Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR30. MARS1985.
11
Alþjóðlega skákmótið á Húsavík:
Mörg jafntef li
— en ekki öll friðsæl
Alþjóölega skákmótiö á Húsavík
var hiö þriöja í rööinni sem Jóhann
Þórir Jónsson ritstjóri stendur fyrir
utan Reykjavíkur. Hin fyrri, í
Grindavík og Neskaupstaö fyrir ári,
þóttu takast mjög vel og hiö sama
verður sagt um mótiö á Húsavík. Og
tvö mót eru í uppsiglingu, í Borgar-
nesi í lok apríl og í Vestmannaeyjum
í lok maí.
Mót sem þessi ganga auðvitað
aldrei upp nema með dyggum stuön-
ingi heimamanna. Húsvikingar
lögöust á eitt til þess að gera þriöja
mótið mögulegt og buöu skákmönn-
um upp á ágætar aðstæður. Hótel
Húsavík var viðverustaður
keppenda, sem fengu þar hinn
prýðilegasta viðurgjöming. Zucker-
man frá Bandarikjunum var sá eini
sem kvartaöi, en áöur en yfir lauk
haföi hann skipt þrisvar sinnum um
herbergi. Ástæðan var sú aö honum
fannst birta of snemma á morgnana í
sumum herbergjunum og gat ekki
sofiö. Zuckerman er jafnaldri Bobby
Fischers og hefur í ýmsum háttum
sínum reynt aö líkja eftir meistaran-
um. Var duglegur viö aö kvarta,
vakti lengi fram eftir á nóttunni og
kom of seint í skákir sínar, stundum
allt aö hálfri klukkustund. En eitt
haföi Fischer þó fram yfir hann, sem
áhorfendur hafa lengst af kunnaö aö
meta: Hann samdi ekki um jafntefli
á ótefldar skákir.
Jafnteflisdraugurinn var annars
allt of áberandi á mótinu. Af 66
skákum lauk 42 með jafntefli, sem er
63,63% hlutfáll. Áskell örn Kárason
haföi á oröi viö mótsslitin að líkleg-
asta skýringin væri sú aö skákmenn
hefðu haft það allt of gott á Húsavík
svo baráttuandinn heföi dofnað. Ann-
ars má kenna örfáum skákmönnum
um stuttu jafnteflin: Zuckerman
eins og áöur sagði, Helga, sem var
skiljanlega enn ekki búinn aö jafna
sig á stórmeistaratitlinum, og
Guðmundur festist einhvern veginn í
jafnteflisgír framan af, þótt hann
næöi að losa sig er leið á mótið.
Sá er þetta ritar átti því láni að
fagna aö veröa efstur og ná jafn-
framt fyrsta áfanga aö stórmeist-
aratitli. Auðvitað kom þaö á óvart
eftir hrakfarimar á afmælismóti
Skáksambandsins í febrúar, en sýnir
þó aö margt er hægt ef viljinn er
fyrir hendi. Mikilvægasta skákin var
viö Lein í þriðju síðustu umferð sem
reyndist úrslitaskák mótsins. Lein
var meö vinnings forskot og hafði
teflt vel. Hann bauð jafntefli
snemma tafls en eftir aö hann fékk
synjun gleymdi hann aö leika öðrum
mönnum en riddara sínum og staöan
versnaöi þar til öllu var lokiö.
I næstsíöustu umferð tefldi ég æsi-
spennandi skák viö Karl Þorsteins,
sem einnig var á titilveiöum. Hann
þurfti einn og hálfan vinning úr
tveimur síöustu skákunum en átti
ieftir að tefla viö Lombardy með
svörtu í síöustu umferð. Hann lagöi
því allt í sölurnar en beið lægri hlut
og þar meö varö draumur hans að
engu. Mér nægöi hins vegar jafntefli
í síðustu umferö viö Askel öm Kára-
son, sem mest kom á óvart á mótinu.
Áskell tefldi eins og herforingi og
tapaöi ekki nema tveimur skákum.
Sævar er varla ánægður meö
árangurinn og Pálmi hlaut þarna
sína eldskím í lokuöu alþjóölegu
móti. Var oft með ágætar stööur en
var ófarsæll. Erlendu keppendurnir
þóttu litlausir aö Lein undanskildum,
sem tefldi af meiri hörku en hinir og
sagöi brandara milli skáka.
Viö skulum líta á eina skák frá
mótinu. Þaö fer vel á því aö sýna
jafnteflisskák frá þessu móti en hún
bendir þó til þess að ekki hafi öll
jafnteflin veriö friðsæl. Einhver
flóknasta skák, sem ég hef teflt
lengi. Bandarikjamaðurinn Tisdall,
sem hefur hvítt, teflir hvasst afbrigði
og meirihluta skákarinnar er
ógjörningur aö átta sig á því hvor
hefur betri stöðu. Á ýmsu gengur en
á endanum leysist tafliö upp í jafn-
tefli, sem kannski em réttlátustu
úrslitin, þegar allt kemur til alls.
Hvítt: Jonathan Tisdall
Svart: Jón L. Árnason
Nimzo-Indversk vöm.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0—
0 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. Bd3 Rc6 8.
Re2 b6 9. e4 Re8 10. 0—0 Ba6 11. f4
f6! ?
Til greina kemur 11. —f5 eins og
Jóhann Hjartarson lék gegn
McCambridge á skákmótinu í Nes-
kaupstað eöa 11. — Ra5 12. f5 f6 sem
leiðir til mikilla sviptinga. Islenska
skáksveitin eyddi miklu púöri á það
framhald við undirbúning fyrir
ólympíumótiö og mig minnir aö loka-
niöurstaða athugananna hafi verið
sú að svartur jafni taflið. Þegar til
kom þótti mér riddaraleikurinn boöa
ógæfu og valdi annaö framhald.
12. f5 cxd4
Svartur getur aö sjálfsögöu enn
leikið 12. —Ra5 og aörir athyglis-
verðir leikir em 12. —e5! ? og 12. —
Hc8. Staðan er auöug af möguleik-
um.
13. cxd4 Hc814. Bd2 exf515. Da4!
Beittasta framhaldiö. Eftir 15.
Hxf5 kemur 15. —Rd6 og 15. exf5 d5!
16. Rf4 leiðir ekki til ávinnings vegna
16. —dxc4 17. Re6 Dd7! 18. Rxf8
Dxd4+ 19. Khl Kxf8 og svartur má
vel viöuna.
15. —fxe416. Bxe4 Bb717. Bb4!?
Svo viröist sem svartur lifi af fóm
á g6 eftir 17. Dc2 g6. Flækjurnar sem
nú em í uppsiglingu sýnast hvítum í
hag.
17. —Rxb418. Bxb7 Hc719. Dxa7!
Hann hefur í huga aö svara 19. —
Rd6 meö 20. Dxb6! og hefur þá unniö
peö. Svartur á eina leiö til aö halda i
horfinu.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn.
Jón L. Árnason.AM 2495 1 '4 •k '4 '4 'k 1 '4 1 1 1 8
Anatoly Lein USA, SM 2465 0 'A '4 '4 '4 1 1 '4 1 1 1 7'4
William J. Lombardy, USA, SM 2500 '4 '4 '4 •k '4 ‘k '4 1 ‘k 1 1 7
Helgi Ólafsson, SM 2515 '4 ‘k '4 >k 4 'k '4 1 •k * 1 6'4
Bernard Zuckerman, USA, AM 2490 ‘k 'lt 'k T '4 '4 1 '4 •L 'k 1 Ck
Guömundur Sigurjónsson, SM 2405 •k >k 'í 7 '4 'k 'k 1 '4 'k 6
Jonathan D. Tisdall, USA, AM 2420 'A o 'h 'h. 4 '4 ‘k 'k 'k 1 1 (o
Karl Þorsteins 2400 0 0 '4. 'k O '4 'k 'k 'lt 1 1 5
Áskell örn Kárason 2200 '4- ‘í 0 O '4 '4 'k 'í 'k 'k >k k'k
Knut J. Helmers, NOR, AM 2445 ö o ‘k 'L k 0 /4 '4 7 ‘L 44
Sævar Bjarnason 2355 0 0 '4 >k 'k o o 'k 7 1 3 4
Pálmi R. Pétursson 2370 k. 0 o o o 'k 0 o ‘í O o 1
19. —Rc2!
Tilraun til þess aö vinna skipta-
mun meö 19. —Rd3?! 20. Dxb6 (20.
Hf3 kemur einnig til greina) De7 sem
hótar riddaranum og einnig skák á
e3gætiendaðmeöósköpum: 21. Rc3!
De3+ 22. Khl Rf2+ 23. Hxf2 Dxf2 24.
Rb5 Db2 25. Hgl d6 26. a4 He7 27.
Bd5+ Kh8 28. Dd8! meö vinnings-
stöðu á hvítt.
20. Hacl Re3 21. Hf3 De7 22. Dxb6
Tisdall hafnaöi 22. Rf4! ? vegna 22.
—Dd6! 23. Hxe3 Dxf4 24. Hael Dxd4
25. Khl Hxc4!? 26. Hxe8 Hxe8 27.
Hxe8+ Kf7 28. Hel De3! meöyfirvof-
andi máthótun í boröinu. En hvítur
heldur áfram og leikur 29. Hfl! Hcl
30. Bd5+ Kg6 31. Be4 + ! Kh6 32. Bd3
og hefur góða vinningsmöguleika.
Betra er því 25. — Rd6! 26. Bd5+
Dxd5 27. Dxc7’ Rxc4 og svartur ætti
aö halda jafntefli án mikilla erfiö-
leika.
22. —Rxg2! 23. Bd5+ Kh8 24. Kxg2
Ymsu- aörir leikir em mögulegir,
einna athyglisveröastur er 24. Kf2!?
Svartur á enn eftir að koma riddar-
anum á e8 á framfæri en um leið og
hann er kominn fram, eftir t.d. f5 og
Rf6, má hvítur gæta aö kóngsstöö-
unni.
24. —Dxe2+ 25. Hf2 De3! 26. Db4
d6! ?
Tími hvíts var farinn aö minnka og
svartur teflir til vinnings. Jafntefli
var aö fá meö 26. — Dg5+, því 27.
Khl?? tapar þar sem hrókurinn
fellur meö skák.
27. Dc3 Dg5+ 28. Khl f5! 29. Hgl Dh4
30. Hgfl g6 31. De3?!
Eftir 31. c5 Rf6 32. Bf3 d5 eru
möguleikar jafnir. Nú nær svartur
undirtökunum.
31. — Rf6 32. De6 Dxd4 33. Dxd6 Hcc8
34. Hf4 De3?!
Hér er 34. —Dc5 hættulegri —
endatafliö gefur svörtum vissa
vinningsmöguleika.
35. H4f3 Dd4 36. Hf4 De3 37. H4f3 Dd2
38. H3f2 Da5 39. Db4 Dc7 40. Db2 Dg7
Biðstaðan, sem viröist lofa góðu
fyrir svarts hönd. Eftir biö teflir
hvitur hins vegar hárnákvæmt og
gef ur ekki færi á sér.
41. Hfdl Hfd8 42. Db3! Rxd5 43. cxd5
De5 44. Kgl! Hd6 45. a4 Hcd8 46. Hfd2
f4 47. Df3 De3+ 48. Dxe3
Og jafntefii samiö því að tafliö
leysist upp. JLÁ.
llliiiföHslMl
í DAG LAUGARDAG, FRÁ 1-4
LADA 1200
198.000.
LADA SAFIR
220.000
LADA SPORT 4X4
408.000.
LADALUX
248.000
1
í
I