Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 6
í DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Höfundar Íslensku lyfjabókarinnar og útgefandi kynntu bókina á blaðamannafundi. Bessi Gíslason lyfja- fræðingur, Helgi Kristbjarnarson læknir, útgefandinn, Ólafur Ragnarsson i Vöku, og Magnús Jóhannsson læknir. Ljósm. Kristján Ari. Réttur þinn sem lyfjaæta Lengi vel þótti þaö sjálfsagður hlutur aö læknar héldu leyndum ákveönum upplýsingum um heilsufar sjúklinga sinna, einkum ef viðkomandi sjúklingur var haldinn banvænum sjúkdómi. Þá var þaö ákveðið talið hlutverk læknisins að ákvarða hvað sjúklingnum hentaði að vita um fram- gang mála og líklega má finna þess fleiri en eitt dæmi að fólk yfirgæfi þennan heim án þess nokkru sinni að hafa rennt grun í að sjúkdómur eins og krabbamein væri farínn aö grafa um sig í líkamanum. Hvaö þá að dauða- stundin nálgaðist óðum. Eins þótti ekki rétt aö hafa hátt um aukaverkanir lyfja sem fólk var aö innbyrða og margir tóku árum saman einhver lyf við magaverkjum og öðru álíka án þess nokkru sinni að kynna sér hvaða efni væru í lyfjunum og þá meðfylgjandi verkun. Sumir sjúklingar höfðu á orði að engu líkara vsri en allar spumingar færu illilega fyrir brjóstið á lækninum. Honum þætti þeir með puttana í einkamálum læknastéttarinnar, um leið og skrokkurinn væri kominn á skrá teldist hann tilfelli í eign ákveðins læknis. Afleiðing af þessu hefur svo verið alls kyns misskilningur og bagaleg fáfræði fólks um heilbrigðismál yfirleitt. Ekkert einkamál lækna Breytt viðhorf í þjóðfélaginu varðandi upplýsingastreymi til almennings á hinum ýmsu sviðum hefur svo gjörbreytt öllum starfsað- ferðum margra stétta í opinberri þjónustu. Læknastéttin er þar engin undantekning og nú þykir þaö ekkert einkamál einhvers læknis hvort sjúklingur er með krabbamein eöa annan hættulegan sjúkdóm, í flestum tilvikum talið sjálfsagt að skýra fólki satt og rétt frá staðreyndum. I samræmi við þessar breytingar hefur aukin umræða um lyf, verkanir þeirra og upplýsingaskyldu til almennings leitt til þess að á Norður- löndunum og víðar hafa komið út hand- hægar upplýsingabækur um lyf ætlaöar almenningi. Talað er um byltingu í upplýsingaþjónustu til fólks á sviði heilbrigðismála og víst er að almenningur hefur ekki haft aðgang að slíku efni fram að þessu — aöeins einstaka starfsmenn heilbrigðis- stéttanna. A Islandi eru komnar út tvær bækur með skömmu millibili sem fjalla um þessi mál, Islenska lyfjabókin fró bókaútgáfunni Vöku og Lyfjabókin frá Isafold. Sú fyrri er samin af læknunum Helga Kristbjarnarsyni og Magnúsi Jóhannssyni og lyfjafræðingnum Bessa Gíslasyni. Lyfjabókin er hins vegar eftir Danann Niels Bjömdal og þýðingin unnin af Finnboga Rúti Hálf- dánarsyni og Guðrúnu Eddu Guðmundsdóttur lyfjafræðingum. Gulrófur hafa ágætt geymsluþol. Rófurnar sem eru á boðstólum núna eru frá þvi i fyrra og eru enn góðar. Hollar og hita- einingasnauðar „Gulrófur með öllum mat,” nefnist uppskriftarbæklingur sem Félag gulrófnabænda hefur látið útbúa. Verður honum dreift í verslanir sem selja rófur. 1 bæklingnum er að finna tíu uppskriftir að réttum sem eru búnir til aðmiklu leyti úr gulrófum. Þarsegir .a.: „Gulrófur eru einn af okkar allra ódýrustu vítamíngjöfum. Það sem fyrst og fremst einkennir næringar- gildi gulrófna er hve þær eru C-víta- mínauðugar. Vegna þess hefur gulrófan oft veriö kölluð „sítróna Norðurlanda”. Gulrófur eru einnig tilvaldar sem megrunarfæði. Það eru ekki nema 38 hitaeiningar í 100 g af rófum. Gulrófur er hægt aö nota hvort sem er hráar eða soðnar með öllum mat. Hér er uppskrift úr bæklingnum að salati sem virðist fljótlagað og hollt og ekki fitandi: 200 g gulrófur 250 g hvitkál 1 meðalstórt, grænt epli Rífið gulrófuna og eplið og skeriö hvítkálið í þunnar ræmur. Blandið vel saman. Hentar vel með kjöti og fiski. Kg af rófum kostar nú um 19 kr. í stórmarkaði í Reykjavík. A. Bj. fSLENSKA LYFJA BOKIN VAKA íslenska lyfjabókin. . . Niels Bjamdal LYFJABÓKIN ÍSAFOLD . . . og Lyfjabókin eftir danska lækninn og lyfjafræðinginn Niels Björndal. Lifseigar gróusögur um hneigfl lækna til aö ávisa lyfjum til sjúklinga i róttu hlutfalli vifl dugnað lyfjaframleiöenda að bjóða læknum í kokkteilboð og utanlandsreisur ættu nú að hverfa með öllu. Útkoma lyfjabóka handa al- menningi gerir sjúklingum fært að fylgjast með þvi sjálfir hvort þeim er ráðlagt að taka dýr lyf við hinum ýmsu krankleikum þegar annað og ódýrara lyf kæmi aö sama gagni. Rétt er aö taka fram að i flestum til- vikum eru íslensk lyf mun ódýrari en erlend. DV-Ljósm. Vilhjálmur. Lyfjabækurnar tvær Islenska lyfjabókin hefur verið í vinnslu hátt á annað ár og er hugsuð sem handbók fyrir almenning um öll þau lyf sem skráö hafa verið á Islandi miöað viö 1. janúar 1985. Lyfin eru flokkuð í stafrófsröð, getið um fram- leiöanda, innihaldsefni, form og gerð, notkun, algengustu skammtastærðir, þekktar aukaverkanir, ráð varðandi geymslu og aðrar ábendingar og vamarorð. Sérstaklega er tekiö fram í hverju tilviki hvort lyfið hefur sérstök áhrif á konur á meðgöngutíma og einnig hættur varðandi br jóstagjöf. Að auki er í þessari bók almennur fróðleikur um lyf, framleiöslu þeirra og mismunandi gerðir. Fjallað er um líkamann og starfsemi hans, hvaö verður um lyfin í Iíkamanum, eitranir af völdum lyfja og rétt viðbrögð í slíkum tilvikum. I lokin er skrá um flokkun lyfja eftir verkun og listi yfir framleiðendur. Lyfjabókin frá Isafoldarprentsmiðju er öðruvísi upp byggö og ekki endilega farið eftir lyfjaskránni sjálfri. I bókinni er einnig fjallaö um mörg lyf sem gerð eru í lyfjabúðunum eftir fyrirsögn lækna, hún greinir frá algengustu lyfjum og lyfjasamsetn- ingum á Islandi. I upphafi eru almennar upplýsingar um lyf, notkun þeirra og geymslu, reglur um af- greiðslu lyfja og síðan eru þeim gerð skil hverju og einu. Hvað þarna er á feröinni, til hvers þau eru notuð, hverjar hugsanlegar aukaverkanir eru og svo framvegis. Þessar tvær bækur eru að mörgu leyti talsvert ólíkar að gerð og grunn- hugsunin að baki ekki alveg sú sama. I Lyf jabókinni er flokkun aftast þar sem bæði er hægt að fletta upp lyfjaheiti og einnig heiti sjúkdómsins. Nýrna- sjúkdómar til dæmis eru í N-inu og þar stendur valið milli margra möguleika. Niöurröðun í Islensku lyfjabókinni er hins vegar eftir heiti lyfsins og þannig getur reynst erfitt að fletta upp á nýrum eða maga og panta lyf hjá lækninum samkvæmt eigin hyggjuviti. Sem var kannski alls ekki ætlunin heldur með þessu aukna upplýsinga- streymi. Reyndar hlýtur að reyna núna meira á þol læknanna að standast pillusuð þeirra sem „vita” alveg hvað er að þeim í maganum og öðrum likamshlutum. Ekkert krabbamein til? Einn reginmunur er á þessum tveimur bókum — í þeirri dönsku er ekkert undir k-inu sem heitir Krabba- mein. Sá sjúkdómur fyrirfinnst þar alls ekki og sýnist því að höfundur hafi ákveðið að halda sig við gömul viðhorf varðandi vald læknisins til að halda óþægilegum upplýsingum leyndum fyrir sjúklingnum. Ef hins vegar er leitað að heitum krabbameinslyfja í þeirri íslensku — lyfjum eins og Oncovin, Laukeran og Endoxan kemur í ljós að þau eru til þar líka. Og óþægilegar staðreyndir tíundaöar — Endoxan sagt notað við illkynja sjúkdómum, einkum eitlaæxlum, Hodkinssjúkdómi og hvítblæði. Einnig við æxlum í eggjastokkum, brjóstum og lungum. Um aukaverkanir segir að Endoxan valdi lystarleysi, ógleöi og tímabundnu hárlosi. Að auki er ýmis- legt talið upp, svo sem töluverð hætta á fósturskemmdum. Réttur sjúklings sem neytanda Þama er tekið miö af nýrri viðhorfum — rétti sjúklingsins sem neytanda til þess að fræðast um efnin sem honum er sagt að gleypa — kannski svo mánuðum og árum skiptir. Að sjálfsögðu er alltaf hægt að spyrja lækninn blákalt að þessu en það jafnast samt ekki á við að geta kynnt sér staðreyndimar sjálfur í ró og næði eftir að heim er komið. Fæstir vita svo mikið um lyf og verkanir þeirra að slíkar upplýsingar festist vel eftir eina læknisheimsókn. Báðar bækurnar eru vandaðar að allri gerð, fallegar í útliti og ekki frá- leitt aö nota þær saman sem uppsláttarrit. Uppbyggingin er svo ólík að í mörgum tilvikum bæta þær hvor aðra upp. Islenska lyfjabókin kostar 788 en Lyfjabókin 598 krónur. baj. Könnun á af- borgunarkaupum Neytendafélag Reykjavíkur og ná- grennis kannar þessa dagana hvemig er háttaö afborgunar- kaupum. Hringt verður í þúsund heimili og bornar fram nokkrar spurningar, m.a. um hvort einhver heimilismanna hafi keypt eitthvað með afborgunum sl. tólf mánuði. Reynt verður að fá fram hvort munur hafi verið á staðgreiðsluverði og afborgunarverði. Einnig verður spurt hvort einhver hlutur yfir ákveðnu verðmæti hafi verið keyptur á þessu tímabili gegn staögreiðslu. Neytendafélag Reykjavíkur fer þess á leit við íbúa höfuðborgar- svæðisins, sem hringt verður í, að taka þeim sem annast könnun þessa með skilningi og þolinmæöi. Fyllsta trúnaðar verður gætt. Nánari upplýsingar eru veittar í síma Neytendasamtakanna, 21666, kl. 10— 12.30 virkadaga. A.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.