Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Qupperneq 28
affp+inwi DV. LAUGARDAGUR 30. MARS1985. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 91., 94. og 98. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1984 á eigninni Smiðjuvegi 46 — hluta —, þingl. eign Lárusar Sigurðssonar, fer fram að kröfu Brunabótafélags Islands á eigninni sjálfri þriöjudaginn 2. april 1985 kl. 14.45. Bæjarfógetinn i Kópavogi. Til sölu — Góð kjör Wagoneer — nýr bíll, árg. 1984, ókeyrður, 6 cyl., 4ra dyra, beinskiptur. Opiðídag — laugardag — kl. 10—19. Til sýnis og sölu: æ BÍLASALAN BL/K Skeifunni 8 Sími68-64-77. Öllum ber saman um þaö aö Victor Banerjee leikur hlutverk læknisins Aziz í kvikmyndinni „A Passage to India” frábærlega vel. Og fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni hef- 'ur hann oröiö fyrsti indverski kvik- myndaleikarinn til þess aö veröa fræg- ur í Hollywood-kvikmynd síðan fíla- drenginn Sabu leið. Og þaö eru litlar likur til þess aö Banerjee beri beinin bláfátækur eins og Sabu gerði. Banerjee ætlar sér heldur ekki aö veröa „brúnn sahib”, en þaö kallar hann þann f jölda fólks sem hann segir Breta hafa skilið eftir í einskismanns- landi, fólk sem hermir eftir siöum Breta í einu og öliu og hefur m.a. lært af þeim aö aröræna samlanda sína. Þaö eina góöa, sem Bretar skildu eftir handa Indverjum, segir Banerjee, var dómskerfið og samgöngukerfiö. Ættgöfgi En Banerjee hefur aldrei verið í hópi hinna minni máttar. Hann fæddist 1946, afkomandi valdamikillar ættar og hefur alla tíö tilheyrt forréttinda- stéttinni. A heimili hans voru 40 þjónar, þar á meðal þvottakona, sjö matreiöslumenn og fjórir öryggis- veröir. Húsiö, sem frekar ætti að kalla höll, var troðfullt af húsgögnum og list- munum og þangaö komu fremstu tónlistarmenn Bengal og héldu einka- tónleika. „Gólfin voru svo hrein aö þaö mátti boröa mat af þeim,” sagöi Banerjee. „En viö borðuðum bara af silfurdisk- um. Viö borðuðum vínber frá Iran. Þegar mamma giftist voru tíu enskir þjónar haföir til þess aö gæta skart- gripanna sem henni voru gefnir.” Banerjee viöurkennir fúslega aö sér hafi veriö spillt af eftirlæti í æsku. Hann gekk á einkaskóla og kynntist þar fyrst leiklist, í skólauppfærslum á enskum gamanóperum. Hann gekk í háskóla í Kalkútta og lauk prófi í samanburðarbókmenntafræðum. En hann sneri sér að viðskiptum eftir há- skólaprófiö og vann fyrir stóriðjufyrir- tæki og síðan fraktflutningafyrirtæki. Og f jölskylda hans, áf landeigendaaðli, var stórhneyksluö á því aö hann sneri sér aö viöskiptum. Þaö fór þó enn versnandi því hann gerðist síöan at- vinnuleikari, á sviöi í fyrstu, en síðan sneri hann sér aö k vikmyndaleik. „Faðir minn fer enn hjá sér þegar hann þarf aö viðurkenna aö ég leiki í kvikmyndum,” segir Banerjee. „En hann bætir þó alltaf viö aö ég vinni aöeins fyrir þá bestu, David Lean og Satyajit Ray. Mamma hefur hins veg- ar hvatt mig til dáða í leiklistinni. Kvikmyndaleikur Banerjee er einn þeirra leikara sem indverski leikstjórinn Satyajit Ray hefur mest dálæti á. Banerjee hefur komiö fram í þrem kvikmynda Ray og hefur ein þeirra náö mikilli frægö, Skákmennirnir. Þriðja kvikmynd Ray, þar sem Banerjee leikur aðalhlutverk- Victor Banerjee f'scddiö' Ulut

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.