Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Side 13
DV. MANUDAGUR 20. MAI1985.
13
Menning Menning Menning Menning
hópa unnir af svo mikilli snilld að sýn-
ingargestinn langar ósjálfrátt að
fara um þá höndum, bera þá við ljósið
og hafa þá heim með sér. Ahorfandan-
um flýgur í hug hvort glermunir af
þessu tagi séu ekki nútímaleg hlið-
stæða listmuna þeirra sem gull og silf-
ursmiðir smíðuðu höfðingjum til forna
og skreyttu meö eðalsteinum — nema
hvað glerið er ólíkt ódýrara.
Sem lofar góöu...
Það væri ósanngjamt að bera
íslenska nytjahluti úr gleri saman við
þessi djásn. Sigrún og Sören eru í raun
þau einu sem standast samanburð við
kollega sína á hinum Norðurlöndun-
um. Hins vegar er ýmislegt að gerast í
glerskálum Píu Rakelar Sverrisdóttur
sem vert er að fylgjast með og þrjár
krukkur Svöfu B. Einarsdóttur,
skreyttar fíngerðu mynstri, lofa góðu.
Islendingamir haf a sig mest í frammi í
gerð steindra glermynda, bæði í Nor-
ræna húsinu og Kjarvalsstöðum, og
þar hafa þeir óneitanlega vinninginn
yfir norræna kollega sína — bæði hvað
magn og gæði snertir. Ekkert verk á
sýningunum jafnast reyndar á við
glerdreka og drekaböm Leifs Breið-
fjörð en þar fer saman stórkostlegt
hugarflug og gagnvandað handverk.
Sigrún Ó. Einarsdóttir — Ántitils, 1985
Leifur lætur ekki þar við sitja og sýnir
tvö áhrifamikil verk í viöbót, „Flug-
fisk” að Kjarvalsstöðum og
„Mephisto” í Norræna húsinu.
Eigin still og markmið
Af yngri kollegum hans í hinu
steinda gleri er Sigríður Asgeirsdóttir í
raun sá eini sem fundið hefur eigin stíl
og markmið. Hinir stóm gluggar
hennar, í Norræna húsinu( afleitlega
staðsettur) og að Kjarvalsstöðum, eru
voldug verk, hugsuö eins og tvískiptar
altaristöflur þar sem sterkar láréttar
og lóðréttar áherslur eru brotnar af
taktföstum „öldugangi” hvelfdra
forma um flötinn. Ingunn Benedikts-
dóttir þykir mér ofnota spegla í verk-
um sínum og Halla Haraldsdóttir er
enn varla nema byrjandi í glerlistinni.
Lísbet Sveinsdóttir gerir glermyndir
af öðm tagi þar sem megináherslur
eru markaöar með málningu, ekki blý-
fölsum. Sjálfum fannst mér meira til
um verk hennar í Norræna húsinu en
aðKjarvalsstöðum.
I skúlptúrum Brynhildar Þor-
geirsdóttur er meiri skúlptúr en gler
og verk Rúríar gengur líka meira út á
annaö og meira en sjálfan miðilinn.
Báöar koma þær tvíef ldar út úr þessari
sýningu.
Stórbrotin
Verk Steinunnar Þórarinsdóttur em
ekki nógu mörg hér til að gefa greinar-
góða mynd af afstöðu hennar til glers,
en „Minning” hennar er óneitanlega
stórbrotið verk ef hægt er að nota það
lýsingarorð yfir glerverk. Sjálf drif-
fjööur sýninganna, Sigrún 0. Einars-
dóttir, kemur heldur betur á óvart með
glerskúlptúrum sem em allsendis
ólíkir öllu því sem áður hefur sést eftir
hana. Steypir hún andlit sjálfrar sín í
gler, gerir úr því slitrótta andlitssvítu,
„úthverfan” andlitsskúlptúr auk eins
innilokaðs andlits.
Sören S. Larsen bætir sömuleiöis við
sig með hengimyndum úr mislitu gleri
sem bifast er loftið leikur um þær. Pía
Rakel nær einnig að beisla andblæinn
með sannfærandi hætti.
Víst er að eftir þessar sýningar geta
Islendingar varla verið þekktir fyrir
að líta glermyndlist sömu augum og
áður.
AI
Yfirlitsmynd frá sýningu „Nordisk Glas '85" f
Norræna húsinu.
,,Þaö viröist eins og við séum í
w þann veginn aö gleyma lær-
dóminum af nasismanum í Evrópu.”
að gefa lausan tauminn, i pólitik og
stríðsrekstri, hvötum sem borgaralegt
og sósíalískt samfélag halda niðri (af
því að þær em taldar ópólitiskar eða
andpólitískar). Á ég þar við hvatir, svo
sem fordóma, óhóflega síngirni,
grimmd, eyðileggingarþörf, uppreisn-
ar- og byltingarþörf, dagdrauma, þörf
fyrir að láta aðra segja sér fyrir
verkum og taka ábyrgðina, drápshvöt
og sjálfseyðingarhvöt, en einnig ótak-
markaöa trúmennsku, föðurlandsást,
fórnfýsi og hugsjónamennsku. Stríð
Þjóðverja virðist skipbrot rómantísku
stefnunnar í evrópskum stjómmálum
og ósigur þeirra og dauði Hitlers fá á
sig yfirbragð wagnerskrar ópem. Að
vísu mislíkar mönnum enn hvað nas-
istar drápu mikið af gyðingum, annars
eru þeir kannski orðnir lítt aðgreinan-
legir frá kúrekum, víkingum og öðrum
hemaðarhyggjuhetjum kvikmynda-
heimsins. Því miður virðist þó sem
sjálf helför gyðinganna sé að breytast í
almennt minnismerki um áhrifamátt
dauöans og eyöingarmátt nútimans.
Það virðist að við séum í þann veginn
að gleyma lærdóminum af nasisman-
um í Evrópu: Að stjómmál er ekki
hægt að reka eins og ópem eftir
Wagner. Slíkt leiddi til dæmalausrar
upplausnar og eyðileggingarstríðs og
var alltaf einfeldningsleg og óraunsæ
stjómmálalausn miðað við kapital-
isma og sósíalisma. TryggviV. Iindal
sem setur svip
ÁHÚSID
Leitió upplýsinga:
'B BREIÐFJÖRÐ
bíikksmkua-sttvpumOt-vewkpallar
SICTUNI 7 - 121 REYKJAVIK • SlMl 29022
MALL
S;
i, *! lHí % f tóklk
ip ^Hn
h Mmi, íííúPHE' ■ - ■IS*B' i' ‘|p|, !W8.£. ' i|p' gf (H
U aag... ' "r l' Wt - ÍflH lUkilUu: • % ■^p ■ m.’;v j
11 "■ m (Ti K * «p:
f m m Hl« *-■ l* K
' -•
m >
m t
i m, ’
W
m
'0M
m»
m f
m
IP$
I beinu dagflugi
Royal Jardin
del Mar
er stórt og glæsilegt íbúðahótel
sem stendur við ströndina í
Santa Ponsa. Gist er í íbúðum
með stofu og svefnherbergi,
baði og eldhúsi, sem eru vel og
fallega búin. Svalir með hús-
gögnum eru við hverja íbúð.
Sólbaðssvæði eru með ágætum
og í tengslum við þau sérstakt
leiksvæði með leiktækjum og
vaðlaug fyrir börnin. Veitingaað-
staða er jafnt úti sem inni. A kvöldin leikur hljómsveit fyrir
dansi í hótelgarðinum. örstutt er í góðan matvörumarkað
og í bænum Santa Ponsa eru fjölbreytt tækifæri til
tómstundaiðkana.
Hvers vegna
Mallorca?
Mallorca, úti fyrir ströndu Spánar, í safírbláu Miðjarðarhafinu, býður þér hvild og frið,
kjósirðu það. Hún geymir líka óteljandi möguleika til skemmtana, hverju nafni sem þær
nefnast. Hún þýr yfir menningarlegu, sögulegu gildi fyrir þá sem heillast af nýjum
kynnum og leyfa fróðleiksfýsninni að ráða ferðinni. Hún kynnir þig fyrir spennandi við-
fangsefnum, á sjó og landi; hér hafa margir uppgötvað ánægjuna af tennisleik, sjóskíð-
um og golfi svo ekki sé minnst á siglingar og fallhlífasvif. Hún býður til ógleymanlegrar
veislu í mat og drykk og gleymir ekki þörfum barnanna. Þau geta unað við hvers kyns
lystisemdir á ströndinni, farið í dýragarð og fjölbreytt sædýrasafn, svo nokkuð sé nefnt.
Og það er óhætt að fullyrða að eyjaskeggjar eru sérlega barngóðir. — Það er ekki að
ástæðulausu að fjöldi ánægðra viðskiptavina ATLANTIK kýs Mallorca, ár eftir ár.
Reyndu
Mallorca
— Þú iðrast
þess ekki
VERÐ FRA
KR. 23.800,-
Barnaafsláttur:
2ja til 12 ára 50%
12 til 15 ára 30%
Ath. Næsta
brottför er 27. maí.
örfá sæti laus.
Brottfarardagar
1985:
Maí 27., nokkur sæti laus
Júní 17., 10. sæti laus
Júlí 8., 29.
Ágúst 19., 5 sæti laus
Sept. 9., 30.
Okt. 21.
Flugtak kl. 10 að morgni.
HCKVm
FERÐASKRIFSTOFA, Iönaðarhúsinu Hallveigarstígl.Simar 28388 og28580