Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Side 7
DV. MANUDAGUR 20. MAl 1985.
7
Neytendur Neytendur
Samvinnuferöir-Landsýn:
Fjölskyldan fær
fimm valkosti
Hjá Samvinnuferðum Landsýn var
brugðið á þaö ráð að reikna út fimm
valkosti fyrir fjölskylduna. I Júgósla-
víu getur hún búið á Hótel Neptún með
hálfu fæði og kostar það 109.200
krónur. Á Rhodos í Grikklandi er
boðið upp á dvöl á Hótel Doreta Beach
með hálfu fæði og kostar það 120.900
krónur. Á Italíu eru tveir valkostir —
Hotel Villa Adriatica með hálfu fæði
fyrir 131.600 kr. og svo í íbúðum með
tveimur svefnherbergjum, stofu, eld-
húsi og bæði fy rir 87.600 krónur. Aö síð-
ustu eru svo sumarhúsin í Danmörku
með tveimur svefnherbergjum, stofu,
eldhúsi og baði en án fæðis í þrjár vik-
ur. Tekið er fram í lokin að júlí er dýr-
asta tímabil ársins á báöum þessum
stöðum og ef reiknaö er með brottför á
ódýrari tímum má reikna með 10 - 20%
lækkun á heildarverði og fer það nokk-
uð eftir áfangastööum. Og einnig
itreka þeir h já Samvinnuferðum-Land-
sýn að í ferð sem miðast við hóteldvöl í
þrjár vikur beri að líta á gæði hótela
við samanburð á verði og aðra aðstöðu
sem býðst hverju sinni.
baj
Raddir neytenda
SUMARVÖRUR
Úrval af frábœrum fatnaöi fyrir börn og
unglinga. Verzlunitl, °Pt‘
Hamraborg 7, Kópavogi
Sími 45288
Glœsibœ, Álfheimum 74
Sími 33830
ÓTRÚLEGT
VERÐ
„Tvíbökur”
og fleira fínt
Eiríkur frá Akureyri hringdi:
„Það þarf að setja reglur um dag-
setningarstimpla á brauðum. Ég var
aö koma úr innkaupaferð og ætlaði að
gæða mér á nýbökuðu rúnstykki en
þegar reynt var aö skera það í sundur
eða bíta í reyndist það skraufþurrt og
vont. Að minnsta kosti tveggja sentí-
metra hörð og þurr brík inn á við og
ekki mikiö skárra inni við miöju. Þetta
finnst mér óætt og finnst ekki rétt að
leyfa sölu á slíku nema þá á miklum af-
slætti. Er þetta leyfilegt? — segja ís-
lensk lög að brauð séu bara brauð? —
hver fjandinn sem það svo er!
Kannski er ástandiö verra héma á
Akureyri heldur en hjá ykkur fyrir
s.unnan. Við höfum bara eitt brauð-
gerðarhús, Brauðgerð Kristjáns Jóns-
sonar, og svo KEA. Plastpöldcuð brauð
Ekki okur
heldur
mistök
Vilhjálmur Þór í Candis hringdi:
„Þið birtuð um daginn frásögn konu
í Breiðholti undir yfirskriftinni „okrað
á frönskum”. Þar sagðist hún hafa
komiö hingað í Candis og verið látin
borga 77 krónur fyrir minnstu stærð af
frönskum. Og sama stærð væri seld
hérna við hliðina á 38 krónur. Þetta er
ekki rétt og hlýtur aö byggjast á ein-
hverjum misskilningi. Við seljum
héma í Candis franskar í 200 gramma
pokum sem er stööluð stærð fyrir alla
skyndibitastaði. Reiknað sem
skammtur fyrir einn mann. Hérna viö
hliðina er sama stærð seld á sama
verði — að vísu í boxum. Hins vegar
kostar næsta stærð við, sem er 400
grömm, 77 krónur og eina skýringin á
þessu er að hún hafi ef til vill fengið
ranga afgreiöslu. Því vil ég biðja hana
að hafa samband við okkur sem allra
fyrst svo hægt verði að komast til botns
í þessu og leiðrétta það.”
baj.
IGRJOTGRINDURI
Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREtDA |
Kigum á lager sérhannaðar grjót-
grindur a yfir 50 tegundir
SERHÆFOIRIFIAT 0G CITR0EN VIÐGERÐUM
BIFREIÐAU|VERKSTÆÐIÐ
SKtMMUVEGI 4 V
s—NnaswQS
í næstu kjörbúð eru oft ekkert lostæti
því þeim er pakkað heitum og allir vita
hvernig heitt brauð fer í plastpoka.
Þessu þarf að pakka betur og hafa dag-
stimpla á umbúðunum. Og dagsgömul
brauð á alltaf að selja með afslætti í
brauðgerðum — ekki frysta brauðin og
■seljasíðansemný.
„Tvíbökur” vil ég ekki kaupa á fullu
verði — það er að segja rúnstykki
sem hafa verið fryst, síðan hituð upp
næsta dag og seld sem ný vara.
Fyrst ég er nú farinn að eyða pening-
um og tíma í að hringja í ykkur vil ég
lika spyrja hvers vegna í ósköpunum
grænmeti eins og gulrastur er ekki
flokkað í poka eftir stærð. Þar sem ég
sé sjálfur um matarinnkaup á heim-
ilinu fer þetta óskaplega í taugarnar á
mér, að fá kannski tvo risa í poka og
tvær pínulitlar með. Það er ekki sama
hvort á að nota gulræturnar i stöppu
eða með kjöti á fati. Sama gildir um
bökunarkartöflur, til þess að þær bak-
ist jafnhratt þurfa þær að vera af
svipaðri stærð. Allt þetta eru atriði
sem ætti að vera auövelt að koma i lag
ef rétta hugsunin er fyrir hendi.”
baj
Þetta fallega bíltæki, meö LW—
MW—FM stereo og kassettu, á
aðeins
KR. 5.390,-
Passar í flestar geröir bifreiöa.
10 aörar geröir af bíltækjum, kraft-
magnarar og mikið úrval af há-
tölurum. ísetning á staðnum.
D
IXdQIO
0R
Ármúla 38 (Selmúlamegin) 105 Reykjavík
Símar: 31133 - 83177-
Pósthólf 8933
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10-12.
l
GRÓÐURHÚS
Gróðurhúsin eru ódýr, sterk og auðveld
í samsetningu. Húsin fást í mismunandi
stærðum, allt frá 4,8 ferm. upp í 39 ferm.
og jafnvel enn stærri. Þau henta því vel
jafnt garðyrkjumönnum, bændum sem
garðeigendum, sem á undanförnum
árum hafa í auknum mæli drýgt tekjur
sínar með eigin ræktun.
Gerið pantanir tímanlega.
Sími 91-671515
GRÓÐURREITIR
Gróðurreitirnir eru 2,5mx1,2m að stærð
og hið bogadregna lag þeirra gerir þá
einkar hentuga til ræktunar á ýmsum
hávöxnum jurtum, t.d. káljurtum. Opn-
un reitanna er stillanleg. Þeir eru auð-
veldir í samsetningu og allir nauðsyn-
legir fylgihlutir fylgja.
í^JaTWf
Tangarhö/da 9, 710 Reyk/avlk