Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1984, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1984, Blaðsíða 48
48 DV. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER1984. Peningamarkaður Innlán með sérkjörum í gærkvöldi í gærkvöldi Þuríður Sigurðardóttir söngkona: Hlusta svo til eingöngu á rás 2 I sjónvarpi fylgist ég meö þegar ég hef tækifæri til. Þaö sem ég reyni helst alltaf aö sjá eru fréttir og fram- haldsmyndaflokkamir. Eg er ánægð meö aö barnaefni hefur verið aukið í sjónvarpinu en hins vegar finnst mér miöur hvaö lítið er af íslenskum tón- listar- og skemmtiþáttum. Fyrir utan þaö þá get ég ekki sagt annað en aö ég sé ánægö meö sjónvarpsdag- skrána. Hún er fjölbreytt og flestir finna eflaust eitthvað þar viö sitt hæfi. I útvarpi hlusta ég svo til eingöngu á rás 2. Þó heyrði ég jóla- lögin sem voru leikin um kl. hálftvö á rás 1 um daginn. Mér finnst þeir hafa byrjaö seint aö spila jólalögin þar og finnst of h'tiö spilað af islenskum jólalögum. Þáttur Svavars Gests á rás 2 Meö sínu lagi finnst mér góður og tón- listarval Svavars er gott. Mér finnst vera of mikiö af því á rásinni aö spiluð séu sömu lögin dag eftir dag. en miöaö viö það sem ég hef heyrt erlendis þá er þetta líka svoleiöis þar. Þetta er líka sennilega þaö sem fólkið vill hlusta á og það er jú verið að reyna aö gera fólki til hæfis. Alþýðubankinn Stjörnurcikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innistæöur þeirra yngri eru bundnar þar til þeir veröa fullra 16 ára. 65—74 ára geta losaö innistæöur meö6 mánaöa fyrir- vara, 75 ára og eldri meö 3ja mánaöa fyrir- vara. Reikningamir eru verötryggöir og bera 8% vexti. Þriggja stjörnu reikninga er hægt að stofna meö minnst 500 þúsund króna innleggi. Upp- hafsinnleg og hvert viöbótarinnlegg er bundiö í tvö ár. Reikningamir eru verötryggöir og meö9% vöxtum. Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf- eyrissjóöum eöa almannatryggingum. Inni- stæöur eru óbundnar og nafnvextir eru 24%, ársávöxtun 24%. Þessi bók er óverötryggö. Sérbókin fær strax 23% nafnvexti. 2% bæt- ast viö eftir hverja þrjá mánuöi sé innistæöa óhreyfö. Arsávöxtun getur þannig oröiö 28,6%. Bókin er óbundin en óverötryggö. Búnaðarbankinn Sparibók meö sérvöxtum er óbundin meö 28% nafnvöxtum og 28% ársávöxtun, sé inni- stæöa óhreyfö. Vextir eru færöir um áramót og þá bomir saman viö vexti af 6 mánaöa verötryg^öum reikningum. Reynist þeir gefa meiri ávöxtun er mismun bætt á Sparibókina. Af hverri úttekt dragast 1,8% í svoneínda vaxtaleiöréttingu. Sparibókin skilar því ekki aröi nema innistæða standi í minnst tvo mán- uöióhreyfö. Iðnaðarbankinn A tvo reikmni>a í bankanum fæst IB-bónus. Oveiötryggöan 6 mánaöa sparireikning með 23,0% nafnvöxtum og verötryggöan reikning meö 6 mánaða uppsögn og 3,5% nafrtvöxtum. Bónusinn er3,0% í báöum tilvikum. Fullur bónustimi er hálft almanaksárið. Hann tekur þó gildi strax og reikningur er stofnaður og gildir til loka viðkomandi miss- eris, sé ekki tekíð út. Síðan verður reikningur- innaðstanda án úttektaral)t næsta misseri til þess aö bónusréttur haldist. Arsávöxtun á óverðtryggða reikningnum með fullum bónus er 27,7%. Hægt er að breyta í verðtryggingu meðsérstakri umsókn. Landsbankinn Kjörbók er óbundin meö 28% nafnvöxtum og 28% ársávöxtun sé innistæöa óhreyfö. Vextir eru færöir um áramót og þá bornir saman viö ávöxtun 6 mánaöa verötryggðra reikninga. Reynist hún vera hærri er mismun bættá Kjörbókina. Af hverri úttekt dragast 1,8% í svonefnda vaxtaleiöréttingu. Sparibókin skilar því ekki aröi nema innistæða standi í minnst tvo mán- uöi óhreyfö. Samvinnubankinn Innlegg á Hávaxtareikningi ber stighækk- andi vexti. 17% fyrstu 2 mánuöina, 3. mánuð- inn 18,5%, 4. mánuöinn 20,0%, 5. mánuöinn 21,5%, 6. mánuðinn 23,0%, eftir 6 mánuöi 24,5%, og eftir 12 mánuöi 25,5%. Sé tekið út standa vextir þess tímabils þaö næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er 27,1%. Vextir eru færöir hvert misseri og bornir sainan viö ávöxtun 6 mánaöa verötryggðra reikninga. Sé hún betri færist munurinn á Há- vaxtareikninginn. Útvegsbankinn Vextir á reikningi meö Abót eru 17% nema þá heila almanaksmánuöi sem innistæöa er óhreyfö. Þá reiknast hæstu vextir í gildi í bankanum á óverötryggöum reikningum, nú 24,7%, sem gefur 26,2% ársávöxtun sé inni- stæöa óhreyfö allt áriö. Mánaðarlega er ávöxtun 3ja mánaöa verö- tryggös sparireiknings borin saman viö óverötryggöu ávöxtunina. Reynist hún betri færist munurinn meö vöxtum á ábótina í árs- lok. Verslunarbankinn Kaskó er óbundin sparisjóðsbók með 17% nafnvöxtum. 31. desember ár hvert er bætt við uppbót sem jafngildir hæstu ávöxtun inn- lána eins og hún hefur verið í bankanum það ár. Uppbótartimabil eru þrjú, janúar — april, mai — ágúst og september — desember. Uppbótarréttur skapast viö stofnun reikn- ings og stendur út viðkomandi tímabil sé ekki tekið út. Rétturinn gildir siðan hvert heilt timabil, enda sé ekki tekið út. Ef tekið er út gilda sparisjóðsbókarvextirnú allt viðkom- andi timabil. Sparisjóðir A Trompreikningi færast vextir sé inni- stæöa óhreyfö. 17% fyrstu 3 mánuðina, 4.-6. mánuö 20,0%, eftir 6 mánuöi 24,5% og eftir 12 mánuöi 25,5%. Hæsta ársávöxtun er 27,1%. Ef innistæða er óskert í 6 mánuöi er ávöxtun borin saman viö ávöxtun 6 mánaöa verö- tryggös reiknings. Sé hún betri færist munur- inn á Trompreikninginn. Ríkissjóður Spariskirteini ríkissjóðs eru að nafnverði 1.000,10.000 og 100.000 krónur. Þau eru bundin til 12.11.1987, verðtryggö meö8% vöxtum. Sölustaðir eru Seðlabankinn, viðskipta- bankar, sparisjóðir og veröbréfasalar. Rikisvbílar eru ekki boðnú- út í desember. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána- upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og á- unnin stig. Lán eru á bilinu 144.000—600.000 eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Iánin eru verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Lánstími er 15—35áreftirsjóðum og lánsrétti. Biðtimi eftir lánum er mjög misjafn, breýtilegur milli sjóða og hjá hverjum sjóði eftir aöstæðum. Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandi skiptir um lífeyrissjóð eða safna lánsrétti frá fyiTÍsjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaöir í einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar á ári veröa til vaxtavextir og ársávöxtunin veröur þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1.000 krónur liggja inni í 12 mánuöi á 24,0% nafnvöxtum og veröurinni6tæöaní lok þess tíma 1.240 krónur og 24,0% ársávöxtun í því tilviki. Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuöi á 24,0% vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex mánuöina. Þá er innistæöan komin í 1.120 krónur og á þá upphæö reiknast 12% vextir seinni sex mánuöina. Lokatalan verður þann- ig kr. 1.254.40 og ársávöxtunin 25,4%. Dráttarvextir Eftirfarandi reglur gilda nú um dráttar- vexti í reikningsviðskiptum: Þegar kunngeröir skilmálar eru fyrir hendi er hámark dráttarvaxta frá cindaga til grciðsludags 2,75% á mánuði eða fyrir brot úr inánuði. Vaxtavextir reiknast ekki nema van- skil standi lcngur en 12 mánuöi, þá 2,4% á mánuði. Sé dagvöxtum beitt miðast þeir við 33,0% áári. Af verðtryggðum og gengistryggðum skuld- bindingum eru dráttarvextir 5% á ári til við- bótar samningsvöxtum þegar verðtryggingu eða gengistryggingu er haldið á skuldinni sjálfri. Þegar sérstakú- skiúnálar eru ekki fyrir hendi er heimilt að reikna dráttarvexti jafn- háa og vexíi á 12 mánaða sparireikningum. Vísitölur Lánskjaravísitala mælir í flestum tilfellum verðbætur á verðtryggð lán. Hún var lOOstig í júni 1979.1 desember 1984 er lánskjaravisital- an 959 stig, 2,24% hærri eni nóvember. Byggingarvísitala fyrir síðasta ársfjóröung 1984 er 168 stig miðað við 100 stig í janúar 1983. Selma Kaldalóns lést 12. desember sl. Hún fæddist í Ármúla viö tsafjarðar- djúp 27. desember 1919. Foreldrar hennar voru hjónin Sigvaldi S. Kalda- lóns og Karen Margrethe Christine Mengel-Thomsen. Eftirlifandi eigin- maöur Selmu er Jón Gunnlaugsson læknir. Þau hjónin eignuðust níu börn. Utför Selmu verður gerð frá Dómkirkj- unni í dag kl. 15. Dóróthe Vilhjálmsdóttir lést 14. desember sl. Hún var fædd í Hafnar- firði 27. febrúar 1924. Hún var dóttir hjónanna Bergsteinunnar Bergsteins- dóttur og Vilhjálms Guðmundssonar. Dóróthe var tvígift. Fyrri maður hennar Georg Thorberg, lést árið 1947. Þau eignuöust einn son. Seinni maður hennar var Henning Christensen en hann lést árið 1980. Þau eignuðust þrjár dætur. Utför Dóróthe verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Hannes Hannesson, Kringlu Gríms- nesi, sem lést á Borgarspítalanum föstudaginn 14. desember, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju laugar- daginn 22. desember kl. 13.30. Erlingur Olafsson frá Kiðafelli í Kjós, Laugavegi 45, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. desem- berkl. 15. Guðrún Ölafsdóttir, áöur Gullteigi 4, lést á Elliheimilinu Grund 18. desem- ber. Utförin fer fram frá Laugarnes- kirkju föstudaginn 28. desember kl. 13.30. Guðbjörg Kristinsdóttir er látin. Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, Brekkuhvammi 6 Hafnarfirði, lést á Sólvangimiðvikudaginn 19. desember. Jón Stefánsson Vopni, Gránufélags- götu 43, andaðist á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 18. desember. Helgi Sigurður Eggertsson verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn21.desemberkl. 13.30. Sigurður Ásgeir Guðmundsson mál- arameistari, Isafirði, sem andaöist 15. desember, verður jarðsunginn frá ísa- fjarðarkirkju föstudaginn 21. desem- berkl. 14. Kristin Jósefsdóttir verður jarðsungin frá Fossvogskapellu laugardaginn 22. desemberkl. 10.30. Þorsteinn Pjetursson, Akurgerði 39, fyrrum starfsmaöur Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavik, verð- ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn21.desemberkl. 13.30. Tilkynningar Jólaannríki hjá Flugleiðum Um 15 þúsund farþegar á sex dögum Flugleiðir verða að venju með f jölda auka- ferða fyrir jólin í úinanlands- og millilanda- flugi. Gert er ráð fyrir að félagið flytji um 40 þúsund farþega í desember í áætlunarflugi. Þar af eiga um 15 þúsund manns bókað far 18.—24. desember. Annríkið nær hámarki dagana 20,—23. desember. Sem dæmi má nefna að föstudag- inn 21. desember er áætlaö aö fara 21 ferð frá Reykjavík í innanlandsflugi. 1 millilandaflugi þann dag verður flogið til Luxemborgar, London, Kaupmannahafnar, Gautaborgar, Stokkhólms, Oslóar og New York. Auk þess fara vélar flugleiöa frá Luxemborg tU Chicago, Washmgton og Orlando. Á aðfangadag verður flogiö innanlands á vegum Flugleiða tU Akureyrar, Sauðárkróks, Húsavíkur, Isaf jarðar, Patreksfjaröar, Þing- eyrar, EgUsstaða, Norðfjarðar og Vestmannaeyja. Flugi lýkur um klukkan 16.00 þanndag. I mUlilandaflugi verður flogið tU Luxem- borgar að morgni aðfangadags og síðdegis tU New York. Ekki er flogið innanlands á jóla- dag, en frá New York er flogið að kvöldi jóla- dags til Keflavíkur. Innanlandsflug hefst að nýju á annan í jólum. Tvær flugáhafnir verða í New York um jól, ein í Chicago og ern í Luxemborg, samtals 36 flugliðar. Þá veröa átta flugliðar Flugleiða í Nígeríuyfú-jóUn. AthygU er vakin á því að vöruafgreiðsla innanlandsflugs á ReykjavíkurflugvelU er opin til klukkan 12.00 á aðfangadag. Dýraverndunarfélag Hafnar- fjarðar hvetur alla Hafnfiröinga til aö muna að gefa smáfuglunum og fuglunum á Læknum. Frá menntamálaráðuneytinu Forseti Islands hefur að tiUögu menntamála- ráöherra skipaö Þorstein Halldórsson, Dipl. Phys., prófessor í tilraunaeðlisfræöi viö eðhs- fræöiskor verkfræöi- og raunvísindadeildar Háskóla Islands frá 1. júlí 1985 aö telja. FRIÐUR JÓL 1984 Við kveikjum á friðarljósinu kl. 9 á aðfangadagskvöld. Leirbollar með merki jafnréttisbaráttunnar eru nú til sölu á tveimur stöðum. Á skrifstofu Verkakvennafélagsins Framsóknar að Hverfisgötu 6—8 og Thorvaldsensbasarnum Austurstræti 4 eru leú-boUarnir seldú'. Þeir kosta 175 krónur. Það er Framkvæmdanefnd um launamál kvenna sem hefur látið gera boUa þessa sem eiga að múina á jafnréttis- baráttu kvenna í áratugi. Blak fyrir trimmara Blakdeild HK heldur mót fyrú þá blakiðk- endur sem ekki leika í deildakeppni Blaksam- bands Islands. Mótið fer fram í Digranesi í Kópavogi fimmtudagúin 27. desember kl. 17—23.30. Þátttökutilkynningar skulu berast sem fyrst til Alberts H,N. Valdúnarssonar, öldugötu 13, Hafnarfirði sími 52832. Jólateiti í Safari I kvöld, 20. desember, kl. 21 heldur hljóm- sveitin RIKSHAW jólateiti í Safari, veitúiga- húsi við Skúlagötu, Módelsamtökin verða með tískusýnúigu frá versluninni X-inu, boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur, en auk þess munu félagar út handknattleikslandslið- inu mæta á staðinn og syngja jólalög. Jólatrésskemmtun Ljós- mæðrafélags íslands verður föstudaginn 28. desember kl. 15.30 í Hreyfilshúsinu. Burkni en ekki Dögg Á neytendasíðu í gær var sagt frá heimsókn í blómabúðina Burkna í Hafnarfiröi. Þar var einnig mynd af skreyttum könglum en þeir sagðir vera í Dögg. Þetta var misritun og beð- ist er velvirðingar á þessu. 60 ára afmæii á í dag, 20. desember, frú Jóhanna Hall Kristjánsdóttir, Kirkjuvegi lOa Hafoarfirði. Hún ætlar að taka á móti gestum eftir kl. 20 í kvöld í Sjálfstæðis- húsinu við Strandgötu þar í bænum. Eiginmaður hennar er Sveinbjörn Enoksson. VEXTIR BANKfl OG SPflRISJÚÐfl 1%) INNLÁN MEÐ SERKJÖRUM SJA SÉRLISTA f I x 3 i! £ É 11 n 5 £ 11 « * ll Í I! 1 £ II ii INNLÁN ÖVERÐTRYGGO SPARISJ0OSBÆKUR Öbundm uinstaeðd 1700 1700 1700 1700 17 00 17.00 1700 1700 1700 17 00 SPARIREIKNINGAR 3»a mánaða uppsogn 2000 2100 20 00 20 00 2000 20.00 20 00 2000 20.00 íooo 6 mánaða uppsogn 2450 26 00 24 50 2450 23.00 24.50 23.00 25 50 24.50 12 mánaða uppsogn 25.50 27.00 25.50 24.50 25.50 24 70 18 mánaða uppsógn 27 50 29.40 27 50 SPARNAÐUR LANSRETTUR Sparað 3 5 mánuðt 20.00 2100 20 00 20 00 2000 20.00 2000 2000 INNLANSSKIRTEINI Sparað 6 mán og me«a 2300 24 30 2300 20.00 2300 2300 2300 ILKKAHf IKNINGAH M 6 mánaða 2450 26.00 24.50 24.50 2450 24.50 24.50 24 50 24.50» Avisanaretkntngar 1500 12.00 1200 12.00 12.00 12.00 12.00 12.00 Hlaupareikningar 900 12.00 1200 1200 900 12.00 12 00 12.00 INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mánaða uppsogn 400 300 300 200 400 200 3.00 2.00 400 6 mánaða uppsogn 6.50 6.50 6.50 350 6.50 500 600 500 6.50* INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALOEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadolarar 950 950 950 950 950 800 950 9.50 950 950 Sierkngspund 950 9.50 9.50 950 950 850 9.50 950 950 9.50 Vestur þýsk mork 400 400 400 4.00 400 400 4.00 400 400 400 Oartskar krónur 950 9.50 950 9.50 950 8 50 950 9.50 9.50 9.50 ÚTIÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIR VÍXLAR Horvextv) 24.00 2300 23.00 24.00 23.00 23.00 2400 24.00 2400 VK)SKIPTAVIXLAR Iforvextx) 2400 2400 24.00 24.00 ALMENN SKULOABRÉF 26.00 2600 25.00 26.00 25.00 2600 26.00 2600 26.00 VIOSKIPTASKULDABREF 28.00 28.00 28 00 28.00 2800 HLAUPAREIKNINGAR Yfvdráttur 2600 25.00 2400 26 00 2400 2500 2600 26 00 2500 ÚTLÁN VERDTRYGGÐ SKULOABRÉF Að 2 1/2 án 7.00 7.00 7.00 700 7.00 700 700 700 700 Lengri en 2 1/2 ár 800 8.00 800 8.00 800 8.00 800 800 800 UTLAN TIL FRAMLEIÐSLU VEGNA INNANLANOSSOLU 1800 18.00 18.00 1800 1800 1800 1800 18.00 1800 VEGNA UTFLUTNINGS SOR reiknimynt 975 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 DRÁTTARVEXTIR 2.75% A MANUHI 33.00 33.00 33.00 33.00 33 00 3300 33.00 33.00 33.00 1) Sparojóóur HafnarfjarAar. Spartsjóður Veslmannaeyp og Spansjóéur Boiungarvíkur bfóóa 25.50% nafnveiti meé fuestu érsávóitun 27.10%. 2) Spansjóóur Botunparvíkur býður 7% nafnvexti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.