Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Síða 34
DÆGRADVÖL
34
DÆGRADVÖL
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. MAl 1985.
DÆGRADVÖL
Húllumhæ í Höllinni
Söngur, leikur og dans. Þaö ríkti
sannkölluö „camival”stemmning á
hátíö æskunnar í Höllinni. Krakkamir
klæddir í alls konar múnderingar og
allir i besta skapi. Þama vom nemend-
ur úr ölium grunnskólum á Reykja-
víkursvæðinu. Flestir komu fylktu liði í
skrúögöngum en minni bömin komu
mörg hver í fylgd foreldra sinna.
Þama var ótalmargt hægt aö gera sér
til skemmtunar. Getraunir, borö-
tennis, mini-golf, skák, dans o.fl., o.fl.
Góö þótttaka
„Þaö hefur verið mjög mikil þátt-
taka í þessu,” sögöu þau Una Sigurðar-
Una Sigurðardóttír og Karl Rafnsson sétu i framkvæmdanefnd hótíð-
arinnar. Þau voru ónægð mað þótttökuna.
Hjónin Guðrfður og Steinþór voru aö fylgjast með dóttursyni sinum.
Þaim fannst hóvaðinn heldur mikill.
„HÉR ER LÍF í TUSKUNUM”
„Eg sagöi viö bóndann, fljótlega
eftir aö viö komum: Maður verður al-
veg kolvitlaus af öllum hávaðanum
hér.” Hjónin Guöriður Steinþórsdóttir
og Steinþór Eiríksson eru hress í
bragði. Þau drifu sig á hátíðina til aö
fylgjast meö dóttursyni sínum sem átti
aö leika í leikriti. „Hann var búinn aö
segja okkur frá því aö hann ætti að
leika og okkur langaöi til aö sjá
frammistöðu hans. Það virðist vera líf
í tuskunum hér. Þetta er víst þaö sem á
við i dag. Það hefur allt breyst frá því
að við vorum ung. En ætli sumir verði
ekki orðnir þreyttir í kvöld eftir að
hafa hamast hér í allan dag?”
Spumingakeppnin hafin. Beina útsendingin i höndum fjölmenns liðs tæknlmanna og óhorfendur fylgjast
spenntír með.
„ÞETTA ER BEIN ÚTSENDING”
„Góðir gestir. Eftir augnablik hefst
hér í beinni útsendingu spuminga-
keppni grunnskólanna og er keppnin
milli Hagaskóla og Breiöholtsskóla.
Viö höfum aldrei staðið að svona út-
sendingu áður og verðum þvi að vona
það besta,” segir Marteinn Sigurgeirs-
son stjómandi. Um leið og hann dregur
sig í hlé brosir hann uppörvandi til f jöl-
margra áhorfenda sem safnast hafa að
básnum. Marteinn er leiðbeinandi
myndbandahópsins.
— Hvað liggur mikill undirbúningur
að baki þessarar útsendingar?
„Það liggur töluvert mikill undir-
búningur að baki þessu. Krakkamir
em aö fást við nokkuð sem þau hafa
aldrei prófað áður. Við erum hér með
þrjár myndavélar og notum „mixer”
til að skipta á milii þeirra. Síöan höfum
við sett upp bjöllukerfi sem er svipað
því sem er notað i spumingaþáttum
sjónvarpsins. Svo liggur nokkur undir-
búningur í gerð myndrænna
spuminga. Þaö hefur tekið töluverðan
tima aö fá þetta allt til að smella sam-
an.”
— Hverjir eiga tækin sem þiðnotið?
„Skólamir eiga þau, fyrir utan
sjónvarpstækin sem við höfum fengið
aö láni úr verslunum. Þetta em þau
tæki sem við höfum verið aö vinna meö
í vetur í stúdíói Alftamýrarskólans.
Þar hafa skólamir haft aðstööu og ég
hef veriö þar meö námskeið. Og ef
þessi upptaka heppnast þá verður hún
fjölfölduð og henni dreift i alla
skólana. ’ ’ Og með það er Marteinn rok-
inn til að fylgjast með aö útsendingin
gangi snurðulaust.
dóttir og Karl Rafnsson sem sátu i
framkvæmdanefnd hátíðarinnar.
„Jafnvel meira en búist var við. Sér-
staklega emm við ánægð með hvaö
hefur komið mikið af yngri krökkum.
Þessi góöa þátttaka sýnir að það er
grundvöllur fyrir því að halda svona
hátiðir oftar. Þetta er ekkert sem á
bara við á ári æskunnar.”
— Hvaðmeðfjárhagsleguhliðina?
„Fyrirtæki i bænum hafa stutt vel
við bakið á okkur. Launakostnaður fer
á Æskulýðsráð og skólaskrifstofu
borgarinnar. Fjárhagslega er þessari
hátíð þvi borgið. En hvað varöar fram-
hald á svona hátíðum þá er peninga-
hliðin stóra spumingin.”
Annasamt ár
Á þessu ári hefur eitthvað verið gert
i hverjum mánuði til að minna á æsk-
una. Nægir þar að nefna friðarviku fé-
lagsmiðstöðva, fjáröflunartónleika
fyrir hungraöa í Eþiópiu og nú síðast
hátiðina í Höllinni. Fram undan em
verkefni eins og íþróttahátið, unglinga-
ráðstefna og listahátíð æskunnar. Þaö
er því greinilegt að ungt fólk i dag
hefur margt til málanna að leggja.
Nokkuð sem hinir fullorðnu ættu oftar
að hafa i huga en bara á ári sem tengt
er nafni æskunnar. Næst á dagskrá hjá
æskunni er svo borgarstjóraarfundur i
maí.
„ALLT VITLAUST
AÐ GERA”
Það sló hver í kapp við annan á
mini-golfbrautunum i anddyri
Hallarinnar. „Það er búið að vera
allt vitlaust að gera,” sagöi Þorvald-
ur úr 8. bekk Seljaskóla. Seljaskóla-
nemendur höfðu umsjón með
brautunum.
„Mér list vel á þessa hátíð. Það
þyrfti að halda svona oftar. Það er
alltof litiö gert aö þvi að leyfa
unglingum aö framkvæma eitthvað
eftir eigin höfði. Við höfum sjálf um-
sjón meö flestu héma og ég get ekki
séö annaö en að það hafi tekist ágæt-
lega.”
„Okkur líst bara vel á þetta,” sögðu
þeir feðgar, Eriing og Georg. Erling
hafði tekið aö sér aö fylgja syninum og
félögum hans á hátiöina. „Krakkamir
hafa gott af því aö fá útrás,” bætti
hann við. „Það eina sem mér finnst aö
er hvað langur timi líður milli atriöa á
sviðinu. Það mætti gera meira til að
halda krökkunum viö efnið. Þau ráfa
mörg hver eirðarlaus um.
En strákurinn hefur gaman af
þessu. Hann er nýbúinn að hnýta hér
sína fyrstu flugu og láta taka mynd af
sér í strandklæðum.” Georg kinkaöi
kolli til samþykkis. „Þetta er þræl-
gaman.”
Faðgamir, Erling og Gaorg, fylgjast mað gangl móla.
Texti: Þorsteinn J. Vilhjálmsson
Myndir: Vilhjálmur H.