Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Side 21
DV. LAUGARDAGUR 30. MARS1985. 21 þegar þeir eru vissir um aö enginn sjái , til. Loka ekki á eftir sér til þess að geta brunað beint inn í skjól eftir túrinn. ” Hver veit nema þarna séu komnir varúlfar íiútímans. En þeir Sniglar segja mér aö viökvæði flestra sé hiö sama þegar mótorhjól berast í tal: „Æ, eruö þiö ekki vaxnir upp úr þessu enn?” Og svo hristir fólk höfuöiö af vorkunnsemi. „En málið er aö maður vex ekkert upp úr þessu. Maöur hittir stundum gamla karla sem eru löngu hættir aö keyra og þeir draga mann út í skúr til sín og þar stendur gljáfægt og pússað Harley Davidson '28. Svo stara þeir á þaö með ósvikna ást í svipnum. Þetta er nefnilega alls ekki hver önnur della, þetta er lífsmáti sem margir öfunda okkuraf inn viðbeiniö.” ... einn á hjóli upp um óbyggt land Lífsmáti; þeir stinga upp á oröinu frelsi. Þaö var óhjákvæmilegt, býst ég viö. „Hefurðu prófaö að keyra einn á hjóli upp um óbyggt land eða eftir eyöi- legri strönd? Þaö er ekki þaö sama og aö sitja inni í bíl; þú ert einn úti í rigningu, roki og iyki og þaö ver þig ekkert nema leöurgallinn. Og kraft- urinníhjólinu.” Þeir keyra þó ekki alltaf einir. Bif- hjólasamtök lýðveldisins halda uppi öflugu félagslifi; gefa út blað, skipuleggja hópferðir um hverja helgi og útilegur á sumrin, hittast vikulega í Sundakaffi milli klukkan níu og tíu á fimmtudagskvöldum. Þeir eiga sér fastmótuð lög — „en farðu ekki að birta þau, þau eru svo venjuleg” — og jafnvel sinn eigin rekstrarhagfræðing — „en í guös bænum taktu fram aö ég er ekki menntaður í hagfræði, ég er bara gjaldkeri samtakanna eftir aö Þormar var rekinn fyrir óreiðu í bók- haldi.” Sniglarnir hafa margt á prjónunum og þaö er hugur í leöurgöllunum á Ægisíðunni. Krónprinsar íslenska vitundariðnaðarins? „Steínan er auövitaö framboö,” segir Snigill númer 13, ljóshæröur piltur sem hefur reynt fyrir sér sem ljósmyndafyrirsæta. Þeir hinir flýta sér aö taka fram að það hafi alls ekki verið á vegum Bifhjólasamtakanna og Snigill no. 13 brosir alúölega. En aö öðru leyti láta Bifhjólasamtökin sér fátt mannlegt óviökomandi. „Þaö er nú meðal annars tilgangur samtakanna að veita hæfileikum f élag- anna útrás. Og innan þeirra eru miklir hæfileikamenn á flestum sviöum.” Þeir ætla aö reyna fyrir sér í útgáfu- málum alls konar, hafa áhuga á video- framleiöslu og útvarpsrekstri. Ef eitthvaö verður úr framkvæmdum hafa Stuömenn líklega eignast verðuga keppinauta um nafnbótina Konungar íslenska vitundariönaöarins. Og Sniglarnir hafa meira að segja þegar gefiö út plötu. „Við fréttum af því á fimmtudegi aö rekstrarhagfræðingurinn væri aö fara úr landi næsta laugardag. Þá datt okkur í hug aö gaman gæti veriö aö gefa út plötu og láta hann svo sjá um aö fá hana skorna i útlöndum. Daginn eftir fórum viö í stúdíó og tókum upp plötuna á mettíma, fimm klukku- stundum. Viö vildum aðallega kynnast því hvemig væri aö gefa út plötu og þaö var alveg ágætt. Við viljum líka gjaman fara svona að hlutunum; vera ekkert að velta þeim of mikiö fyrir okkur heldur f ramkvæma í staðinn.” Plata þeirra vinsæl í Grindavík Vissulega hefur lítiö farið fyrir plötunni, „en viö emm vinsælir í Grindavík. Eg held aö viö höfum selt hér um bil öllu frystihúsinu eintak af henni. Og einn veit ég um sem býr í stigagangi meö þremur gömlum konum. Hann seldi þeim svona tíu stykki.” Sniglunum fannst reyndar svo gaman aö gefa út plötu aö þeir hafa nú stofnað sérstaka Lagavalsnefnd sem á aö undirbúa frekari afrek á þessum vettvangi, semja lög og texta og taka þau upp. Hvenær? Kannski þegar rekstrarhagfræöingurinn fer næst til útlanda. En alténd einhvern tíma. „Og stefnan er auðvitað framboð,” endurtekur Númer 13 blíðlega. Sniglamir taka að sér ýmiss konar verkefni fyrir utanaðkomandi fólk. Hér eru nokkrir þeirra heiðursvörður skrúðgöngu sem nemendur i Flensborg fóru á árshátið sinni á dögunum. Lögregluþjónn fer fremstur og vildu Sniglar taka fram að þegar á þyrfti að halda væri samstarf þeirra og lög- reglu afskaplega gott. DV-mynd GVA. C^^KÆLISKÁPAR C^^rFRYSTIKISTUR Ofangreind verð eru miöuö viö staögreiðslu — mjög góöir afborgunarskilmálar C^2/mfi}fþvottavélar við allra hæfi I ;s I I 17.000,00. 27.050,00. 18.900,00. 24.300,00. (orkusparandi, | tvöföld einangrun) . 21.250,00. VERSLUNIN BORGARTUNI 20 ■IJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.