiö um mannínn sjálfan. HK. MEGAFORCE Leikstjóri: Hal Noedman. Aðalleikendur: Barry Bostwick og Michael Beck. Megaforce fjallar um hóp af fólki sem felur sig einhvers staðar í fjöllum Norður-Ameríku. Þetta er enginn venjulegur hópur fólks, heldur flokkur sérþjálfaðra manna og kvenna sem tekur að sér alls konar hættuleg verk- efni ef nóg af peningum er í boði. Foringi þeirra er gamall skæruliði og mótorhjólakappi. Þegar myndin hefst er þeim fengið það verkefni í hendur að ná völdum í einhverju ímynduðu smáríki. Farið er með flugvél þangað og höfð eru meðferðis einhver ógrynni af vopnum, hjólum og öðrum farar- tækjum. Þeim tekst ætlunarverk sitt en þá hefur atvinnurekendum þeirra snúist hugur og endirinn er mikill flótti á mótorhjólum út úr landinu. Megaforce er frekar slöpp kvik- mynd. Ekki vantar hasaratriði en söguþráöurinn er of ósennilegur til að hægt sé að hafa gaman af.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.