Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1985, Blaðsíða 4
4
DV. MANUDAGUR3. JUN! 1985.
Vlgdls Flnnbogadóttlr og Ragnhlldur Helgadóttlr voru béðar vlö opnun aýnlngarinnar FJórlr
frumherjar I Llataaafnl ialands é laugardag. DV-mynd KAE
„Ómetanleg gjöf”
Finnur iónsson og Guðný Elísdóttir gáfu Listasaf ni íslands
á þriðja hundrað mynda
„Þetta er alveg elnstakt og miklll
fengur fyrlr safniö,” sagöi Selma Jóns-
dóttir, forstööumaöur Listasafns
Islands, í samtali viö DV.
Um helgina, þegar minnst var
hundrað ára afmælis Listasafns Is-
lands, var tilkynnt um höföinglega gjöf
þeirra Finns Jónssonar málara og
Guönýjar Elísdóttur, konu hans. Þau
hjón gáfu safninu 209 listaverk eftir
Finn og ánöfnuöu safninu enn fleiri
myndir eftir þeirra dag.
„Þetta er alveg ómetanleg gjöf,”
sagöi Selma, „og sýnir stórhug þeirra
hjóna.” -KÞ
„Ævintýralega — segirdr. Selma
falleg sýning” sýningu Listasaf nsins
„Þetta er ævintýralega falleg
sýning,” sagði Selma Jónsdóttir, for-
stööumaður Listasafns Islands, um
sýninguna Fjórir frumherjar í ís-
lenskri myndlist sem opnuð var um
helgina í tilefni af aldarafmæli safns-
ins.
A sýningunni eru sýnd 111 verk
þeirra Þórarins B. Þorlákssonar,
Asgríms Jónssonar, Jóns Stefáns-
sonar og Jóhannesar Kjarvals. A
opnuninni var frumflutt verkiö Alda-
mót eftir Atla Heimi Sveinsson fyrir
strengjasveit, sérstaklega samiö af
þessu tilefni.
Þá er afmælisins einnig minnst
með útkomu bókarinnar Listasafn
Islands 1884 til 1984. Hún er prýdd 167
litmyndum af öndvegisverkum
íslenskrar myndlistar auk fjölda
svarthvítra mynda. I bókinni er skrá
yfir öll verk safnsins, gefendur
þeirra, svo og allar sýningar sem þar
hafa verið haldnar síðan 1950. Sá
Jóhannes Jóhannesson um bókina
auk fjölda annarra sem lögöu hönd á
plóginn.
Sýningin stendur i þrjá mánuöi.
-KÞ
Bruni við Þingvallavatn
Nærriláaöillafæri þegar kviknaöi í
bátaskýli viö Þingvallavatn á laugar-
dag. Slökkviliö Selfoss kom á staöinn á
elleftu stundu og gat forðað sumar-
bústaö frá eldinum þótt bátaskýliö
brynnitil grunna.
Það var um miöjan dag sem tiikynn-
ing barst um elcUnn í bátaskýli við
ölfusvatnsvik. Tilheyrir skýlið sumar-
bústaö sem þar er i næsta nágrenni, en
þar dvöldu tvær konur ásamt nokkrum
bömum. Brann skýlið til grunna, svo
og bátur sem þar var og heimilisraf-
stöö. Sumarbústaðurinn sviönaöi tals-
vert og rúöur sprungu. Fólkiö sakaöi
ekki.
Er taiiö aö kviknaö hafi í út frá ljósa-
vél sem var í gangi í skýlinu. -KÞ
ASÍ á f und
vinnuveitenda
„Við höfum beðiö um fund með
Vinnuveitendasambandinu, hvort hann
verður síödegis i dag eöa á morgun
veit ég ekki, ” sagöi Asmundur Stefáns-
son aö afloknum fundi formanna lands-
sambandaASI.
Formennimir funduðu á laugardag-
inn og hittast aftur á morgun. Aö þeim
fundi loknum verða vinnuveitendur
heimsóttir. „I þeim viöræöum munum
við leggja aöaiáhersluna á trygga
kaupmáttaraukningu,” sagöi
Ásmundur Stefánsson.
-EIR.
Þaö var annasamt hjá forseta
Islands á laugardag. Auk þess aö vera
viö opnun afmælissýningar Listasafns
Islands afhenti Vigdis 100 trjáplöntur i
landi Skógræktarfélags Kópavogs viö
Fossá í Kjós. Trjáplöntur þessar gaf
Koivisto Finnlandsforseti Islendingum
þegar Vigdís var þar í opinberri helm-
sókn ekki alls fyrir löngu.
-KÞ/DV-mynd KAE
Mikil ölvun og
fangageymslurfullar
Mikil ölvun var í Reykjavik um
helgina og vom fangageymslur
lögreglunnar nær fullar alia helgina.
Aöfaranótt laugardags var bil stolið i
vesturbæ. Vom tveir menn þar á ferð.
Þegar átti að stööva þá mku þeir af
staö og óku um vesturbæinn með lög-
regluna á hælunum. Endaði ökuferöin
á ljósastaur við Túngötu. Slasaðist
ökumaöurinn, en þó ekki alvarlega.
Gistu mennirnir fangageymslur
lögreglunnar um nóttina ásamt fjölda
annarra.
-KÞ
I dag mælir Pagfari______________I dag mælir Dagfari___________I dag mælir Dagfari
Ráðgjafi starfsmanns nefndarinnar
Eins og alþjóð er kunnugt hafa
tslendingar það fyrir sið að leysa öll
sin vandatnál í nefndum. Jafnskjótt
ogeltthvert mál ber á góma er skipuð
nefnd og í sjálfu sér er það aukaat-
rlði hvort nefndln skllar af sér eða
ekki. Aðalatriðlð er að koma málum i
nefndir, enda er það lausn út af fyrlr
slg. Mál leysast stundum af sjálfu
sér og það jafnvel löngu áður en
nefndiraar era leystar upp. Yfirleitt
þykir það fint að komast í nefndir,
enda ráðast mannvlrðlngar af þvi í
hversu mörgum nefndum tslending-
ar era. Þannig ber tll að mynda
Jóhannes Nordal höfuð og herðar
yfir aðra ianda sina vegna þeirra
nefndarstarfa sem hann hefur innt af
höndum um dagana. Hann er hlnn
ókrýndi nefndakóngur.
Nú er það svo að menn hafa tekið
sætl í nefndum vegna þeirrar
virðlngar sem þvi fylgir. Opinberar
nefndir hafa sjaldnast verið vel
launaðar, og er svo enn. Nú fyrir
helgina var það raunar staðfest,
þegar spurt var um nefndarlaun
álviðræðunefndar og stóriðjunefnd-
ar, að óbreyttlr nefndarmenn þiggja
skítaiaun fyrir púlið. Hlns vegar
hafa þeir séð sér lelk á borði, og hafa
ráðið sig sem starfsmenn nefndanna
og síðan hafa þeir ráðlð sig sem ráð-
gjafa starfsmannanna! Þegar einn
og saml maðurinn er orðinn að ráö-
gjafa sjálfs sín og starfsmaður sjálfs
sín í nefnd sem hann sltur sjálfur i,
þá fer auðvltað að vænkast hagur
nefndarmanna hins oplnbera.
Nefndarmaðurinn fær þóknun fyrir
að mæta á fundi tll aö ráða sjáifan
slg upp á kaup sem starfsmaður og
síðan sest starfsmaðurinn niður og
ræður sjálfan sig sem ráðgjafa sjáifs
sín fyrir kaup sem ráögjafi. Þetta er
vitaskuld afar heppllegt fyrirkomu-
lag, sérstaklega vegna þess að ráð-
gjaflnn fær meira kaup en starfs-
maðurinn og starfsmaðurinn melra
kaup en nefndarmaðurlnn. Og
nefndarmaðurlnn lætur sér það vel
lika, því allt er þetta einn og sami
maðurinn. Til að þessl hringekja hafl
eitthvað upp úr sér leggur ráðgjafinn
til vlð starfsmanninn að málum sé
drepið á drelf og nefndarstarfið
haldi áfram. Starfsmaðurinn sam-
þykkir þessi ráð ráðgjafans og legg-
ur til við nefndina að málum sé
drepið á dreif og nefndarstörfum
verði haldlð áfram. Og þar sem
nefndarmaðurinn er saml maðurinu
og starfsmaðurinn og ráðgjafinn er
þessi tiilaga samþykkt í einu hljóðl.
Síðan leggur nefndarmaðurinn til að
starfsmaðurinn haldi áfram störfum
sínum og starfsmaðurlnn mælist til
þess að ráðgjafinn veiti sér áfram-
hnlrinnHI aðstoð og þá er hringnum
lokað.
Þetta er hið ábatasamasta starf.
Samkvæmt upplýslngum iðnaðar-
ráðherra hefur hver nefndarmaður,
starfsmaður og ráðgjafi samtals
launaþóknun upp á 40 til 50 þúsund
krónur á mánuði, sem kemur sér vel
þegar nefndarmaðurinn, starfs-
maðurinn og ráðgjafinn er elnn og
sami maðurinn.
Dagfari vill komast í svona nefnd.
Hann leggur reyndar til að sem
flestir launamenn komist i eina eða
aðra nefnd hjá hinu opinbera. Þá
leggjast verkföll niður, þras um
kjarasamninga og eltingarleikur við
kaupmátt. Ur þvi alþingismenn og
„full time” verkfræðingar, seðla-
bankastjórar og lögfræðlngar í
praksis hafa tíma til að sinna
opinberum nefndarstörfum í
framhjáhlaupi upp á 50 þúsund
krónur á mánuði ætti almennum
launamönnum ekkl að vera skota-
skuld úr að gera hB sama, sérstak-
lega þegar nefndarmenn hafa
möguleika til að ráða sjálfa slg i
vinnu. Dagfari leggur tll að hið
opinbera skipi nefnd i málið og ráðl
sér starfsmann sem ráðl sér
ráðgjafa sem leggi til að nefndin
haldi áfram störfum.
Dagfari