Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Blaðsíða 17
DV. FQSTUDAGUR 28. JUNI1985.
17
Lesendur
Lesendur
Pétur Óskarsson spyr hvort ekki sé full óstœða til að lóta fara ofan I saum-
ana é rekstri Sildarvinnslunnar í Neskaupstað.
Rekstur Síldar-
vinnslunnar
Pétur Öskarsson, Neskaupstað,
hringdi:
Sildarvinnslan i Neskaupstað hélt
aðalfund sinn um daginn. Þar kom í
ljós að tap verksmiðjunnar var 80 til
100 milljónir. Þetta er annað árið í röð
sem verksmiðjan er rekin með tapi.
Þetta hefur, mér vitanlega, ekki komið
framífjölmiðlum.
Mig langar til að spyrja þá sem
standa að rekstri verksmiðjunnar
hvernig staðiö geti á því að fyrirtæki sé
rekið með þessum halla í tvö ár í röð á
meðan sambærileg fyrirtæki á Akur-
eyri og Fáskrúðsfirði eru rekin með
hagnaði. Þetta er manni því meira
undrunarefni vegna þess að Síldar-
vinnslan hefur undanfarið ár stundaö
það að sigla með afla, sem þýðir að
verðið er þrefalt! Auk þess fær verk-
smiðjan olíu með 30 til 40 prósent af-
slætti.
Er ekki f ull ástæða til þess að fá Hag-
vang til að fara ofan í saumana á
rekstri Síldarvinnslunnar?
Athugasemd frá Síldarvhmslunni hf.:
Engum, sem fylgist með fréttum,
þarf að koma það á óvart að tap skuli
hafa verið á rekstri útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækja á síðasta ári. Áreið-
anlega hey rir það til undantekninga að
slík fyrirtæki hafi skilað hagnaði á ár-
inu 1984. Það eru bara fyrirtæki, sem
lítið hafa fjárfest á síðustu árum og
skulda lítið, sem geta náð þeim
árangri. Stjórnvöld drógu það fram í
nóvember að gera nauðsynlegar breyt-
ingar á gengisskráningu. Utflutnings-
fyrirtækin urðu að taka á sig allar inn-
lendar kostnaöarhækkanir á árinu, þó
að tekjur þeirra hækkuðu ekkert á
sama tíma. Þá skekkir þaö myndina
að við gengisbreytinguna kom fram
mikið gengistap hjá skuldurum af-
urðalána og annarra erlendra lána.
Það tap er fært til gjalda á rekstrar-
reikningi. A móti skal færa til tekna
reiknaöar tekjur vegna verölagsbreyt-
inga en þær voru talsvert minni en
gengistapið, þar sem verðlagsbreyt-
ingar vegna gengisfellingarinnar og
launasamninganna í nóvember koma
ekki að f ullu fram fyrr en á þessu ári.
Rekstrarvandamál sem snerta Síld-
arvinnsluna sérstaklega verða ekki
leyst í fjölmiðlum. Þau eru og hafa ver-
ið til meöferðar hjá stjóm og fram-
kvæmdastjórum fyrirtækisins. Það
kom fram á aðalfundi Síldarvinnslunn-
ar, sem haldinn var8. júní siðastliðinn,
að á síðasta ári var 94 milljóna króna
tap á rekstri fyrirtækisins. Þrátt fyrir
það er eiginf járstaða fyrirtækisins síst
lakari en gengur og gerist hjá fyrir-
tækjum í sjávarútvegi.
F.h. Síldarvinnslunnar hf.
Guðjón Smári Agnarsson.
r
Lesendur Lesendur
Lesendur
Bilaöar tölvur í
Bifreiðaeftiriitinu
Blfreiðaeigandl hringdl:
Ég var í Bifreiöaeftirliti rikisms sl.
fimmtudag og ætlaði að láta skoöa bil-
inn minn. Það gekk nú ekki betur en
svo aö ég varð frá að hverfa vegna
bilana í tölvukerfinu hjá eftirlitinu.
EinsogaUirvita er Bifreiöaeftirlitið
uppi á Artúnshöfða og voru margir bif-
reiöaeigendur komnir þangaö meö allt
það pappírsflóö sem fylgir þvi að fara
meö bíl í skoöun. En þegar tölvan
stoppaði þá stoppaði skoðunin lika svo
þeir sem eftir voru þurftu frá að
hverfa. Margir voru æfir út af þessu
sem er skiljanlegt því svona lagað
getur komið sér mjög Uia fyrir fólk.
Það er gott og blessað að tölvuvæöa en
cr það ekki gert til þess að flýta fyrir
ogbæta þjónustuna?
Hér gengur shoöunin klaMdaust
fyrir sig aö þvi er virðist en það
gekk ekki e*ns vel hjá bifreiöa-
eigandanum sem lenti í tölvu-
biluninni.
BIFREIÐASKOÐUN
OG TÖLVUBILUN
Guðni Karlsson hjá Bifreiðaeftlrliti
rikisins hringdi:
Vegna fullyrðingar á lesendasíðu DV
fyrir skömmu þess efnis að bilun í
tölvu hafi komið í veg fyrir aö við-
skiptavinur fengi skoðun langar mig til
að taka eftirfarandi fram:
Ef viöskiptavinur hefur alla pappíra
í lagi þegar hann kemur með bil til
skoðunar fær hann skoðun hvort sem
tölvan er í lagi eða ekki. Ef hann á hinn
bóginn hyggst umskrá bifreið, útbúa
þarf nýtt skráningarskírteini eða ann-
að þess háttar getur verið nauðsynlegt
að ná í upplýsingar úr tölvunni og bilun
í henni getur því komið í veg fyrir eöli-
legaafgreiðslu.
\
PLASTHÚÐUN FASTEIGNA
ÞÖK:
SVALAGÓLF:
Kemperol: Fyrir erfiðu pappaþökin og svalirnar, einnig þak-
rennur.
Fillcoat: Fyrirleku bárujárnsþökin. 1300% teygjuþol.
VEGGIR: Murtill: Gúmmíteygjanleg plastfilma fyrir steypta veggi.
DEK: Gefur vatnsþétta munsturmeðferð utanhúss.
I | i. I
tittnmi!
| I I l • ! • :.................................................... ...........................I I i I I ! I
SÍMAR 52723-54766
IREYKJAVIKURVEGI 26-28!!! 220 HAFNARFIRDI
s
úll verð eru staðgreiðsluverð.
Útborgun frá 8.000 kr. og eftirstöðvar á 6 mán,
Sjónvarpsdeild,
Skipholti 7, símar 20080 og 26800.