Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Page 20
20
UR8. MAl 1985.
íþróttir
Tékkar
heims-
meistarar
ííshokkey
Tékkar urðu heimsmeistarar í ís-
hokkey á föstudag þegar þeir sigruðu
Kanada, 5—3, í hörkulegum úrslitaleik
í Prag. Sjötti heimsmcistaratitill
Tékka í 50 ára sögu keppninnar.
Það vakti athygli að fyrrverandi
heimsmeistarar Sovétrikjanna, sem
sigruðu í ölium lelkjum sínum í for-
keppnlnni í Prag, töpuðu fyrir Tékkum
og Kanadamönnum, 2—1 og 3—1, í úr-
slitakeppninni. Fyrst fyrir Tékkum og
var það fyrsta tap Sovétríkjanna í úr-
slitum HM í sjö ár. I ieiknum um þriðja
sætið sigraði sovéska liðið Bandarikin,
10-3.
Lokastaðan varþannig:
Tékkar
Kanada
Sovét
USA
3 3 0 0 18—6 6
3 2 0 1 9—8 4
3 10 2 12-8 2
3 0 0 3 7-24 0
i keppninni um failsætiö varð loka-
staðanþannig:
Finnland
' Svíþjóð
V-Þýskal.
A-Þýskal.
A-Þýskaland fé
HM.
10 4 2 4 39—33 10
10 4 0 6 37—40 8
10 3 1 6 28-41 7
10 0 2 8 16-84 2
því niður í B-riðil
-hsím.
Forest til
Rotterdam
Nottingham Forest mun taka þátt í
sterku fjögurra iiða móti sem haldið
verður í Rotterdam í ágúst. Enska liðið
mætir þar Bayern Miinchen, ung-
verska iandsliðinu og Feyenoord.
Það eru engin ný tíðindi aö sterk
æfingamðt séu haldin í Rotterdam.
Margir Islendingar brugðu sér á eitt
slikt í fyrra er Manchester United,
Stuttgart, Anderlecht og Feyenoord
leiddu saman hesta sina.
-fros.
íþróttir Iþróttir
Bordeaux
meistari
— þegar þrjár umferðir eru eftir af frönsku 1.
deildinni. Sigraði Strasbourg í gærkvöldi á
meðan Nantes vatð að sætta sig við jafntefli heima
Frá Árna Snævarr, fréttaritara DV í
Frakklandi:
Bordeaux tryggði sér í gærkvöldi
franska meistaratitilinn í knattspyrnu
í annað sinn er það sigraði Strasbourg
á heimavelli sinum, 3—2, á meðan
Nantes náði aðeins jafntefli gegn
Toulouse á heimavelli. Nantes getur
náð Bordeaux að stigum en markatala
Bordeaux iiðsins er miklu betri, hefur
42 mörk gegn 27 og aðeins þrír leikir
eru eftir. Bordeaux varð einnig meist-
ari í fyrra en iiðinu mun að öllum
líkindum reynast erfitt aö fylgja eftir
glæsilegum árangri sinum því meðal-
aidur leikmanna liðsins er mjög hár,
um 28 ár. Til merkis um gengi
Bordeaux í vetur má nefna að liðið
hefur leikið 18 heimaleiki og unnið þá
alla.
Bordeaux lék mjög vel gegn Stras-
bourg en átti í nokkrum erfiðleikum í
byrjun, gestirnir náðu forystunni með
marki Pecout en Battiston og Giresse
sáu um að koma Bordeaux yfir. Souto
jafnaði en Lacombe, sem er marka-
hæsti maður frönsku knattspyrnunnar
frá upphafi, gerði sigurmark
Bordeaux eftir mikinn einleik Specho.
Nantes lenti í ærnum vandræðum
gegn Toulouse, var undir, 0—2, en náði
að jafna með tveimur mörkum í seinni
hálfleik.
Monaco á nú mestan möguleika á-
samt Nantes að tryggja sér UEFA sæti
eftir gððan útisigur á Brest.
Nice tryggði sér sigur í b-riðli 2.
deildar og leikur því í 1. deild á næsta
keppnistímabili.
-fros.
FlestirveðjaáVal
Aö mati fulltrúa liðanna sem leika í 1.
deiidinm í knattspyrnu í sumar eru Valsmenn
likiegastir tslandsmeistarar þessa stundina.
1. deildar félögin héidu i gær biaðamannafund
í tileíni af því að islandsmóttð í knattspymu
fer nú senn að hefjast. Fulltrúum liðanna var
gefinn kostur á að greiða atkvæði á fundinum.
Liðið sem vfðkomandi setti í efsta sætlð fékk
tíu stig og svo koll af kolli. Lokaniðurstaðan
varðþessl:
Valur.............................244 stig
Akranes...........................223 stig
Fram..............................213 stig
KR................................148 stig
ÞórAk.............................145 stig
Þróttur...........................125 stig
Keflavík..........................108 stig
FH.................................92 stig
Víkingur...........................80 stig
Víðir..............................52 stig
-SK.
„Erum virkilega spenn
Breytingará
Skaganum
Skagamenn hafa gripið til þess
ráðs að leika flesta heimaleiki sína á
Akranesi á föstudagskvöldum í
sumar en í fyrra léku þeir yffrieitt á
laugardögum. Vonast Skagamenn til
að fleiri áhorfendur sjái sér fært að
mæta á þessum tima.
-SK.
Skátarí
gæslunni
Það hefur vakið athygli vallargesta
sem sótt hafa Reykjavíkurmótið í
knattspyrnu i vor að gæslumenn á
vellinum koma frá Hjálparsveit skáta.
Samkvæmt helmildum DV mun
þetta gert til að koma í veg fyrir að
þeir sem eiga að borga sig inn á leiki í
Laugardalnum borgi sig ekki inn. Oft
hefur dugað að ganga að
inngönguhliðinu og veifa verðinum og
gangahrattinn. -SK.
Þorsteinn
f laug lengst
Dagana 1.-4. maí verður haidið
fyrsta 6vifdrekamót sumarsins.
Keppeudur voru 10 talsins og var keppt
við mjög erfiðar aðstæður. 1 keppnum
sem þessari er ieitast við að fljúga sem
iengst frá flugtaksstað. Úrslit mótsins
urðu þau að Þorsteinn Júlíusson varð í
fyrsta sæti, hann flaug 25 km. Eina[.
Eiríksson varð annar, flaug 22 km.
Jóhann ísberg varð í þriðja sæti, fiaug
21 km.
— segir Marteinn Geirsson, þjálfari Víðis. Forráðamenn 1. deildar liðanna í knattspyrnu yfirleitt bjartsýi
Forráðamenn knattspyrnuliðanna
sem leika í 1. deildinni í sumar boðuðu í
gær til blaðamannafundar í tilefni af
þvi að íslandsmótið 1985 fer senn að
hef jast. Meðal þess sem átti sér stað á
fundinum var að fulltrúar félaganna, i
flestum tilfellum þjálfarar þeirra,
sögðu álit sitt á sumrinu og spáðu í
hlutina. Helstu atriðin í máli fulltrúa
félaganna fara hér á eftir:
Marteinn Geirsson, þjáifari Víðis:
„Við erum virkilega spenntir. Vjð
gerum okkur grein fyrir því aö keppn-
istímabiUð verður erf itt. Viö höfum æft
af miklu kappi en Uklega kemur
reynsluleysi til með aö há okkur nokk-
uð. Ef við verðum heppnir með meiösU
er ég nokkuð bjartsýnn. Það spá okkur
alUr faUi í 2. deild en við látum slíkar
spár sem vind um eyrun þjóða.”
Ingi Björn Albertsson, þjálfari FH:
„Markmiðið hjá okkur verður að
halda sæti okkar í 1. deUd. AUur
árangur umfram þaö er aukaárangur.
Við höfum misst Pálma Jónsson en
vonandi tekst okkur að fyUa skarð
hans. Ég er óhress með að lenda á móti
Víði í fyrsta leik. Víðir er eina liðið sem
við unnum ekki í 2. deUdinni í fyrra.”
Jóhannes Atlason, þjáifari Þórs:
„Það vakti nokkurt umtal á Akur-
eyri þegar ég var ráðinn þjálfari hjá
Þór,” sagði Jóhannes en hann hefur
áður þjálfað KA frá Akureyri. „Eg er
staðráðinn í að leggja allt mitt í þetta
til aö vel gangi. Viö byggjum okkur
ekki neinar kastalaborgir. Við höfum
misst tvo leikmenn frá því í fyrra og
ekki fengið nýja leUtmenn í þeirra
stað. Eins hefur æfingaaðstaðan verið
verri hjá okkur en öðrum liðum vegna
tíðarfars. En Þórsarar eru metnaðar-
fullir og ég lít björtum augum til
keppnistímabilsins.”
Hörður Helgason, þjálfari IA:
„Höfuömarkmiðið hjá okkur er að
leika góðan og skemmtilegan fótbolta
sem áhorfendur kunna aö meta. Að
skemmta áhorfendum. Það verður
síðan að meta árangurinn þegar upp
verður staðið í haust. Eg vil minna á
það að við höfum misst góða leikmenn
en munum þrátt fyrir það gera okkar
besta til að halda Islandsmeistara-
titiinum.”
Gunnar Guðmundsson, form. knatt-