Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Side 36
36
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. MAI1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Ekki John
og Yoko
Þetta eru ekki John I.ennon og
Yoko Ono, heldur breski leikarinn
Gary Gibson og amerísk-japanska
leikkonan Haru Aki sem hér sjást
saman við tökur á nýrri kvikmynd
um ævi skötuhjúanna heimsfrægu
sem nú er verið að vinna að í Evr-
ópu.
Slappaðu af og skelltu þér I
hnút. Haflð engar éhyggjur af
stúlkunni, hún takur það rólega
sftlr langan vinnudag msð
nokkrum teygjum.
Leikandi
liðug
Þegar dansarinn Raven
Merle vill slappa af þá hnýtir
hún sig upp í alls konar stell-
ingum.
Stúlkan er leikfimikennari í
New York og einbeitir sér aö
kyrrsetufólki sem hún segir aö
geti fett sig og brett mun meira
en það geri sér grein fyrir. Þá
vitum viö þaö.
Allt til rslðu, bara eftir að stilla sér upp fyrir forvitna Ijósmyndarana. 350 nemendur, kennarar og foreldrar búa sig undlr brottför til Þingvalla.
Skundum á Þingvöll
og treystum vor heit
Foreldra- og kennarafélag Mýrar-
húsaskólans á Seltjamarnesi skipu-
lagði mikla hópferð foreldra, kennara
og nemenda á Þingvöll í síöustu viku.
Það voru hvorki meira né minna en
350 manns í tíu rútum sem tóku þátt í
feröalaginu.
Sr. Heimir Sveinsson, þjóðgarös-
vörður og prestur á Þingvöllum,
kynnti gestum þjóðgarðinn og lýsti
helstu sögustöðum. I blíöskaparveðri
skemmtu Seltirningar sér viö leiki og
gönguferöir og er leið á daginn voru
grillaðar meira en 800 pylsur sem
hurfu eins og dögg fyrir sólu að sögn
eins skipuleggjandans, Torfa Agústs-
sonar.
Félagar úr Flugbjörgunarsveitinni í
Reykjavík voru að klifuræfingum í
Hraunagjá og fylgdust ferðalangar
meö æfingum flugbjörgunarsveitar-
manna af mikilli andakt.
„Hér er um þriðju ferð Foreldra- og
kennarafélagsins með nemendur að
vori aö ræöa og óhætt að segja að þessi
síðasta ferð, sem jafnframt er sú
lengsta til þessa, hafi verið vel heppn-
uö og gefi tilefni til frekari ferðalaga
síðar meir,” sagöi Torfi Ágústsson hjá
Foreldra- og kennarafélagi Mýrar-
húsaskólans að lokum.
Christie Brinkley
og Billy Joel
Eileen Ford fyrirsætan kunna,
Christie Brinkley, og stórpopparinn
Billy Joel, létu sem kunnugt er pússa
sig saman fyrir nokkrum vikum í New
York.
Eftir að gamli kærasti Christie,
kampavínserfinginn Olivier Chandon,
lét lífið á sviplegan hátt í kappakstri
fyrir þremur árum hófst kunnings-
skapur fyrirsætunnar og popparans,
Billy Joel. Áður en þau létu endanlega
verða af því að gifta sig voru þau búin
að búa saman í milljón dollara þakhýsi
rokkstjömunnar á Manhattan i tæp tvö
ár, sæl og yfir sig ástfangin að sögn
þeirra er til þekkja.
Hjúin kynntust á karabísku eyjunni
St. Bartthelemy í sumarfríi á einum
sólarbarnum þar sem píanistinn Billy
skemmti gestum með spili og söng.
Rómantíkin blómstraði fljótt og því fór
sem fór.
Ung, éatfangln og nýglft, Christia Brinklay og Bllly Joel.
DV-mynd Svainn ÞormóAason.
Til hamingju,
Bjarnleifur
árshátíð starfsmanna-
félagsins fyrir skömmu og
heiðraði ljósmyndarann
síunga á sjötugsafmælinu
fyrir störf hans.
Bjamleifur hefur starfað
við flest íslensku blöðin,
m.a. við Vísi, og síðar við
Dagblaðið, en hann var
einn af stofnendum þess á
sínum tíma. Síðustu ár
hefur Bjamleifur sem
kunnugt er starfað sem
einn af ljösmyndurum DV.
Bjamleifur Bjarnleifsson,
ljósmyndarinn lands-
þekkti, átti sjötugsafmæli
fyrir skömmu. Bjamleifur
er búinn að vera viðriðinn
ljósmyndun í áratugi og
hefur sannarlega komið
víða við á þeim ferli.
Stjóm Frjálsrar f jölmiðl-
unar notaði tækifærið á
Tll hamlngju Bjamlalfur. Ellert B.
Schram, annar aðalritstjóra DV,
afhendlr BJamlaifl veglagt panna-
aatt að gjðf frá Frjélari fjölmiðlun.