Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Qupperneq 4
4 DV. LAUGARDAGUR 30. MARS1985. Handritamálið: Tillaga frá Dönum eftir nokkrar vikur Eftir nokkrar vikur er búist við að menntamálaráöherra Dana leggi fram tillögu um hvernig skipta beri þeim handritum sem eftir eru í Kaupmannahöfn. Skiptanefndin, sem starfaö hefur af hálfu Islendinga, hefur lokið störf- um sínum. Hún skilaði áliti þess efnis aö Islendingar ættu tiikall til um200 handrita í Kaupmannahöfn. Búast má við því aö um nokkur þessara handrita geti verið um- deilanlegt til hvors aðilans þau eigi aðfara. Reglan hefur verið sú að Is- lendingar ættu aö fá þau handrit sem skrifuð væru af Islendingum, sem væru skrifuð hér á landi og um mál- efnihéðan. Menntamálaráöherra Dana, Bertel Haarde, hefur nú áhuga á að ljúka þessu máli. Faðir hans var stuðningsmaður Islendinga í hand- ritamálinu. Hann virðist hafa erft þennan áhuga. „Við höfum ekki sam- þykkt neitt í þessu máli og bíðum eftir því að fá þessar tillögur frá Dönum,” segir Ragnhildur Helga- dóttir menntamálaráðherra við DV. Endanleg ákvörðun verður tekin af forsætisráðherra Dana þegar fyrir liggur sameiginleg tillaga frá kennslumálaráðherrum beggja land- anna. APH. Skorturásalt- fiskiíaðal- neyslulöndum I.okið hefur verið við sölu saltfisks til Portúgal, Spánar og Italíu. Er um að ræða 15.000 tonn af saltfiski og er heildarverðmæti útflutningsafurðanna rúmar 30 milljónir Bandaríkjadala, eöa um 1.300 milljónir íslénskra króna. I öllum aðalneyslulöndum erskortur á saltfiski og tókst að halda óhreyttu söluverði í erlendum gjaldeyri, þaö er Bandaríkjadollara, þrátt fyrir mikla hækkun hans frá síðustu samningum, en það hefur haft í fór með sér mikl- ar hækkanir á neytendamarkaði. Seld voru rúmlega 10 þúsund tonn til Portú- gal, rúmlega 3000 tonn til Spánar og 1600tonntilltalíu. Framleiösla saltfisks frá 1. janúar til 15. mars varð 10.500 tonn, en var G.800 tonn á sama tíina í fyrra. Áætlað er aö framleiðsla saltfisks til loka apríl á þessu ári geti numið um 25 þúsund tonnum og eru samningamú- miðaðir við vertíöarframleiðsluna, en gert er ráð fyrir samningum um sumar- og haustframleiðsluna síðar. ÁE Ekkisýnt beint f rá Barcelona — en lýsing frá öllum leiknum í útvarpinu ídag Ekkert verður af því að sýnt veröi beint frá leik Barcelona og Víkings í Evrópukeppni bikarmeistara í hand- knattleik frá Spáni í sjónvarpinu eins og margir höfðu vonað. Þegar farið var að kanna inálin á Spáni kom í ljós að Spánverjar höfðu ekki meiri áhuga á leiknum en svo að sjónvarpið þar ætlaöi ekki aö taka hann upp. Iitil sjónvarpsstöð mun þó taka upp glefsur úr leiknum og senda hingað, en varla verður það sýnt hér fyrr en eftir helgina. Sjónvarpið mun í staðinn verða með beina útsendingu kl. 15.00 t dag frá Sundhöllinni í Reykjavík, en þar fer Islandsmótiö í sundi fram. Utvarpið mun aftur á inóti lýsa öll- um leiknum í Barcelona. Ragnar Öm Pétursson er þar og byrjar hann lýsinguna kl. 17.00 í dag. Verður þetta síðasta útvarpslýsing Ragnars á íþróttaleik því að hann lætur af störf- um þar um mánaðamótin. -klp- Skátum gef in tölva Hjálparsveit skáta í Reykjavík fékk á dögunum fuUkomna tölvu og prent- ara að gjöf frá fyrirtækinu Gísla J. Johnsen. Tölvan var af gerðinni IBM PC XT. Fyrirtækið Islensk forritaþró- un gaf hjálparsveitinni hugbúnað til notkunar með tölvunni en án hans hefði tölvan verið óhæf til notkunar. ÁE. Margt skiðafólk sækir Bláfjöllin reglulega. Ef einhver slasast þar verður að kalla á sjúkrabíl úr bænum sem er drjúgur spotti. Skíðamenn uggandi í neyðartilfellum: Enginn sjúkrabíll á Bláfjallasvæðinu A Bláfjallasvæðinu er enginn sjúkrabíU aUa vikuna samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá Þorsteirú Hjartarsyni, fóUrvangs- verði í Bláfjöllum. Hjálparsveitar- menn, sem undanfarin ár hafa annast gæslustörf á svæðinu, eru hættir og með þeim horfinn sjúkra- bíUinn sem þama hefur verið notaður um helgar, Hefur það vakið ugg hjá skíðamönnum að kaUa verður á sjúkrabU úr bænum ef slys beraðhöndum. Þorsteinn sagði að sjö daga vik- unnar væri þama sérstakur gæslu- maður við störf. Það væri mikil bót hjá því sem áður var því hjálpar- sveitirnar heföu bara verið þarna um helgar. „Öhöppum hefur Uka fækkað mUrið á undanfömum árum. Brekkumar eru troðnar og skíða- búnaður er fulUromnari svo minna er um slys. Einnig má benda á að al- gengustu slysin eru smávægUeg eins og snúinn ökkU eöa fótbrot,” sagði Þorsteinn. Því má bæta við aö sjúkrabílar úr Reykjavík sinna Uka skíöasvæðun- um í SkálafelU og HamragUi. Þrátt fyrir að sjúkrabUar séu fljótir í förum þá tekur ferðrn upp í BláfjöU 20 mínútur sem er langur tími í neyðartilvUcum. -EH. Hin nýja sundaðstaöa vistmanna á Kópavogshæli. Ljósmynd Pótur Sveinsson. Selja herðatré til styrktar Kópavogshæli Nýlega var lokið við að fuUklára full- komna sundaðstöðu fyrir vistmenn á KópavogshæU. Sundlaugin er nú tilbúin til notkunar en enn vantar öll nauösynleg kennslu- tæki tU sundkennslu, svo sem kúta, korka og sérstakar rennur fyrir hreyf i- hamlaða. Félagar í Lionsklúbbi Kópa- vogs hyggjast bæta úr þessari brýnu þörf á hjálpartækjum og efna í því skyni tU fjáröflunar í dag, laugardag, meö sölu á herðatr jám í Kópa vogi. Um er að ræöa sex herðatré saman á aöeins 200 krónur og munu skóla- nemendur í Kópavogi aðstoöa við söl- una. Vonast Lionsklúbbur Kópavogs tU að bæjarbúar bregðist vel við þessari hjálparbeiöni og að sem fyrst verði bætt úr hinni brýnu þörf á hjálpartækj- um við KópavogshæUö. hhei. Hvítirmávar: Ódýrara íþrjúbíó Islenska kvikmyndin Hvítir mávar verður sýnd í Háskólabíói og BíóhöU- mni um þessa helgi en frá mánudegi verður hún eingöngu sýnd í Bíóhöll- inni, auk þess sem hún veröur sýnd úti á landsbyggöinni. Á þrjúsýningum um helgina kostar miðinn 190 krónur í stað 250. Þær sýnmgar henta því betur f jöl- skyldummeðböm. Manneldisráð um auglýsingu Mjólkurdagsnefndar: Blekkjandi auglýsing Auglýsing Mjólkurdagsnefndar, sem birt var í sjónvarpi, en hefur verið stöðvuö í núverandi mynd er talin blekkja um samsetnmgu, eðli og áhrif mjólkur. Þetta eru niðurstöður Manneldisráðs Islands. Hollustuvernd ríkisins hafði óskað eftir áliti ráðsins á umræddri auglýsingu. I svari Manneldisráðs kemur m.a. fram að helstu rangfærsl- ur í auglýsingunni séu, að birt sé tafla yfir ráðlagða dagsskammta (RDS) af kalki, þar sem gefnar séu upp rangar og of háar tölur, bæði fyrir eldri konur og mjólkandi mæður. I auglýsingunni er ráðlagður dags- skammtur jafnframt talinn jafngilda lágmarksþörf en í rauninni sé RDS samkvæmt skilgreiningu verulega fyrir ofan lágmarksþörf helbrigðra einstaklinga. I samræmi við þessa ýktu þörf fyrir kalk, sé ráðlögð mjólkumeysla langt umfram það sem holltgetitalist. I auglýsingunni sé því haldið fram að í mjólk sé D vítamín í hæfilegu magni. Þar af leiðandi nýtist kalk móðurinn- ar betur en úr öðrum fæðutegundum. En í raun sé afar litiö D vítámín í mjólk. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.