Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Page 5
DV. MANUDAGUR 20. MAl 1985.
5
Fulltrúaráð Kennarasambandsins samþykkti úrsögn úr BSRB:
FULLTRÚARÁÐ kí
EKKIÆÐSTA VALDIÐ
— segir formaður BSRB
„Ég vil ekki segja neitt um fram-
haldið. En fulltrúaráð Kennarasam-
bandsins er ekki þeirra æðsta vald,”
sagði Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, viðDV.
„Eg hefði talið rétt að kjörstjórnin
hefði úrskurðað um þetta mál. Þegar
ágreiningurinn kom upp með auðu
seðlana hefði að mínu mati verið rétt
að láta hlutlausan gerðardóm lögfræð-
inga úrskurða ummálið.”
Á fundi fulltrúaráðs Kennarasam-
bands Islands í fyrradag var sam-
þykkt með 24 atkvæðum gegn 8 að Kl
gengi úr BSRB. Sem kunnugt er fór
fram atkvæðagreiðsla um úrsögnina í
byrjun maí og greiddu 68,6% atkvæði
með úrsögninni, 31,38% vildu vera
áfram í BSRB, auðir seðlar voru
4,65%, ógildir voru 0,03%.
Hvorum megin hryggjar auðu seðl-
arnir eigi að liggja hefur valdið ágrein-
ingi. Tveir lögfræðingar BSRB hafa
gefið það álit að telja beri auðu seðlana
með en aörir tveir lögfræðingar hafa
verið á öndverðri skoöun. Sagði for-
maður BSRB að úrsögn kennara úr
BSRB yröi tekin fyrir á fundi í stjóm
BSRB alveg á næstunni. Samkvæmt
ályktun fulltrúaráðs Kl á fundinum á
laugardag mun Kl verða utan BSRB
fráogmeðl. jan.nk.
„Eg hlakka til að sjá Kennarasam-
bandið blómstra utan BSRB,” sagði
Svanhildur Kaaber, formaður Banda-
lags kennarafélaga og einn fulltrúa í
fuiltrúaráði Kl. „Okkar stefna er að
sameina kennarafélögin en það ræðst
síðar á þessu ári hvort við berum gæfu
til þess. Auk sameiningar er eitt mark-
miða okkar að vinna að því að kennar-
ar fái sjálfstæðan samningsrétt. Eg
studdi úrsögnina úr BSRB og ég vona
að við stöndum okkur. ”
-ÞG
ÁTVR selur bráðlega...
Hvítvín í ötf löskum
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
mun bráðlega hef ja sölu á nýstáriegri
áfengistegund. Það er hvítvín, blandað
í ávaxtasafa, svokallað „cooler”.
Verður það selt í flöskum á stærð við
ölflöskur með áþrykktum töppum.
Styrkleiki þess er 4%.
Svava Brenhöft, innkaupastjóri hjá
ATVR, sagöi í viðtali við DV að víniö
væri framleitt í Bandaríkjunum.
Umboösmaður hér á landi væri Karl K.
Karlsson. Ekki væri vitað hversu
mikið flaskan myndi kosta í útsölu þar
sem fyrsta sendingin væri enn ekki
komin hingað til lands. Væri því ekki
hægt að segja nákvæmlega til um
hvenær byrjað yrði að selja „cooler” í
útsölum ATVR.
Svava sagöi ennfremur aö þessi á-
fengistegund væri varla ætluð sem
borövín. Til þess væri vínið of sætt.
„Ætli þetta sé ekki eins konar
hressingardrykkur,” sagði hún, „enda
ekki nema 4% að styrkleika.”
Það kunni vel atlotum húsmóður sinnar, litla lambið sem Ijósmyndari DV
rakst á á bœnum Háteigi í Vopnafirði á dögunum. „Það þarf að fá sinn mat
og engar refjar," sagði Ólöf Helgadóttir, húsfreyjan á staðnum, á meðan
hún gaf þvi litla að drekka.
-JSS.
-KÞ/DV-mynd GVA.
Svona líta þœr út, hvítvínsflöskurnar sem ÁTVR hefur sölu á innan
skamms. Þœr eru minni en hálff löskur og taka 0,355 ml.
Erlendir happdrættis-
miðar leyf ilegir hér
færslu á gjaldeyri til kaupa á miðum í
erlendum happdrættum. En Olafur
Walter kvaðst telja að lítil hætta væri á
að fólk bryti gjaldeyrisreglumar til að
kaupa slíka miða, svo mikiö hefðu þær
veriðrýmkaðar. -JSS.
„Samkvæmt reglum sem gilda um
happdrætti hér á landi, er Islendingum
bannaö að versla með eða selja miða
fyrir erlenda aöila. Hins vegar ná eng-
ar reglur yfir það þótt einstakir miðar
frá erlendum happdrættum séu sendir
hingað tillands.”
Þetta sagði Olafur Walter Stefáns-
son, skrifstofustjóri í dómsmála-
ráðuneytinu, er DV spurði hann hvort
leyfilegt væri að selja miða í erlendum
happdrættum hér á landi.
Nýlega barst mörgum lands-
mönnum bréf frá þýsku happdrætti.
Siiddeutsche Klassenlotterie. Var
viðkomandi boðið að taka þátt í happ-
drættinu og voru háir vinningar í boði.
Hinir hæstu voru alit að 8,5 milljónum
þýskra marka. Einnig var hægt aö
vinna 2 milljónir marka á sérstakan
trompmiða.
Þá er ekki langt síðan að hingað til
lands voru sendir miðar frá sænsku
happdrætti.
Ekki mun leyfilegt að veita yfir-
ARGUS<€>
% í
OPNUDUM I DAG
NÝJA
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐ
O Gufuþvoum vélar
og felgur
Q Djúphreinsum
sœtin og teppin
o Notum
eingöngu hið
níðsterka
Mjallarvaxbón
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN
V/UMFERÐARMIÐSTÖÐINA - Sími 21845
... heilsunnar vegna
<
LYSI
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík.