Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 1
t
RITSTJÖRN SÍMi
37.000EINTÖK PRÉNTÚÐ í ÐAG.
1 • AUGLVSIN6AR OG AFGREIÐSLA SÍMI27022
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVÍSIR
114. TBL. - 75. og 11. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1985.
Sendibréf frá Brasilfu með óblönduðu kókaíni:
MESTIKÓKAÍNFUND-
UR HER FRÁ UPPHAFI
— brasilískur verslunarmaður og ítölsk sambýliskona hans í haldi
Töluvert magn af kókaíni fannst í
sendibréfum frá Brasilíu sem komu
á Tollpóststofuna Armúla í fyrradag.
Krafist hefur verið gæsluvarðhalds i
30 daga yfir brasilískum manni, 32
ára, og italskri sambýliskonu hans
vegna þessa máls. Að sögn Amars
Jenssonar er þetta mesti kókaín-
fundur á Islandi frá upphafi.
Fólkið, sem rekur tattóveringa-
verslun í Sao Paulo, er hér í heim-
sókn hjá íslenskum kunningjum sín-
um. Svo virðist sem maðurinn hafi
sent sjálfum sér sendibréfin áður en
hann lagði af stað til Islands. Þegar
maðurinn kom á Tollpóststofuna létu
tollverðir fikniefnalögregluna vita
og var hann handtekinn.
Alls hafa nú fundist 20 grömm af
hreinu kókaíni en að sögn fíkniefna-
lögreglunnar leikur grunur á að von
sé á fleiri bréfum með svipuðu inni-
haldi.
Þegar kókaín er blandað fjórfald-
ast magn þess. Gangverð af blönd-
uðu grammi af efninu er í kringum
6500 krónur. Söluverðmæti 20
gramma af hreinu kókaíni er því yfir
hálf milljónkróna.
Að sögn Arnars Jenssonar er ekki
sannað að þetta efni hafi átt að fara í
umferð hér á landi. Fólkið sem var
handtekið er miklir kókaínneytend-
ur. Rannsókn málsins mun beinast
aö þvi aö upplýsa hvaö átti aö gera
við kókaínið. Einnig verður könnuö
hugsanleg aðild Islendinga í málinu.
Brasilíubúinn kom til Reykjavíkur í
vetur en ekki er vitað í hvaða erinda-
gjörðum.
Þá voru tveir menn handteknir á
sunnudaginn sem hafa viðurkennt að
hafa smyglað 2 kílóum af hassi, og
einhverju af amfetamíni frá útlönd-
um nýlega. Fundust 800 grömm af
hassi og 14 LSD í fórum þeirra. Einn-
ig söluhagnaður að upphæð 180 þús-
und krónur. Rannsókn þessa máls
verður haldiö áfram.
-EH.
/
I glampandi sól, í heitum potti, ó floti og í sólbaði.
Hvað er hœgt að hugsa sér meira hér é norðurhjara?
Það gat þessi fljótandi kona ekki og nœr enginn
borgarbúa 1 gær þegar sólin steikti þé. DV-mynd KAE
Guðjón B. forstjóri SÍS:
Ráðinn eftir maraþonfund
„Eg vil helst ekki tjá mig um málið
núna, tel að stjóm Sambandsins eigi
að hafa fyrsta orðiö en ég kem heim
bráðlega, eftir svona 10 daga.og þá
er ég tilbúinn að ræða við þig.”
Þetta sagði Guðjón B. Olafsson,
nýráðinn forstjóri Sambands Is-
lenskra Samvinnufélaga, er DV
hafði simsamband við hann til
Bandaríkjanna i morgun.
Það var á stjórnarfundi Sam-
bandsins í gærkvöldi sem Guðjón var
ráöinn forstjóri í stað Erlends Ein-
arssonar, núverandi forstjóra, er
lætur af störfum fyrir aldurs sakir.
Guöjón hlaut öÚ atkvæði stjómar-
manna Sambandsins en Valur Arn-
þórsson, stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri KEA, gaf ekki kost á
sér.
Fundurinn var mikill maraþon-
fundur, stóð í 14 klukkustundir. Sam-
kvæmt heimildum DV vildi Valur
ekki starfið nema breið samstaða
næðist um hann innan stjómarinnar.
Sú samstaða mun ekki hafa náðst.
Þá gerðust þau merku tiðindi að
stjómin samþykkti að forstjórinn
skyldi eftirleiðis ráöinn til fimm ára.
Einnig að ráðning nýs forstjóra svo
og starfsmannasamningur hans
skuli hér eftir staðfestur á aðalfundi.
-JGff
Ferðaþjónusta
íþlngsölum
A kvöldfundi neðri deildar var
ferðaþjónusta á dagskrá. Nokkur
umræða var um tillögu Kristinar
Halldórsdóttur, sem hún mælti fyrir i
gærkvöldi.
Þingmaðurinn vill fela samgöngu-
ráðherra að láta kanna fyrir mitt ár
hversu mflrið fjármagn þurfi til að
mæta auknum ferðamannastraumi
hingað. Sumir gagnrýndu hraðann
sem væri á þessu máli en að öðru
leyti voru þeir sem tóku til máls til-
lögunni hlynntir.
Kristin sagði í viðtali við DV að
hún væri ákveðin í að koma til-
lögunni í gegnum þing fyrir þingslit.
landbúnaðarvörur:
„Veitekki hver
hækkuninverður”
— segirGunnar
Guðbjartsson
,»Eg veit ekkert um þetta. Þetta er
hrein ágiskun,” sagðí Gunnar
Guöbjartsson, framkvæmdastjórí
Framleiösluráðs landbúnaðarins, i
samtali við DV aöspurður hvort rétt
væri að landbúnaðarvörur hækkuðu
um aUt að 16 prósentum um næstu
mánaöamót.
Hann sagði, að vörur þessar
myndu hækka 1. júní. Hins vegar
yröi ekki tekin ákvörðun um hversu
mikil sú hækkun yrði fyrr en allra
síðustu dagana í maí. „Þessi hækkun
eins og allar aörar á þessum vörum
byggir á upplýsingum frá Hag-
stofunni svo sem hver hækkun fóður-
g jalds hefir orðið á síðustu mánuðum
og fleiru. Þær upplýsingar liggja ein-
faldlega ekki fyrir ennþá,” sagði
GunnarGuðbjartsson. -KÞ.
Sólsklnsfundurí
Alþingisgarðlnum
Skömmu eftir hádegi í gær var
haldinn nefndarfundur í Alþingis-
garðinum. „Og það var himnarikis-
samkomulag á fundinum” eins og
einn nefndarmanna orðaði þaö.
Þingskapariaganefnd neðri deildar
meö Ingvar Gislason í fararbroddi
fundaði um þingsköp í blíöskapar-
veðrinusemvarígær. -ÞG.