Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Page 20
20 DV.LAUGARDAGUR30. MARS1985. BIFHJÓLASAMTÖK LÝÐVELDISINS ERU EINS ÁRS UM HELGINA Keöjur, hnúajárn og hauskúpur? Helvískir englar? Skyldu þeir ekki sóma sér vel í Altamont? Eöa Mad Max: a fuel-injected suicide machine? Ööru nær! 1 Bifhjólasamtökum lýöveldisins eru eintóm snöfurmenni, kurteisir piltar. Ein undirdeild sam- takanna heitir Regla hanskans og hefur þaö að markmiöi aö taka upp hanskann fyrir gamlar konur; hjálpa þeim yfir ógreiöfærar umferöargötur, aöstoöa þær viö útréttingar og svo framvegis. (Svo er líka til Blóöuga gúmmíöxin. Enginn virðist vita al- mennilega til hvers hún er.) Þeir sitja nokkrir saman kringum borö í húsi viö Ægisíðuna og drekka kaffi. Það er leöurlykt þama inni því þeir eru leöurklæddir frá hvirfli til ilja og hjálmamir bíöa frammi. Flestir eru milli tvítugs og þrítugs; þeir elstu viröast komnir undir fertugt og þeir yngstu ... eru yngri. Reyndar er aldurstakmark í Bifhjólasamtökun- um sautján ár og eins gott aö framvísa ökuskírteini. ,,Það er til þess aö losna við skellinöörugæjana, ha ha ha,” hlæja þeir og eru búnir aö stein- gleyma eigin æsku. (Eöa muna þeir hana kannski alltof vel?) Iæöriö sem þeir klæöast er svart eins og nátt- myrkriö en á vinstri öxl bera þeir mynd af vinalegum snigli. Bifhjóla- samtök lýöveldisins er nefnilega bara undirtitill hópsins. Réttu nafni vilja þeirheita Sniglar. Aramótin eru fyrsta apríl „Sniglar? Á mörg hundmö kúbika mótorhjólum?” „Já. Það var ekkert smáræðis mál aö velja nafn. Fyrstu fundirnir fóru alveg í þaö. Sumir vildu eitthvert töff nafn eins og í útlöndum: Svarta höndin, Black Shadow, svoleiöis mgl. En það varð ofan á aö velja nafn sem hvorki minnti á hraöa né ofbeldi og þaö varö líka aö vera góö og gild íslenska. Einn okkar fór í oröabók og kom meö heila bunu af nöfnum: Yggdrasill, Sleipnir, Ásmegir, Mjölnir; viö vorum ekki ánægöir meö þau. Bifhjóla- áhugamenn í Reykjavík og nágrenni, skammstafað BARON? Nei, ekki dugöi þaö. Einhverjum datt í hug nafniö ROTA, sem mun þýða hjól á latínu, en það mæltist ekki vel fyrir. Loksins vomm viö komnir alveg í þrot. Þá stundi einhver upp: Eigum viö ekki bara aö heita Sniglar? Viö hentum þetta á lofti, .dauöfegnir, og síöan höf um viö heitið Sniglar.” Sniglamir em eins árs nú um helgina og halda upp á þaö með pompi og pústi. Ottaslegnir lesendur: látiö ykkur ekki bregöa þó drunur berist aö utan eöa svartklæddur hópur skjóti upp kollinum í afturrúöunni; þaö em bara Sniglamir aö fagna afmæli sínu. Reyndar kalla þeir þetta áramótagleði og ætla að miöa áramótin við fyrsta aprílhéöanífrá. Súper-Lúlli átti hugmyndina Hvers vegna, spyr ég, var taliö nauðsy nlegt aö stofna svona klúbb? „Viö emm samtök, ekki klúbbur,” árétta þeir. „En það var Súper-Lúlli sem á heiðurinn af hugmyndinni. Hann setti auglýsingu í blööin í fyrra og þá fómm viö aö rotta okkur saman. Til- gangurinn var einfaldlega sá aö skapa Texti: lliugi Jökulsson Myndir: Kristján Ari Einarsson Leyniþjónustan upplýsir... — að Sneglur megi passa vel upp á teininsín, — aö Herforinginn aki ekki um á Hondu og hananú! — aö fánagerð kosti fórnir, jafnvcl bráðna leöurjakka! — aö no. 13 sé ekki I Módelsamtökun- um, heldur Bifhjólasamtökunum. — að svo hart sé 1 búi hjá smáfuglun- um að no. 13 sé farinn aö selja bringuhárin fyrir fræ! — að Svarta vísundinum þyki meira variö í bíó heldur eu ný dekk. — aö Kristján sé búinn aö tjúna Trabbann. — að Ninjan sé týnd og fundin — og hafi farið í skip í fimmta sinn sl. föstudag. — að systir hans Lúila eigi stórhættu- lega dagbók. — aö sálin hans Dóra sé óhrein. — aö Herforinginn muni ylja Yamaha milli læra sér i sumar. — aö þeir fy rir vestan krómi líka. —aö stóiarnir á Hrafninum séu ekki fyrirSNIGLA. — að „Y” sé happatala hjá mr. Break. — að flugfreyjur hafi áhuga á hjóium. (Ur Sniglafréttuni, mars- tölublaöi 1985.) samstööu og félagsanda meöal þeirra sem eiga stór mótorhjól. Fólk haföi vægast sagt lítið álit á okkur; þaö ályktaöi sem svo aö allir sem klæddust svörtu leðri og keyröu mótorhjól væru annaðhvort hálfvitar eöa ofbeldis- menn, nema hvort tveggja væri. En sannleikurinn er sá aö í Bifhjóla- samtökunum eru alls konar menn, nema helst ofbeldisseggir og hálfvit- ar...” Þeir segja mér aö nú séu rösklega eitt hundraö félagar skróöir í Bifhjóla- samtökin, eitthvaö um áttatíu hafi borgaö félagsgjöldin og mjög virkir fé- lagar séu kannski þrjátíu fjörutíu. Og þeim eigi eftir aö f jölga meö vorinu. Og þeir segja mér líka aö þeir viti um marga sem enn hafi ekki haft hugrekki til þess aö nálgast Snigiana. Varúlfar nútímans? „Þaö eru til menn á miðjum aldri og i toppstööum í þjóðfélaginu sem eiga upptjúnuö mótorhjól úti í bílskúr þó þeir þori ekki fyrir sitt litla líf aö kannast við þaö. Svo fara þeir á stúf- ana þegar kvölda tekur, laumast í leöurgallann og út í skúr, opna hurðina og svipast um, æða svo út í myrkrið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.