Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1984, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1984, Page 56
FRETTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984. Muggsmyndin líklega rifin í fætlur: fíkniefnakaup Maðurinn sem uppvís hefur oröið að því að stela Muggsteikningunni af yfirlitssýningunni á Listasafni ASI mun trúlega hafa ætlað að fjár- magna fikniefnakaup með myndinni. Maöurinn, sem er Reykvíkingur á þrítugsaldri, stal myndinni siöastlið- inn föstudag. Skömmu siðar var hann tekinn til yfirheyrslu grunaður um þjófnaðinn. Honum var sleppt aftur eftir að hafa neitað allri aðild að málinu. I gær fékk Rannsóknar- lögreglan svo upplýsingar um að þessi sami maður hefði boöið öðrum manni myndina til kaups, en sá hafn- aöi henni. Var þá haft uppi á mannin- um aö nýju. Játaði hann þá að hafa stolið myndinni og eftir aö honum hafði ekki tekist að koma myndinni í verð hafi hann rifið hana í tætlur. Umræddur maöur mun hafa kom- iö eitthvað við sögu fíkniefnalögregl- unnar. -KÞ W n s Forystumenn flokkanna um svar Bandaríkjanna: Jón Baldvin Hannibalsson: Einfeldnings- legt svar ,,Því var fyrir löngu yfirlýst að NATO svaraði ekki grunsemdum eða ásökunum um tilvist kjarnorkuvopna á tilteknu svæði þar sem slíkt er hernaðarleyndarmál. Svar Banda- ríkjastjórnar skiptir því engu máli,” sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins. „Ef spurt er bjánalegrar spurningar fær sá hinn sami einfeldn- ingslegt svar,” bætti hann við. -KMU. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: Hæpið að treysta þeim „A rneðan Atiantshafsbandalagiö hvorki játar né neitar því hvort skjöl eru fölsuð eða sönn er auðvitað um engin svör frá því að ræða,” sagði Sig- ríður Dúna Kristmundsdóttir, Kvenna- lista. „Utanríkisráöherra hefur í raun engin svör fengið við spumingum sín- um, aöeins viljayfirlýsingu frá Banda- ríkjastjóm, og mér finnst harla hæpiö að treysta slikum yfirlýsingum frá mönnum sem ekki geta sagt já eða nei við því hvort eitthvaö sé satt eöa log- ið.” -KMU. Stefán Benediktsson, Bandal. jafnaðarmanna: Geireinsog skóladrengur „Eg er ekki sammála utanríkisráð- herra aö svar Bandaríkjastjórnar sé fullnægjandi. Geir Hallgrímsson bregst við eins og skólastrákur sem slegið hefur verið á finguma á og sagt við: „Svona gerir maöur ekki.” Það virðist nú allt útlit fyrir að Bandaríkja- menn ætli að hafa sína hentisemi með kjarnorkuvopn ef og þegar til styrjaldar kemur,” sagði Stefán Bene- diktsson. -EIR. Atvinnuleysingjar á Akureyri: Vildu ekki vinnuna Atvinnulausir Akureyringar viröast margir hafa lítinn áhuga á vinnu. Vinnumiölunarskrifstofa Akureyrar hafði í síðustu viku samband við 20—30 manns sem þar voru á atvinnuleysis- skrá og bauð upp á vinnu hjá fyrirtæki í bænum. Samkvæmt reglum má bjóða atvinnulausum hvaða vinnu sem er hafi þeir verið án atvinnu í fjórar vikur. Hafni þeir vinnunni detta þeir af skrá næstu fjórar vikumar. I þetta skipti skiluðu sex manns læknisvottorði vegna þess að þeir gætu ekki stundaö þá vinnu sem í boöi væri. Hún væri það ólík vinnunni sem þeir höfðu. Aðeins fimm mættu til vinnunnar en átján höfnuðu henni, að minnsta kosti á þessu stigi. -JBH/Akureyri. ,, Veðrid verður ekkert verra en þetta, ” sagði Bragi Jónsson, veður- frœdingur á Veðurstofu, l samtali við DV á níunda tlmanum í morgun. ,, Við reiknum með vestanátt og allhvössum hryöjum i dag og má búast við 7 vindstigum í verstu hryðjunum.” Þetta þykir þeim á Veður- stofunni ekkert óveður svo landsmenn geta andað léttar þrátt fyrir óveðursspá í veðurfregnum ígœrkvöldi. -KÞ/DV-mynd GVA. LOKI Þeir eru margir einfeldn- íngarnir Ólga meðal fimmta árs nema í læknisfræði: FA EKKERT SUMARFRI Nemendur á fimmta ári í læknis- fræði fá lítið sumarfrí á næsta ári þvi að vegna fjölda þeirra hefur verið ákveðið aö kenna þeim næsta sumar. , ,Ástæða þessa er einfaldlega sú aö fjöldi læknanema á fimmta ári er meiri en við ráðum við. Við höfum hvorki sjúklinga né aðstöðu til að kenna þessu fólki eins og ætlast er til af okkur nema að taka upp samfellt skólaár,” sagði Sigurður S. Magnússon, forseti læknadeildar, i samtaliviðDV. Læknanemar á fimmta ári eru 62 talsins og er það mesti fjöldi sem verið hefur á því ári hingað til. Sjötta árs nema eru mun færri og einnig þeir nemendur sem eru á fyrstu fjórum árunum. Þessi ráöstöfun á því einungis við um fimmta árs nema. En er þetta breytta fyrir- komulag ekki dýrt? „Jú, þetta er óhemju dýrt, en við munum reyna eins og við getum að halda kostnaðinum niðri. Eg veit ekki enn hvað þetta kemur til með að kosta, en það verður mikið. Þetta er hins vegar eina leiðin sem við sjáum færa án þess aö lengja námið hjá þessu fólki.” — Hvernig taka nemendur þessu? „Þeir eru óhressir, en það er bara ekkert við þessu að gera,” sagði Sigurður S. Magnússon. Ekki náöist í formann Félags læknanema vegna þessa máls. En samkvæmt heimildum DV hafa nemendur haldið mikla og stranga fundi vegna þessa máls. Meðal annars komu þeir fram með móttil- lögu vegna þessarar ákvörðunar kennaranna er fólst meðal annars í því að stytta jóla- og páskafri, hafa fyrirlestra á laugardögum og lengja þann tima sem þeir eru á hverjum degi á deildum spítalanna til þess að fá sumarfrí sitt og geta þannig aflaö tekna yfir sumartímann. Þessari til- lögu var hins vegar hafnað af kennurum deildarinnar. -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.