Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Síða 18
íþróttl íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir Allt að fara í hund og kött hjá Víkingum Ogmundur Kristinsson markvörður hættur. Mikiil fjárhagsvandi, félagsheimilið á nauðungaruppboði. Vandinn ekki minni utan vallar en innan Mikill hóvaði er nú innan knatt- spyrnudeildar Víkings og andinn á núllpunkti. Svo virðist sem ekki séu allir leikmenn liðsins á því að Björn Árnason verði áfram þjáifari liðsins. Samkvsmt heimildum DV er mikil óónægja meðal leikmanna með störf Björns en hann var ráöinn aftur fyrir nokkrum dögum eftir að hafa veriö rekinn í nokkrar minútur. Nú hefur ögmundur Kristinsson markvörður ákveðið aö hætta að leika með liðinu. ögmundur var settur út úr Víkingsliðinu fyrirvaralaust fyrir leik- inn gegn FH og mun honum hafa mis- líkað sú framkoma þjálfarans. Þórður Marelsson var heldur ekki meö Víking- um gegn FH og mun ástæðan hafa ver- iö sú að hann sló til Björns þjálfara þegar honum var skipt út af í leik Vík- inga gegn þrótti á Laugardalsvelli í næsta leik ó undan FH-leiknum. Allt virðist vera á niðurleið hjá Víkingum þessa dagana og ekki ein- ungis að leUtmenn iiðsins nái sér ekki á strik heldur virðist stjómin utan vallar vera í lamasessi. Víkingar eru eflaust eina liðið i deildakeppninni í knattspyrnu sem ekki leikur með auglýsingar á búningum sínum. ÖDum Reykjavíkurfélögunum var gefinn kostur á því að setja upp auglýsinga- skilti á Laugardalsvelli og nýttu öll lið- in sér þennan tekjumöguleika nema Víkingar. Ekkert virðist vera gert til að afla fjár til starfseminnar og er fjárhagsstaða Víkinga mjög slæm um þessar mundir. Meira að segja fé- lagsheimiU félagsins við Hæðargarö hefur verið auglýst á nauðungarupp- boði. Og það kann ekki góðri lukku að stýra þegar höfuðstöðvar félagsins liggja undir hamrinum. Mikill hávaði varð um daginn þegar DV skýrði frá því að Björn Árnason, þjálfari meistaraflokks, hefði veriö rekinn frá félaginu en síðan ráðinn aft- ur stundu síðar. Forráðamenn fé- lagsins urðu æfir. Samkvæmt áreiöan- legum heimildum DV ákvað stjórn knattspyrnudeildar aö láta Bjöm fara sem þjálfara og var Guðgeiri Leifssyni falið að segja Birni upp störfum. Heimildarmaður okkar sagði að Guð- geir hefði síðan klúörað þessari ákvörðun stjómar knattspyrnudeildar á fundi meö Birni daginn eftir og Bjöm er því enn í starfi sem þ jálfari Víkings. Af ofangreindu má vera ljóst að mikil upplausn ríkir hjá þessu stór- veldi i knattspyrnunni síðustu árin en vonandi tekst Víkingum að rétta úr kútnum í framtiðinni, utan vallar sem innan. -SK. KÖLD VATNSGUSA Það getur flest skeð í knattspymunni — taugamar oft viðkvæmar. Myndirnar að ofan eru frá knattspyrnuleik á ítaliu milli áhugamannaliða Povigliese og Emilia Romagna. Sjúkraþjálfari Povigliese, Attilio Benassi, hljóp inn á leikvöllinn i óleyfi dómarans, Foti frá Bologna, og dómarlnn vísaði honum út af. Herra Benassi brást hinn versti við, skvetti fyrst úr vatnsfötunni yfir dómarann og lét síðan fötuna vaða á eftir honum. En myndirnar skýra þetta betur en nokkur orð. Því má bæta við að Povigliese sigraði, 2—0. Þjálfarinn hefði þess vegna getað verið rólegur. DV. FÖSTUDAGUR 28. JUNI1985. DV. FÖSTUDAGUR 28. JUNI1965. Einar kastaði 90,54 m en Petranoff var betri Stórkostlegur árangur á Bislett-leikvanginum í Osló í gær Frá Jóni E. Guðjónssyni, fréttamanni DVÍOsló: „Þetta er betri árangur en ég þorði að vona fyrir mótið en það má alltaf reikna með því að Tom Petranoff, fyrr- um heimsmethafi, nái einu sterku kasti. Það gerði hann í fimmtu umferð- inni, 91,56 m, og sigraði með þvi á mót- inu,” sagði Einar Vilhjálmsson eftir að hann hafði orðlð annar á Osló Games hér á Bislettleikvanginum í gærkvöldi. Náði mjög góðum árangri, 90,54 m, þó ekki dygði það til sigurs. Það var greinilegt að Einar átti hug og hjarta áhorfenda, sem f jölmenntu á Osló-leik- ana. Hrifningarstunur komu frá áhorf- endum þegar hann kastaði. „Já, þetta var betra en ég hafði búist við. Það er erfitt aö keppa svona tvo daga í röð og löng ferðalög á milli. Eg fann fyrir þreytu enda er þetta áttunda mótið hjá mér á 16 dögum. Keppnis- aöstaöan var ekki alveg upp á þaö besta fyrir mig. Sterkur vindur frá hægri sem er betra fyrir þó rétthendu. Það er engin skömm að tapa fyrir Petranoff,” sagði Einar ennfremur og var mjög hress. Eftir níu sigra í röð varð hann að láta sér nægja annað sætiö og tapaði fyrir manni sem kastað hefur lengst tæpa 100 metra. Þetta var hins vegar fyrsti sigur Petranoff á Einari í ár. Alltaf erfiður „Við Einar Vilhjálmsson erum góðir vinir og það er alltaf erfitt að vinna hann. Hann á svo jöfn köst,” sagði Tom Petranoff eftir keppnina. Hann náði besta kasti sínu i 5. tilraun, 91.56 m. Atti tvö köst um 87 m og eitt 85 m kast. Tvö voru ógild. Kastsería Einars var 89,28, 85,04 og 90,54 en þrjú síðustu köstin ógild. ,jEg er búinn að setja mér takmark í sumar og það takmark er aö Agnar Sigurðsson sóst hór skora annafl mark sitt i laiknum við Hollend- inga. DV-mynd Brynjar Gauti B-liðið vann Hollendingana Leikur b-liðsins íslenska við hol- lenska landsliðið var ailan limaim mjög jafn. I hléi hafði Holland yfir, 14—13, og Hoilendingar juku þann mun í þrjú mörk, 20—17, í seinni hálfleiknum. Is- lendingar vöknuðu þó til lifslns í tæka tíð og tókst að tryggja sér sigur, 28—25. Bjami bestur hjá Brann — en það nægði ekki gegn Lilleström Landsliðsmarkvörðurinn Bjarni Sig- urðsson var besti maður Brann þegar liðið lék í Björgvin við Lilleström f 1. deildinni norsku á mánudag, að sögn norska Dagblaðsins. Hann gat þó ekki komið í veg fyrlr sigur Lilleström, fékk á sig eitt mark, sem Gunnar Halle skoraði. Bjarni kom hins vegar i veg fyrir miklu stærra tap og hafði nóg að gera í markinu. Vörn Brann oft grátt leikin. Við sigurinn komst Lilleström í efsta sætið en staðan er þannig. Lilleström Rosenborg Viking Bryne Válerengen Brann Kongsvinger Molde Start Mjöndalen Moss Eik -hsím Hermundur Sigmundsson átti mjög góðan leik og þaö sama er reyndar hægt að segja um þá Hilmar Sigur- gíslason og Steinar Birgisson. Af einhverjum ástæðum keppti landsliðið undir 21 árs ekki eins og greint hafði verið frá í flestöllum blöð- unum. Margir leikmanna b-liðsins eru reyndar einnig með landsliðinu. Hins vegar eru alltof margir „gamlir menn” til þess að sé hægt að tala um liðið sem unglingalið. Mörk tslands: Hans Guðmundsson 7/1, Hermundur Sigmundsson 7/5, Sig- urjón Guðmundsson 4, Steinar Birgis- son 3, Agnar Sigurðsson, Oskar Ár- mannsson og Sigurjón Sigurðsson 2, Guðmundur Albertsson 1. -fros slá Norðurlandametiö, 93,90 m,” sagði Einar. Einn annar Islendingur keppti í Osló í gær, Erlingur Jóhannesson sem þar er námsmaður. Hann hljóp í B-riðli 400 m hlaupsins á 48,52 sek. og bætti sinn besta órangur á vegalengdinni um eina sekúndu. Þetta mun vera þriðji besti árangur Islendings í 400 m í ár. Við heimsmetið Heimsmeistarinn enski, Steve Cram, hljóp 1500 m ó 3:31,34 mín. og mér fannst hann missa af heimsmeti. Hægði allt of mikið á síöustu 100 m þegar öruggur sigur var í höfn. Virtist ekki gera sér grein fyrir hve góöan tíma hann var með. Steve Ovett á heimsmetið 3:30,77 mín. og Sidney Maree, USA, hefur hlaupiö á 3:31,24 mín. Tími Cram í gær sá þriðji besti í heimifráupphafi. Þá reyndi ólympíumeistarinn Said Aouita frá Marokkó við heimsmetið í 5000 m hlaupi. Tókst það ekki en náði öðrum besta tíma frá upphafi, 13:04,52 mín. Aðeins heimsmet Dave Moorcroft, Engiandi, er betra, 13:00,41 mín. Einnig sett á Bislet-leikvanginum. Þar hafa veriö sett 42 heimsmet en ekkert féll í gær. Næsta stórmót þar veröur 27. júD, Bislett- leikamir og hefur Einari Vilhjálmssyni veriö boðið aö taka þátt í þeim. ! Helstu úrslit urðu þessi: 1500 m hlaup karla: mín. 1. Steve Cram, Bretlandi 3:31,34 2. Steve Scott, USA 3:54.58 3. JimSpivey, USA 3:35,15 4. Tik Hacker, USA 3:35,29 5. Chuck Aragon, USA 3:35,51 6. John Walker, N-Sjál. 3:35,78 800 m hlaup karla min. 1. JohnGray.USA 1:45,03 2. Moussa Fall, Senegal 1:45,45 3. P. Draqonescu, Rúmeníu 1:45,87 5000 m hlaup karla mí n. l.SaidAouita, Marokkó 13:04,52 2. Bruce Bickforf, USA 13:13,49 3. Jose Gonzales, Spáni 13:15,90 4. Vincent Rousseau, Belg. 13:18,94 | Spjótkast karla m 1. Tom Petranoff, USA 91,56 2. Einar Vilhjálmsson 90,54 , 3. Reidar Lorentzen, Nor. 84,56 i Kringlukast karla m 1. Knut Hjeltnes, Noregi 67,36 2. Imrich Bugar, Tékkósló. 65,42 i 3. Geza Valent, Tékkósló. 62,36 | 5000 m hlaup kvenna min. 1. Ingrid Kristiansen, Noregi 15:10,52 2. Aurora Cunha, Portúgal. 15:11,82 3. Rosa Mota, Portúgal 15:22,97 200 m hlaup kvenna sek. 1. Tatiana Kocemboba, Tékk. 22,92 2. Maree Chapman, Astralíu 23,31 400mhlaupkarla sek. 1. Darren Clark, Astraliu 45,15 2. Mike Franks, USA 45,16 3. Allan Slack, Bretl. 46,04 400 m grlndahlaup se^ 1. Rik Tommelien, Belgíu 50,14 2. ThomasNyberg.Svíþjóð 50,88 3. Petter Hesselberg, Noregi 50,97 Spjótkast kvenna 1. Fatima Whitbread, Bretl. 2. Trine Solberg, Noregi 3000 m hlaup karla 1. BillKrohn, USA 2. WilsonWaigwa,Kenýa • 3. Steve Plasenviaa, USA 4. Stig Roar Husby, Nor. Stangarstökk l.ScottDavis, USA 2. Kory Tarpemning, USA 3. Charles Suey, USA 4. Asko Peltoniemi, Finnl. m 72,12 61,52 mín. : 50,27 -.50,50 : 50,92 : 50,92 m 5,50 5,50 5,40 5,40 -hsim. Hohn kastaði 88,68 í gær Uwe Hohn, heimsmethafinn i spjót- kasti, sem Einar Vilhjálmsson keppir við 2. júli i Stokkhólmi, kastaði spjót- inu 88,68 m á móti í Austur-Berlin í gærkvöld. Petra Felke kastaði kvenna- spjótinu 74,90 m. Thomas Schönlebe hljóp 400 m á 45,49 sek., Udo Beyer varpaði kúlu 21,29 m og Ulf Timmer- mann 21,16 m en að öðru leyti var árangur heldur slakur. hsim. Toyota bifreið og demantshringar — meðalverðlauna Það veröur til míkUs að vinna fyrir þá kylf- inga sem mœta til leiks í opna GR-mótið í goUi sem hefst í Grafarholti á morgun. Þetta er annað stærsta mót sumarsins hjá kyUingum, aðeins landsmótíð er stærra. AUs verða veitt 52 verðlaun, aUt frá bifreið, svínsskrokkum og utanlandsferðum i demantshrínga. 24 efstu sætin verða verðlaunuð. Sá kyUingur sem fer holu i höggl á 17. braut á sunnudag fær giæsi- lega Toyota bUreið í verðlaun að verðmæti um 400 þúsund. Ohætt er að fuUyrða að verðlaun gerast ekki glæsUegri i goUmóti hór á landl. Fjölmörg aukaverðlaun verða veitt fyrir ýmsan árang- ur á stuttu brautunum, fyrir að vera næst holu ef tir teighögg og svo framvegis. Þetta er áttunda opna GR-mótið sem haldið er og er reiknað með hátt á annað hundrað keppendum. 1 fyrra voru þátttakendur 152. Leiknar verða 36 holur með forgjöf í punkta- keppni, 7/8 forgjöf. Hámarksforgjöf sem gef- in er verður 21 þannlg að mest er gefið eitt högg á holu. Tveir og tveir leika saman i liði. -SK. 12-1 á Skaganum Tvelr leikir voru í 1. deild kvenna í gærkvöldi. Á Akranesi vann lA Kefla- vík 12—1 og á Akureyri vann Breiða- blik Þór 6—1. Laufey Sigurðardóttir skoraði þrjú af mörkum lA — Eria Rafnsdóttir og Asta Maria Reynisdótt- ir skoruðu 3 mörk hvor fyrir Breiða- blik. Evrópumótið í golf i: Island lenti í 17. sæti og C-riðlinum „Það gekk ekki vel í gær. Við erum mjög óánægðir með þennan árangur. Það er meira i strákunum,” sagði Frí- mann Gunnlaugsson, fararstjóri ís- lensku golfmannanna á Evrópumeist- I aramótinu f Halmstad, þegar DV ræddi við hann í gærkvöldi. Island varð lí 17. sæti með 794 högg samtals í for- | keppninni og leikur því í C-riðli. Is- lenska sveitin lék á 396 höggum í gær j—398fyrridaginn. Þeir Hannes Eyvindsson og Sigurður Pétursson léku á 75 höggum í gær. Ulf- ar Jónsson á 81. Ragnar Olafsson á 82 og Sigurður Sigurðsson á 83. Þeir töldu en B jörgvin Þorsteinsson lék á 85 högg- um. I dag leikur Island viö Belgíu en Austurríki við Tékkóslóvakíu. Sigur- vegarar í þeim leikjum leika svo um 16. sætið. Þátttökuþjóðir eru 19. Svíþjóð náði bestum árangri í for: keppninni, 734 höggum. Danir urðu í öðru sæti með 742 og Spánn í þriðja, 747. Síðan var röðin: Irland 753, Eng- land 753, Frakkland 756, Skotland 760, V-Þýskaland 765, Finnland 767, Noreg- ur 768, Wales, 770, ItaUa 772, HoUand 776, Grikkland 780, Sviss 784, Austur- ríki 789, Island 794, Belgía 801 og Tékkóslóvakía 824. Bestum árangri einstakra leik- manna náðu Jesper Parnevik, Svíþjóð, 70 og 72, og Finninn Erkki Valimaa 67 og75. hsím. Heimsmet hjá Gross Þýski sundmaðurinn frægi, Michael Gross, setti í gær heims- met i 400 m skriðstundi á vestur- þýska meistaramótinu í Rem- scheid. Synti á 3:47,80 mín. og bætti eldra heimsmetið sem Viadimir Salnikov, Sovét, étti um 52/100 úr sekúndu. Gross bætti sínn besta tima á vegaiengdinni um nær fjórar sekúndur. Hann á einnig belmsmetin í 200 m skrið- sundi og 100 m flugsundi. hsim. „Bresku” liðin í úrslit Það verða AC Milano og Sampdoria sem leika til úrslita í ítöisku bikarkeppnlnni i knatt- spyrnu. Tveir leikir — sá fyrri á sunnudag en hinn siðari á þriðju- dag. AC Milano sigraði Inter 3—2 samaniagt í undanúrslitum, jafn- tefU 1—1 í fyrrakvöld, en Samp- doria sigraði þá Fiorentina, 3—2. Samanlagt 3—1. Trevor Francis, enski landsUösmaðurinn , skor- aði eitt af mörkunum. I liðinu leUtur einnig Gracme Souness en hjá AC Milanó leika ensku lands- Uðsmennirnir Ray Wilkins og Mark Hatelcy. hsim. Keppt um DV-bikar Það verður keppt um veglegan farandbikar, sem DV hefur gefið, á fyrsta Austfjarðamótinu i golfi. Það verður háð um helgina á Byggðarholtsvelii í Eskifirði. Leiknar verða 36 holur og hefst keppnin kl. 9 á laugardag. Mikil þátttaka er frá mörgum stööum austanlands en nánari upplýsing- ar er hægt að fá hjá Magnúsi Bjarnasyni, simi 97-6121. hsím. Golfhátíð í Borgarnesi Hótiðisdagar golfara vcrða i tiorgar- nesi um næstu helgi en þá vcrður Ping Open golfmótið haldið. Það er þegar orðið vinsælasta goUmétið í Borgar- nesi. Til marks um það mættu 70 manns á siðasta ári þrátt fyrlr brjálað veður. Ná er veðurspáin hins vegar géð og má því báast við miklum fjölda keppenda. Golfklábbur Borgamess hefur að- stöðu á m jög fögrum stað og er hán cins og best vcrður á kosið. Svo eru þeir Hamarsfélagar þekktir fyrir cinstaka gcstrlsni og smeUinn hámor. Golfarar ættu því að leggja lykkju á leið sína og heimsækja þá Hamarsfélaga. Völlurinn hefur aidrei verlð betri en það er stöðugt unnið að endurbótum á brautum og grinum. Páll Ólafsson reynir skot é norska markið i leiknum i gœrkvöldi. DV-mynd Brynjar Gauti. ..Vorum mjög slakir megnið af leiknum” — sagði Sigurður Gunnarsson eftir sigur íslands á Noregi í gærkvöldi björn, Jakob, Geir og Guðmundur 1. -fros „Við vorum vægast sagt mjög slakir allan fyrri hálfleikinn og reyndar megnið af leiknum. Eg held að orsökin liggi að miklu leyti í þreytu eftir erfiöar æfingar auk þess sem það var Enn tapar Öster Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- manni DV í Svíþjóð. öster tapaði í þriðja skipti fyrir AIK á níu dögum í gærkvöldi, nú í 1. deild, 1—0 í Stokkhólmi. Sanngjarn sigur ABK en þeir Teitur Þórðarson og Truedssan, miðherjar öster, komust litið áfram gegn sterkri vörn Stokkhólmsliðsins. Þá voru þrír leikir í fyrrakvöid. Gautaborg og Trelleborg gerðu jafntefli, 2—2, Kalmar vann Hammerby, 3—1, og í viðureign efstu liðanna vann Malmö FF ör- gryte, 3—0. Malmö er efst með 18 stig úr 22 leikjum. Gautaborg, ör- gryte og Kalmar hafa 15, AK, Halmstad og öster 14, Brage 9, Norrköping 8, Hammerby 7, Trelle- borg6ogMjallby5. hsím. slæmt að hafa ekki Kristján,” sagði Sigurður Gunnarsson sem var besti maður islenska handboltalandsliðsins sem lék við Noreg í gærkvöldi. Leikið var í íþróttahúsi Digranesskóla og höfðu Islendingar betur, unnu 25—21, en þær tölur gefa þó ekki fyililega til kynna gang leiksins, lengst af voru Norðmenn með , höfðu meðal annars yfiríhléi, 12-10. Islenska liðiö virkaði mjög dauft. Norðmenn voru öllu frískari og leiddu leikinn lengst af. Fyrri hálfleikur var í einu orði sagt leiðinlegur en sá seinni var mun skárri. Island náði að ja&ia leikinn, 14—14, og síöan skiptust liðin á mörkum í nokkurn tíma. Norðmenn voru yfir, 19—18, þegar allur botn datt úr spili þeirra, Islend- ingar gengu á lagið og skoruðu sex mörk gegn aðeins tveimur norskum og unnu þvi þriggja marka sigur. Sigurður Gunnarsson var yfirburöa- maður i íslenska liðinu. Páll Olafsson var oft mjög ógnandi en skot hans í markstengur voru fullmörg. Þá komst Valdimar Grímsson sæmilega frá leiknum en aðrir leikmenn liðsins geta miklu meira. Mörk Islands: Sigurður 11/4, Páll 4/2, Valdimar 3, Þorbergur 1, Þor- mótsins Alþjóðlegu móti Flugleiða og HSl veróur fram haldiö um helgina. Leikir helgarinnar i mótinu eru þessir: Föstudagur Keflavik Noregur-tsland b kl. 19.00 Holland-lsland a kl. 20.00 Laugardagur Selfoss Isiand A-tsland b kl. 15:00 Holland- Noregur kl. 16:30 Sunnudagur Varmá MosfeUssveit Ísland b-tsland a kl. 10:30 Akranes Noregur-HoUand kl. 11:00 Island b-Noregur 17:00 island a-Holland kl. 18:30 I Mótlnu lýkur á mánudagskvöldið. * IÞá verða tveir leíkir í Laugardalshöll, I Holland-lsland b og Noregur og Island I | Þjálfarar lióanna munu kjósa besta | Ilcikmanninn auk besta markvarðarins. a Þá mun markahæsti maður mótsins fá | ^verðlaun. -frosj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.