Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Page 32
32
II! LAUSAR STÖÐUR HJÁ
'I' REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Staða skrifstofustjóra SVR. Starfssvið: fjármálastjóri,
yfirumsjón með tölvuvæðingu og bókhaldi, starfsmanna-
stjórn, auk almennrar skrifstofustjórnunar. Æskileg
menntun og reynsla: háskóla- eða hliðstæð menntun og
reynsla af hliðstæðum verkefnum.
Upplýsingar gefur forstjóri SVR, Borgartúni 35.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00
þriðjudaginn 16. apríl 1985.
ISUZU
TROOPER
isuzu TROOPER
- lúxusvagn í bæjarakstri, ósvikið hörkutól á
fjallvegunum og allt þar á milli. Petta er einstakur
bíll, búinn þægindum fólksbílanna, krafti og styrk
jeppanna og farþegarými fyrir allt að 9 manns án
þess að nokkurs staðar þrengi að!
isuzuTROOPER ,
á fáa sína líka! |
I
Kynntu þér verð og greiðslukjör |
- við tökum flestar gerðir notaðra
bíla upp í og það bjóða fáir betur
í góðum greiðslukjörum.
BÍLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 91., 94. og 98. tölublaði Lögbirtingablaösins 1984 á
eigninni Furugrund 70 — hluta —, tal. eign Tryggva Stefánssonar, fer
fram að kröfu Brunabátafélags islands á eigninni sjálfri miðvikudaginn
3. april 1985 kl. 10.30.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 91., 94. og 98. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Engihjalla 11 — hluta —, tal. eign Benjamíns Guðmundssonar,
fer fram að kröfu Brunabótafélags íslands á eigninni sjálfri
miövikudaginn 3. april 1985 kl. 10.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
DV.LAUGARDAGUR30. MARS1985.
# Mynd sem sýnd verður á Kvikmyndaháti?
Eigi skal gráta
Eigi skal gráta eftir Hark Bohm. (Der Fall
Bachmeier — Keine Zeit Fiir Tránen)
Helstu hlutverk: Marie Colbin, (Marie), Michael
Gewisdek (Martin), Christine Limbach (Julia).
Söguþráöur:
Kvikmyndin Eigi skal gráta byggir á
atburöum sem gerðust i Þýskalandi
áriö 1983. Myndin segir frá konu um
þrítugt, Marie Sellbach. Hún er
einstæð móöir og á 7 ára gamla dóttur,
Juliu. Marie dreymir um sjálfstæöi og
vill iosa sig undan öllu sambandi viö
fööur Juliu, Martin. Marie vill veita
dóttur sinni alla þá athygli og hlýju
sem hún sjálf fór á mis viö, en hún er
ekki fær um aö uppfylla þessa kröfu
sína. Julia lendir á milli foreldra sinna
þar sem hún dregst inn í andrúmsloft
sem er þrungið afbrýöisemi, ást og
hatri. Marie gerir sér grein fyrir því aö
Julia geti orðið undir í þessum átökum
og reynir að vernda hana.
Tina vinkona Marie býðst til aö
hjálpa og býöur Juliu til sín. Julia er
spennt að fara, en verður aö bíöa á
meðan móðir hennar ákveöur hvort
hún eigi aö þiggja þetta boð. Julie fer
út aö leika sér og er vonsvikin, hún
kemur ekki heim aftur þann dag.
Lögreglan leitar að barninu og Marie
kvelst af þeirri hugsun aö hún eigi ekki
eftir að sjá Juliu. aftur. Hún fær
staðfestingu morguninn eftir þegar
lögreglumaöurinn skýrir henni frá því
að Julia hafi fundist, kyrkt.
Söguþráður
Morðinginn var maöur sem nokkrum
sinnum hafði verið sakaöur um kyn-
ferðisofbeldi.
Eftir dauöa Juliu missir Marie alla
fótfestu. Hún ásakar sjálfa sig og
sekkur æ dýpra í sjálfseyðileggingu.
Hún eyðir mörgum nóttum við gröf
dóttur sinnar með byssu við höndina til
að vemda hana fyrir frekari hörm-
ungum.
1 réttinum yfir morðingjanum sér
Marie síöasta tækifærið til þess aö
hefna sín á þeim manni sem hefur lagt
líf hennar í rúst. Hún vill endurreisa
heiöur dóttur sinnar og sína siöferðis-
legu réttsýni sem móðir.
Kviðdómendur hafa ekki áhuga á
persónulegum þjáningum Marie
Sellbach, dómarinn síst af ollum.
Dómarinn hefur áöur dæmt í málum
þessa manns og hefur því gert honum
kleift að endurtaka afbrot sín þar sem
hann hefur gengiö laus. Ef dómarinn
getur sýnt fram á að Marie hafi veriö
slæm móður dregur hann athyglina frá
sjálfumsér.
Það fer því aö verða ljóst fyrir Marie
hver er í rétti, hvern á í rauninni að
dæma. Tíu mánuðum eftir dauöa
dóttur hennar, Juliu, skýtur Marie
Sellbach morðingja dótturinnar í
réttarsalnum.
Marie Colbin í hlutverki móðurinnar.