Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Side 13
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985. 13 STOR=STERKUR? »,, Alþýðuflokkurinn hefur mikið fylgi nú. Alþýðuflokkurinn fékk mikið fylgi 1978. Þá seldi hann kosn- ingaloforð sín fyrir setu í Framsóknarst jórn. ’ ’ Kjallarinn ... Hvers vegna er ágreiningur BJ og Alþýðuflokks ekki bara smá- ágreiningur? Báðir vilja breytt og bætt skattkerfi, tryggingakerfi, hús- næðislánakerfi o.s.frv. Stóri ágrein- ingurinn felst í því atriði að Alþýðu- flokkurínn trúir því eins og Fram- sóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokk- urínn og Alþýðubandalagið, að hér sé hægt að breyta og bæta án þess að breyta þeim gömlu stjórntækjum, sem við búum við. Hvaða stjórntækj- um? Jú, samsteypustjórnum þing- ræðisins eins og við höfum lifað þær eina af annarri og ætlum þó varla að lifa þessa núverandi af. Við í BJ segjum að það eina sem næsta sam- steypustjóm geti sameinast um af viti sé að breyta stjómkerfinu frá því sem nú er til þeirrar áttar að meiri- hluti þjóðarinnar kjósi forsætisráð- herra með skýra stjórnarstefnu og að kosið sé síðan til Alþingis þannig að landið sé eitt kjördæmi. B J er ekki Alþýðuflokkurinn, ekki af því að BJ sé andsnúið jafnaðarmennskunni heldur vegna þess að Alþýðuflokkur- inn vill ekki viðurkenna að stjóm- skipan okkar meinar stjómmála- mönnum að standa við hugsjónir sínar. Stjórnarþátttaka þýðir í dag það sama og að selja hugsjónir sínar fyrir ráðherrastóla. Alþýðuflokkur- inn hefur mikið fylgi nú. Alþýðu- flokkurinn fékk mikið fylgi 1978. Þá seldi hann kosningaloforð sín fyrir setu í Framsóknarstjórn. BJ hefur eindregnar skoðanir á því hvemig eigi að bæta kjör fólks í þessu Landi. Með því að gera stjórn- málamönnum kleift að standa við gefin loforð er hægt að stjórna þessu landi vel eða illa eftir því hvað þjóðin kýs. BJ telur að nýsköpun í atvinnu- lífi sé ekki möguleg nema dregið verði úr ríkisafskiptum. BJ vill ný- sköpun í tryggingakerfi, nýsköpun í heilbrigöiskerfi og nýsköpun í menntakerfi. En okkar gamla stjórn- kerfi er ónýtt til nýsköpunarverka. Hvers vegna eru íslenskir stjórn- málamenn hræddir við nýsköpun stjórnkerfisins? Hvað er orðið af norrænu landnemunum, hvað er orð- ið af vormönnum íslensks sjálf- stæðis, hvað er orðið af baráttu- mönnum íslenskrar launastéttar? Erfingjar þessara manna þora ekki að hreyfa sig lengur af þeim landskikum, sem þeir hafa slegið eign sinni á. Það er sama hvort sá landskiki heitir vinnuveitendasam- band, verkalýðshreyfing eða sam- bandiö, viðhorfin eru þau sömu. Það er allt í besta lagi hjá mér, en það þarf að snyrta svolítið til hjá hinum. Stjórnarráðið og Alþingi eru svo hjá- leigur hjá þeim til skiptis eftir því hver er í stjórn. Stjómarráðið heitir þá ríkisstjórnardeild SLS, VSI eða ASI, allt eftir því hver á í hlut. Sú „sterka” stjóm, sem nú situr með37 þingmanna meirihluta sýnir, að afl nægir ekki til að stjórna þessu landi, f STEFÁN BENEDIKTSSON, MNGMAÐUR BANDA- LAGS JAFNAÐARMANNA hvorki vel né illa. Þess vegna skiptir það ekki öllu máli hvort jafnaðar- menn era stór flokkur ef þeir ekki hafa þor til, að nema nýtt land, nýtt Island. Það nær enginn árangri sem hræðist hið ókunna. Með breyttri stjómskipan má ná þeim markmið- um frelsis og réttlætis sem íslensk þjóð vill og þarfnast. Stefán Benediktsson. STEF í ÚTFARARSÁLMI A . hafi raunvaxtastefna Þor- steins reynst hinum ungu dýr- keypt, hvað hafa mistök Steingríms kostað?” Þingflokkar stjórnarandstöðunnar hafa í sameiginingu varað rikis- stjórn og þingmeirihluta við þvi að slita þingi, án þess að leysa ríkjandi neyðarástand i húsnæðismálum. Taka stjórnarliðar mark á þeirri viðvörun? Ekki nema íbúða- kaupendur og húsbyggjendur geri stjómarþingmönnum ljóst, hversu alvarlegt ástandið er. Hringið í stjórnarþingmenn, skrifið þeim, látið rígna inn á boröin hjá þeim réttum upplýsingum um fjárhags- vanda og sálarháska þeirra fjöl- skyldna, sem nú eiga eignir sínar undir uppboðshamrinum. Orsök og afleiðing Umræða um húsnæðisfá- ránleikann er mikil og vaxandi. Að stærstum hluta snýst hún þó um af- leiðingar fremur en orsök vandans. I ályktun sinni um seinustu helgi minnti flokksstjórn Alþýðuflokksins formenn stjórnarflokkanna réttilega á, aö tvær helztu orsakir ríkjandi neyöarástands eru: — skert greiðslugeta vegna afnáms vísitölubindingar launa en ekki lána, sem forsætisráðherra hefur kallað mistök, en hét áður stjórnarstefnan. — Hækkun rauavaxta í kjö'ifar „vaxtafrelsis”, sem formaður Sjálfstæðisflokksins kallaði á sínum tíma „tímamótaákvörðun” í hagstjórn lýðveldisins. Það má til sanns vegar færa. I fyrsta sinn í sögu lýðveldisins hefur heilli kynslóð ungs fólks verið úthýst af húsnæðismarkaðinum. Var það kannske tilgangurinn? Er það kannske stjórnarstefnan? Að sögn eins sérfræðings ríkis- stjórnarinnar í húsnæðismálum má merkja áhrif vaxtastefnunnar á því, að árið 1985 hefði greiðslubyrði láns, sem tekið var 1982, verið 33,3% hærri en upphaflegar forsendur gerðu ráð fyrir, þótt lánskjara- vísitala og laun hefðu haldist í hendur. Fyrir kosningar sögöu sjálfstæðis- menn: Eign fyrir alla og 80% lá.i til þeirra sem byggja í fyrsta sinn. Eftir kosningar er reynslan: Borg- arfógetaembættiö stiiigur í vasann rausnarlegum umboöslaunum af 18.000 uppboöum og smám saman hafa hinir ungu og eignalausu hrakizt af fasteignamarkaðinum og sæta nú afarkostum leigumarkaöar- ins. Undanfarin 4—5 ár hefur yngstu kaupendum fasteigna fækkað um fimmtung. Slagorðið um eign fyrir alla er að snúast upp í öfugmæli um forréttindi hinna fáu og riku. í vinnustundum talið En hafi raunvaxtastefna Þorsteins reynzt hinum ungu dýrkeypt, hvað hafa mistök Steingrims kostaö? Árið 1984 þurfti launþegi að vinna tæplega 35% lengri tíma en áður til þess eins að geta staðið undir mis- gengi lánskjaravísitölu og kaupgjaldsvísitölu. Á nýbyrjuðu ári verður hann sennilega að eyða rúmlega 40% lengri tíma af sömu sökum. A undanförnum árum hafa raunvextir miðað við laun hækkað á bilinu20—30%. Mistök Steingríms (og félaga, hafa því kostað húsbyggjandann 40% lengri vinnutíma fyrir sama magni af steinsteypu. Og reikningur Þor- steins bætir 33% þar við. Þetta kemur heim og saman við reynslu húsbyggjandans, sem byrjaði að byggja 1982 á þeirri for- sendu, að það tæki hann 2 1/2—3 mánuði að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. I ár duga 11 mánaða laun ekki til þess. Þess vegna er hann undir hamrinum. Hvað á að gera? Það er ekki nóg að lengja henging- arólina með ráðgjöf, biðreikningum og vangaveltum a la Alexander. Það er aðeins frestun á gjaldþroti húsbyggjenda. Það er ekki nóg að fleyta lána- Kjallarinn JÓN BALDVIN HANNIBALSSON, FORMAÐUR ALÞÝÐUFLOKKSINS Vinstra megin við miðju kerfinu á milli útborgunardaga með viðbótarlánsfé, sérstöku lánsfé, bráðabirgðalánsfé og þaðan af siður erlendu lánsfé. Þetta eru bara stef í útfararsálm húsnæðislánakerfisins, því að nú koma til sögunnar stórkostleg gengistöp til viðbótar viö vaxtatöp byggingarsjóðanna. Við jafnaðarmenn leggjum til, að 3,5 milljörðum króna verði varið árlega til húsnæðismála af fjárlög- um á næstu árum. Við leggjum til að tekna verði aflað með: — launaskatti, sem verði skilað til byggingars j óðanna, — stighækkandi eignarskattsauka næstu tvö ár, á skattsvikinn verðbólgugróða stóreignafyrir- tækja og stóreignamanna, — 5% af bindiféSeðlabankans, — hagnaði Seðlabankans og refsi- vaxtafé verði varið til húsnæðis- mála, — veltuskatti af verzlun og þjónustu verði varið til húsnæðismála. Þessir tekjustofnar myndu nægja til að endurreisa fjárhag húsnæðis- lánakerfisins og til að standa undir útlánastefnu og lánskjörum, sem væru mönnum bjóðandi. Stærsta hagsmunamál ungu kynslóðarinnar í landinu er að hrinda þessari félags- legu húsnæðislánastefnu jafnaðar- manna í framkvæmd. Jón Baldvin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.