Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Blaðsíða 29
DV. MANUDAGUR 20. MAl 1985. 29 «. Veiðimenn búa sig undir að veiða silunga i Torfustaðavatni á Arnarvatnsheiði, LabhitúráAm- arvatnsheiði — ogrenntfyrirfisk Lág fell eða bungur eru þó til og gnæfa yfir heiðarnar, eins og Slétta- fell upp af Vesturárdal í Miðfirði. Það sést næstum alls staðar af heiðunum og er þó aðeins 140 metr- um hærra en landið í kring. Alls stað- ar eru lágir ásar og ávöl holt með lautum og hvilftum á milli. Sum vötnin á Amarvatnsheiði em ágæt veiðivötn, í fallegum kvosum með grasmóum og blómalautum á bökk- unum, og úr þeim renna litlar ár og lækir milli holta. Draumur margra viðimanna er að komast á Arnarvatnsheiði og veiða silung í fallegum veiðivötnum, lifa eins og útilegumenn forðum daga og komast þannig frá stressssssssinu. „Þetta verða fimm daga túrar og það veröur veitt í Torfustaðavatni, Kvísiarvatni nyrðra og í Ytri-Kvísl í Vesturá,” sagði Arinbjöm Jóhanns- son, á Brekkulæk í Miðfirði, í samtali við DV, en hann mun í sumar bjóöa uppá tvo göngutúra á Arnarvatns- heiði. „Menn verða að vera vel búnir og duglegir að labba, þokkalegur klæðnaður er nauðsynlegur. Förum VEIÐIVON Gunnar Bender á morgnana inn að vötnum og aftur heim aö Brekkulæk á kvöldin. Það er ekki mikið veitt í þessum vötnum og veiði er þokkaleg, bæði urriði og Fallsg veifli af Amarvatnsheifli, bleikjur og urriðar. Arinbjöm Jóhannsson mefl fall ega veiði af Arnarvatnsheifli. bleikja. Það em hámark átta í ferð og þessar ferðir verða 17. júní og 8. júlí. Ferðin kostar um 12 þúsund, en menn verða að koma sér sjálfir hing- að til mín að Brekkulæk í Miðf irði.” Já, þama er tækifærið að kynnast Amarvatnsheiðinni og renna fyrir silung í heiöarvötnum, viröa fyrir sér íslenskt landslag og slappa af. „Hef verið með hestaferðir hér áður en langar til að prófa eitthvað nýtt, göngu og veiðitúra á Amarvatns- heiði,” sagði Arinbjöm að lokum. G. Bender, Helmingur vörusölu KÁ í Vöruhúsinu Sala í vöruhúsi Kaupfélags 287,3 milljónum króna. Rúmur fram í þessari stórverslun Sunn- Ámesinga á Selfossi nam á síðasta ári helmingur vömsölu kaupfélagsins fer lendinga og hefur salan þar aukist um 35,8% frá síðasta ári. Þetta kom meðal annars fram á aðalfundi kaupfélagsins sem haldinn var á Selfossi 7. maí síðastliðinn. 1 ræðum formanns og kaupfélagsstjóra kom fram að reksturinn gekk allvel á árinu 1984 og nam heildarhagnaöur á rekstursreikningi um 4,1 milljón króna og höföu þá 14,2 milljónir verið færðar tilafskrifta. Fjöldi tillagna kom fram á fundinum og var m.a. samþykkt að félagið beiti sér fyrir uppbyggingu iðnaðar, fiskeldis og loðdýraræktar á félagssvæðinu. Þá var tillaga um skoðun á möguleikum til starfradcslu fóöurblöndunarstöðvar samþykkt svo og að gera átak í þágu æskufólks í héraðinu á ári æskunnar. Fundurinn samþykkti og tillögu þar sem mótmælt var stöðugum árásum á samvinnu- hreyfinguna bæði í ræðu og riti. Alþingismaður set- ur niður kartöflur Frá Reginu á Selfossi. Hér er búin að vera sönn sumar- blíða 12—13 stiga hiti að undanfömu. Fólk notar góðu veðráttuna í görðum sínum og setur niður kartöflur í gríð og erg. Fjölæru blómin eru löngu sprungin út. Um næstsiðustu helgi skruppum við hjónin aö tilraunabúinu á Laug- ardælum. Þar voru hjónin Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður og frú að setja niður kartöflur í heimagarð sinn. Eg spurði hvort þetta væri ekki alltof snemmt að setja niður kar- töflur, um miðjan maí. Þau sögðu að það væri engin hætta, þau settu alltaf plast yfir fyrsta beðið sem þau settu niöur í og gætu þá farið að borða ný- uppteknar kartöflur um miðjan júlí. Já, það má segja með sanni að Selfyssingar hugsa vel um lóðir sínar. Trén eru himinhá og allt blóm- um skreytt og grasið slegið vikulega. Frístandandi eldavól EK1664 með glerhelluborðl Ein glæsilegasta eldavélin á markaö- inum. Glerhelluborð með 4 hitaflöt- um. Höggvarin emalering á hliðum. Rofaborð úr gleri með fullkominni tölvuklukku og fjarstýringu. Laus ofnhurð með 2-földu gleri og loft- ræstingu. Barnalæsing. Twin ofn sem sameinar blástursofn og venjulegan með yfir- og undir- hita. Kjöthitamælir. Grill. Hitaskúffa og stillanlegur sökkull. Litir: Mokkabrúnn og hvítur. Blomberg 2 ára ábyrgð. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. 8ERGSTADASTRATI I0A - SlMI I6995 Ódýrar og pottþéttar pakkningar í bílvélar Við eigum á lager pakkningar í ílestar tegundir bílvéla - viðurkennd vara sem notuð er aí mörgum biíreiðafram- leiðendum. AMC, BMW, Buick, Chevrolet, Daihatsu, Datsun, Dodge, Fiat, Ford, Land Rover, Mazda, M. Benz, Mitsubishi, Moskvitch, Opel, Perkins, Peugeot, Range Rover, Renault, Saab, Scania, Subaru, Suzuki, MÖTUNEYTI - SÖLUSKÁLAR VEITINGASTAÐIR! Ódýrar servíettur í boxin Sláið á þráðinn! — Við sendum servíetturnar um hæl. Box og servíettur - alltaf til á lager. Ath! Tvær stærðir af boxum - sama stærð af servíettum! STANDBERG HF. Sogavegi 108 símar 35240 og 35242

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.