Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 2
2
DV. MIÐVÖCtlDAGUR 22. MAI1985.
FYRSTA GISTIHUS-
IÐ Á DJÚPUVÍK
Á Djúpuvík á Ströndum veröur opn-
aö gistiheimili 17. júní. Eru þaö húsa-
kynni Kvennabraggans, gömlu ver-
stöðvarinnar þar í bæ, sem dubbuð
hafa veriö upp.
Það er Hlutafélagið Magnús Hanni-
balsson á Djúpuvík sem staöið hefur í
framkvæmdum þessum við Kvenna-
braggann. Húsiö er 400 fermetrar aö
stærð á tveimur hæöum. Er gistirými
fyrir 18 manns. A síldarárunum var
hins vegar þrengra setinn bekkurinn,
en i húsinu bjuggu 115 konur þegar
best lét.
„ Viö höf um sett mikið rými undir nú-
tímaþægindi alls konar sem þóttu óþörf
á þessum árum, svo sem setustofur,
klósett og böð,” sagöi Asbjöm Þorgils-
son, framkvæmdastjóri Magnúsar
Hannibalssonar, í samtali viö DV.
Þetta verður fyrsta gistihúsið á
Djúpuvik og mun það bæta úr mikilii
þörf fyrir gistirými á staönum en aU-
nokkur ferðamannastraumur er þang-
að á sumrin. -KÞ
Banedikt Ragnarsson sparisjóðsstjóri kíkir út úr einni lestarstiunni ó Valdimar VE 22.
DV-mynd Grímur
Fró undirritun samningsins.
Hitaveita Suðumesja:
Alhliða orkufyrirtæki
Bankastjóri í netaróðri
Hitaveita Suðurnesja hefur keypt
raforkudreifikerfi Rafmagnsveitna
ríkisins á Suðurnesjum, svo og há-
spennuUnur í eigu Rafmagnsveitna
ríkisins frá spennistöð við ElUðaár
til Njarðvíkur. Er kaupverðið 991
miUjón króna miöað við verðlag í
janúar 1985.
I kaupunum var og lagður grund-
vöUur að því að Hita veita Suðumes ja
yrði alhUða orkufyrirtæki á svæðinu
og yfirtæki, auk hitaveitustarfsemi,
raforkudreifingu á Suðumesjum.
Gert er ráð fyrir að samningur þessi
taki gUdi 1. júU næstkomandi.
Frá Grimi Gislasyni Vestmanna-
eyjum:
Það er ekki á hverjum degi sem
bankastjórar eða aðrir menn í áUka
stöðum bregöa sér á sjó til þess aö afla
þjóöinni tekna og komast í takt við þá
atvinnugrein, þar sem rótina að vel-
megun okkar er að finna og þeir pen-
ingar, sem ráöamenn peningastofn-
anna halda síðan um og sjá um aö út-
deila, verða til. Þetta gerði þó hann
Benedikt Ragnarsson, sparisjóösstjóri
Sparisjóðs Vestmannaeyja, nú um
daginn en þá brá hann sér í róður með
netabátnum Valdimar Sveinssyni VE
22. Ekki var afli dagsins mikill og
komu þeir snemma að landi með bUað
stýri úr þeim róðrinum. Strákarnir um
borð höfðu þaö á orði að karlinn væri
hálf gerð f iskifæla en hann væri þó ekki
búinn að gleyma handtökunum við úr-
greiðsluna ennþá, þó aö líklega stæði
hann nú í annars konar úrgreiðslum
svona dags daglega. En hvað um það,
ekki var annað að sjá en Benni væri al-
vanur í lönduninni þegar blaðamenn
DV bar að garði þar sem þeir á Valdi-
mar voru aö landa og djöflaöist hann
við að róta úr stíunum í löndunarmál-
in.
Húsnæðismál:
Ríkisstjórnin
vill afla fjár
— hafnar erlendri
lántöku
Á ríkisstjórnarfundi í gær var sam-
þykkt að afla þyrfti aukins fjármagns
vegna húsnæCásmála. Rikisstjómin ætl-
ar ekki að taka erlent lán vegna þess-
arar fjárþurftar. Steingrímur Her-
mannsson vildi ekki tjá sig um hversu
stór upphæð þetta væri. Hins vegar
hefur verið talað um að Húsnæðisstofn-
un verði bættar upp 300 milljónir vegna
þeirra 200 milljóna sem fara í viðbótar-
lán vegna ráðgjafarþjónustunnar og
100 mill jónanna sem búist er við að fari
í greiðslujöfnun húsnæðismála. Hvaða
leiðir verða valdar til að afla þessa fjár
hefur ekki endanlega verið ák veðið.
-APH
Þjóðgarður
skipulagður
Tveimur landslagsarkitektum, Ein-
ari E. Sæmundsen og Reyni Vilhjálms-
syni, hefur verið falið að vinna aðal-
skipulag fýrir þjóðgaröinn á Þingvöll-
um.
Við síðustu fjárlagaafgreiðslu voru
veittar 500 þúsund krónur til að hefja
þetta verk.
Skipulagsstjórn ríkisins hefur falið
skipulagsstjóra að hafa forgöngu um
skipulag á svæðinu í Þingvalla- Gríms-
nes- og Grafningshreppum. Þingvalla-
nefnd og Skipulagsstjóm hafa því
ákveðið að sérstakri samráðsnefnd
verði komið á fót til að trygg ja samráð
viö þessa skipulagsvinnu.
A fundi Þingvallanefndar í maíbyrj-
un var lögö fram skýrsla sem þjóð-
garðsvörður, sr. Heimir Steinsson,
vann á vegum nefndarinnar. Þar er
yfirlit yfir helstu verkefni sem unnin
hafa verið á vegum nefndarinnar und-
anfarin ár, en þau eru allmörg.
Má þar nefna vegamál, ferðamanna-
þjónustu, endumýjun á húsakosti og
náttúravemd.
Stefnt er að því að aðalskipulag fyrir
þjóðgarðinn á Þingvöllum verði tilbúið
innantveggjaára. -ÞG
HJÁ AGLI
EV-KJÖR - OPIN-KJÖR
VORIÐ ER KOMIÐ. . . ?
Buick Skylark 1981 Ford Futura 1978 Rat Rittno '85 Range Rover 1976 Fiat UNO '451984
og. . . EV-VILDARKJÖR
Skoda 1984
■:f,T
Lada Sport 1980 Rat 132 2000 1979 Lada 1600 1979 Alfa Sud 1978
Á NOTUÐUM BÍLUM HJÁ AGLI.
1929 EGILL
notaðir bílar í eigu umboðsins
VILHJALMSSON HF
FRÁ DEGITIL DAGS Smiðjuvegi 4c - Kópavogi - Simi 79944-79775
1985
MUNIÐ EV-KJÖRIN
VINSÆLU,
AÐ OGLEYMDRI
SKIPTIVERSLUNINNI