Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 18
18 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985. DVíBelfast: Tveir breskir hermenn ganga varkárir um strœti í bæ fyrir utan Belfast þar sem bæði búa kaþólikkar og mótmælendur. DV-mynd ÞÓG. Breskar hríðskotabyssur gæta f riðarins í Belfast Götur Belfastborgar eru auðar á grámóskulegum sunnudagsmorgni í apríl. Hið eina sem rýfur kyrrð helgi- dagsins eru drunumar í gráum herjeppum sem þjóta á milli 19. aldar bygginganna í miðbænum. I jeppunum sitja hermenn með stórar og klunna- legar hríðskotabyssur og stara út, viðbúnir ónotayrðum, steinum eða kúlum. Það er sunnudagsmorgun í Belfast. AUt er hljótt. Jámhlið mikil loka götum þar sem em mikilvægar stjórn- arskrifstofur og uppáhaldsskotmörk hryðjuverkamanna hins kaþólska Irska lýðveldishers. Jafnvel í kringum einstaka kirkju má sjá háar gadda- vírsgirðingar. Jafnvel guðshús sleppa ekki við árásir í þessu eUífa stríði sem kennt er við trúarstríö miUi kaþólikka og mótmælenda á Norður-írlandi. A sunnudagsmorgni vakna menn í úthverfum Belfast til lífsins, kaþóUkk- ar í sínum húsum, í sínum hverfum; mótmælendur í sínum. Sprengihætta Þegar kaþólikkar vakna þennan sunnudagsmorgun, sem reyndar er páskadagur, fara þeir að undirbúa kirkjuferð. Eftir messuna er farið í skrúðgöngu tU að minnast páska- uppreisnarinnar 1916, þegar hópur bjartsýnna Ira reyndi að bylta stjóm Breta á Irlandi, árangurslaust. Mótmælendur fara í kirkju en síðan heim. Hermennirnir koma sér fyrir á stöðum þar sem kunna að verða vandræði. Byssumar em mundaðar. AndUtin eru svipbrigöalaus og augun leita varkár að einhverju grunsamlegu. Þegar blaöamaöur DV leggur bíl sínum á stað þar sem ekki má yfirgefa bíla kallar hermaður á hann úr jeppa og útskýrir kurteislega að þarna megi ekki skilja bíla eftir. Hvers vegna? Vegna sprengihættu, svarar her- maðurinn undrandi en með skUningi þegar hann heyrir að bílstjórinn talar ekki með írskum hreim. En honum hafði greinilega ekkert Utist á bU- númerið sem var frá hinu kaþólska írska lýðveldi í suðri. Þumallinn niður Þeir vom fleiri sem leist Utið á það númer. Blaðamaður var rétt nýkominn yfir landamærin tU Noröur- Irlands er bíU, sem á eftir keyrði, blikkaði hann meö ljósunum. Þegar blaðamaöur hægði ferðina, í þeirri trú að þetta væri lögregla eða herjeppi fyrir aftan, lagðist blikkarinn á flautuna og brunaði fram úr. I aftur- glugganum sást unglingur beina þumalfingrinum niður aö bíl blaöa- manns með suöur-írska númerinu. Mótmælendur í meirihluta Afstaða mótmælenda á Norður- Irlandi gagnvart lýðveldinu í suðri byggist á innflytjendahugarfari minnUilutahóps sem vill allt gera til að afstýra því að hann verði kaþólska meirihiutanum aö bráð. I Norður- Irlandi em mótmælendur í meirihluta og því hafa þeir litinn áhuga á sameiningu viö ríki þar sem þeir yrðu minnihluti. Hugsun kaþólikkanna er einmitt andstaðan við þetta. Þeir vilja sameinast trúbræðrum sínum í suðri og losna þannig við yfirgang mót- mælenda sem láta hatur sitt á suörinu oftbitnaáþeim. Trúarstríð? Er þetta þá trúarstríö? Nei, fyrst og fremst stendur styrinn á milli afkomenda innfluttra Breta og þeirra Ira sem gengu í lið meö þeim og svo írskra frumbyggja sem neituðu að gangast undir bresk yfirráð og trúar- skiptin sem því fylgdu. Trúardeilumar koma til sögunnar aðallega sem tákn hvors hópsins fyrir sig; mótmælendatrúin sem sam- einingartákn Bretasinna og kaþólskan lýðveldissinnanna. Þessi trúartákn hafa svo magnað deilurnar upp í hatur og ofstæki — og blindu á málstað and- stæðingsins. Þessa blindu sá ég þegar ég hlustaði á mótmælanda segja mér frá ástandinu í Dublin, höfuðborg írska lýðveldisins. Hann sá þar ekkert jákvætt. Glæpir tröllriðu þar öllu. Ekki mætti skilja þar eftir bíl án þess að koma svo að honum ónýtum. Mótmælendaprestur hrakinn burt Blindan kom einnig fram í þessum mánuöi þegar mótmælendaprestur var hrakinn burt úr sókn sinni eftir að hann predikaöi í kaþólskri kirkju. En sú saga gefur þó líka vonarglætu um að ekki séu sættir óhugsandi. Sagan hefst árið 1981 þegar sprengja skaddaði kaþólska kirkju í Limavadi á Norður-Irlandi. Talsverð andstaða hafði verið meðal mótmælenda í þessum 11.000 manna bæ. Mótmælendapresturinn David Armstrong lýsti yfir samúö með kaþólikkum í bænum og kom fram í sjónvarpi með kaþólskum biskupi. Hann sagði að ef sprengingin hefði verið gerð í nafni mótmælenda- trúarinnar, þá skammaðist hann sín. „Þessu var ekki tekið vel,” segir Kevin Mullen, presturinn við kaþólska kirkju í Limavadi. „Svona nokkuð bara gerir maður ekki í þessum heims- hluta.” En um jólin áriö 1983 ákvað Mullen að gera sitt til að stuöla að sáttum trúarhópanna tveggja. Hann gekk yfir að kirkju mótmælenda til að hlýða á messu. Honum var strax boðiö aö halda ræðu sem var mjög vel tekið. Eftir messuna fór svo mótmælenda- presturinn Armstrong og talaði til kaþólikka. Þeir tóku honum jafnvel og mótmælendur höfðu tekiö kaþólska prestinum þeirra. Áflog En þegar prestarnir tveir ákváðu að endurtaka þetta á jólunum í fyrra voru harðlínumenn mótmælenda viðbúnir. Þeir mættu 40 saman og stóðu vörð fyrir utan mótmælendakirkju Armstrongs. Þegar kaþólikka- presturinn Mullen kom að var honum hleypt í gegn. En þegar hann hóf að tala voru þrír menn meö frammíköll og læti. Aflog brutust út og messan var eyðilögð. Fyrirliði óeirðaseggjanna var séra Wesley MacDowell, úr hópi Irans Paisley. „Þegar kaþólikkar tala um sættir þá eiga þeir raunverulega við að snúa mótmælendum aftur til sín,” sagði MacDowell. Eftir þessa atburði var farið að gera aðkast að mótmælendaprestinum Armstrong. Börn hans sluppu ekki einu sinni og voru lögð í einelti. Armstrong flúði og er nú prestur í Ox- fordáEnglandi. Studdu Armstrong Söfnuði hans í Limavadi fannst hann hafa yfirgefið sig. „Við vissum ekki við hvílíkan þrýsting hann mátti búa fyrr en vikuna sem hann fór. Og þá var það of seint,” segir kona sem sagði sig úr kirkjustjórninni vegna þess hvernig fariö var með sáttaprestinn. Hún segir aö 70 prósent safnaðarmeðlima hafi stutí Armstrong.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.