Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Síða 9
DV. FÖSTUDAGUR 28. JÚN! 1985. 9 Útlönd Utlönd SAKHAROV MEÐ PARKINSONSVEIKI OG HJARTVEIKUR — samkvæmt nýlegri kvikmynd af honum sem þýskt dagblað segist hafa undir höndum Vestur-þýskt dagblað segist hafa tvær nýlegar kvikmyndir af sovéska andófsmanninum Andrei Sakharov. Blaðið Bildzeitung segir að á myndun- um sé Sakharov augljóslega heilsulitill og í meöferð á læknisstofu. Dagblaðið segir að í einni kvikmynd- inni skýri sovéskur læknir frá því að Sakharov hafi alvarleg hjartavanda- mál og Parkinsonsveikina. Samtals segist blaðið hafa kvik- myndir sem spanna yfir 75 mínútur. Ef rétt er þá eru þær fyrsta vísbendingin um heilsu Sakharovs síðan sovéski blaðamaðurinn Viktor Louis fór með kvikmynd sem hafði verið tekin leyni- lega af Sakharov til Vesturlanda fyrir 10 mánuöum. Dagblaðiö segir aö þessar nýju myndir séu flestar teknar leynilega í gegnum spegla sem hægt er að sjá í gegnum á annan veginn. I annarri myndinni má sjá konu Sakharovs, Yelenu Bonner, með honum á meðan læknir athugar hann. Síðan er viðtal við lækninn fyrir framan myndavélina. Þessir hlutar myndarinnar eru í svart-hvítu. Lit- mynd sýnir Sakharov-hjónin boröa, gera æfingar og lesa eintök af vestræn- um f réttatímaritum sem þau f á. Sakharov sést einnig rífa af dagatali sínu. Síðasti dagurinn er 14. júní. Tímaritin voru dagsett 27. maí og 3. júní. Blaðið Bildzeitung sagði ekkert um hvernig það hefði komist yfir kvik- myndafilmurnar. Andrei Sakharov og kona hans Yelena Bonner í íbúð þeirra i Gorky þar sem Sakharov er í útlegð. Eanes ákveður að rjúfa þing Antonio Ramalho Eanes, forseti hefði ákveðið að rjúfa þing og efna til Portúgals, lýsti yfir því í gær að hann þingkosninga. Þar með er endi bund- inn á óvissu undanfarinna tveggja vikna eftir aö ljóst varð að stjómar- samstarf sósíalista og sósíaldemó- krata var brostið. Þingið verður rofið eftir að það hefur samþykkt samninginn um inngönguna í Evrópubandalagið. Ræöa á um þann samning 10. júli. Stjóm sósíalista og sósíaldemókrata mun sitja áfram þangaö til þing verður rofið. Eanes sagöist mundu líta á boö Soaresar forsætisráöherra aö segja af sér þegar að því kæmi. Hann sagði ekkert um hvenær þingkosningar myndu fara fram. Búast má þó við að þaðverðiíoktóber. Forsetakosningar verða í lok ársins. Eanes ætlar afl rjúfa þing og efna til Mario Soares hefur, aö því er menn kosninga strax eftir samþykkt inn- halda, þegar ákveðið að bjóða sig fram göngunnar í Evrópu-bandalagið. . í þeim. f... Nýkomin furu-borðstofuhúsgögn Borð og fjórir stólar. Verð aðeins kr. 18.500.- Opið til kl. 21 í kvöld. * Vershð þar sem úrvalið er mest og kjörin best. V. Jli A A A A A A Jón Loftsson hf. __ Hringbraut 121 . occ'd zi auoa. .__ = _ u uianaiBiutiiidi iiaii, Sími 10600 Viðleguútbúnaður og garðhúsgögn í miklu Úrvali. Hagstætt verö. Eyjaslóð 7, Reykjavik Póslhólf 659 Simar 14093 • 13320 Nafnnr. 9879 -1698 Samkvæmistjöld fyrir félagasamtök, ættarmótin, garðveisluna, skátana og sem sölutjöld. 22.260. 31.360. 40.460. Montana, 4ra manna, verð kr. 14.950. TJALDSÝNING verður haldin í Seglagerðinni Ægi um helgina 28.—30. júní. 1—26 manna hústjöld, Ægistjöld, göngutjöld og samkvæmistjöld. 5 manna tjald, verð kr. 7,669,- fleygahiminn, verð kr. 8,688,- Hellas, 2ja manna, kr. 2.730. 3ja manna kr. 3.550.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.