Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1985, Síða 34
34
DV. FIMMTUDAGUR15. ÁGÚST1985.
Viðskipti og efnahagsmál
Viðskipti og efnahagsmál
Könnun DVí sídustu viku:
Skólafólk bjargar
fiskvinnslunni
yfír sumarbmann
Skólafólk bjargar fiskvinnslunni á
Islandi yfir suraartímann. Þaö er
niðurstaða könnunar sem DV gerði í
síðustu viku. Hringt var í 19 frystihús
um allt land. I sjö þeirra var yfir helm-
ingur starfsmanna skóiafólk. Fáir út-
lendingar voru í vinnu í húsunum. Og
undirmannað var í hvorki meira né
minna en 13 frystihúsanna.
Hæst náði hlutfall skólafólks í stór-
fyrirtækjunum Bæjarútgerð Reykja-
víkur og Utgerðarfélagi Akureyringa, í
báðum húsum um 80%. Hlutfallið
hefur þó verið eitthvað lægra í sumar
en svona var staðan sem sagt í vikunni
eftir vérslunarmannahelgina.
Fimm frystíhúsanna höfðu á milli 20
og 30% af skólafólki, tvö á milli 30 og
40%, fimm á milli 40 og 50%, tvö á milli
50 og 60%, eitt á milli 60 og 70% og
fjögur á milli 70 og 80%.
Sárafáir útlendingar
Sárafáir útlendingar voru í starfi
hjá þeim frystihúsum sem könnunin
náði til. Það kom á óvart. Einn fisk-
vinnslumaður sagði: „Eg er ekki meö
neina útlendinga núna en var í vetur
meö um tuttugu.” Utlendingar eru því
ekki stór hluti af starfsfólki frystihús-
anna yfir sumartímann.
Vikumar fyrir og eftir verslunar-
mannahelgina eru þær erfiðustu fyrir
frystihúsin hvað varðar að fá fólk. A
þessum tíma mæöir því mjög á skóla-
fólkinu þó það fari reyndar líka nokkuð
ífriþessarvikur.
Einn sagði: „Það var ekki út af
neinu sem svo mflcill afli var sendtu- út
til Bretlands í þessari viku. Húsin sáu
einfaldlega ekki fram á að geta unnið
af lann vegna manneklu. Þvi var gripið
til þessara ráðstafana.”
„Verslunarmannahelgar-
flskur"
Og annar gaf reyndar þeim 2800
tonnum af fiski sem send voru til Bret-
lands nafn. Hann kallaöi þennan fisk
„verslunarmannahelgarfisk”. Langt
orö og ljótt en segir engu aö síður
mikia sögu.
Áberandi var í flestum húsanna hve
mikiö er af hálfsdagsfólki yfir sumar-
timann. Þaö eykur aftur þörfina fyrir
skólafólkið. Það eru mest konumar
sem búnar eru að vinna hörðum
höndum allan veturinn sem vinna
hálfan daginn á sumrin.
Reyndar er það líka mjög algengt
aö vana fólkið taki sér frí mestan part-
inn af sumrinu. Pakki saman um
miðjan júní og snúi aftur upp úr
miðjumseptember.
Stúlkurnar í pökkunarsalinn
Skólafólkið kemur mest til starfa i
byrjun júní. Algengast er að
stúlkumar, sem eru á aldrinum 16 til
19 ára, farí í pökkunarsalinn. Yngra
fólk er meira notað í saltfiskverkun og
humarvinnslu þar sem hún er til
staðar.
Einn sagði: „Þegar komið er fram í
júlí fer hluti af skólafólkinu í frí, það
fer þá gjarnan í ferðalag með for-
eldrum sinum. Þetta eykur enn á vand-
ann í kringum verslunarmanna
helglna.”
Nokkuð mun vera orðið um að
frystihús loki í nokkrar vikur yfir há-
sumarið og þá sérstaklega í kringum
verslunarmannahelgina. Mann-
skapnum er þá gefið frí. Hluti þess
fólks sem er í þessum húsum ræður sig
þá tímabundíð í öðrum sem loka ekki.
Þaðbjargarmiklu.
Skólafólkið reynist vel
En hvernig reynist svo skólafólkið í
frystihúsunum. Aö sjálfsögðu ekki eins
vel og það vana sem er kjarninn. Allir
voru þó sammála um að skólafólkið
standi fyrir sínu og vel það.
Einn sagði: „Krakkarnir hafa alist
upp í kringum fiskinn og eru fljót að til-
einka sér vinnbrögöin. Þau standa sig
vel og koma í veg fyrir mfltíð verö-
mætatap.” Þau standa sig flest eins og
hetjur.” -JGH
Ummæli fiskvinnslumanna í könnuninni:
„FÓLK SÆKIR í ÖNN-
UR STÖRF EN FISK-
VINNSLU ÞÓ ÞAU
SÉU VERR BORGUД
„Það er óvenjumikið af skólafólki
hjá okkur þessa dagana,” sagði
Magnús Magnússon hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur og kvað sig vanta allt
að 60 manns í vinnu.
„Fólk sækir orðið í önnur störf en
fiskvinnslu þó þau séu jafnvel verr
launuð,” sagði Sigurbjörn Pálsson
hjá Miðnesi í Sandgerði.
„Það er undirmannað hjá okkur
þegar aðalsumarleyfistíminn er,”
sagði Gylfi Guðfinnsson hjá Heima-
skaga á Akranesi.
„Það er útilokaö að fá fleira skóla-
fólk í vinnu. Fólk sækir orðið í önnur
störf ef þau bjóðast. Fyrst er farið
annað, ef ekki fæst vinna þar er komiö
til okkar,” sagði Róbert Guöfinnsson
hjá Þormóði ramma á Siglufirði.
„Okkur hefur gengiö vel, að fá skóla-
fólk og það nýtist okkur vel,” sagði Jón
Páll Halldórsson hjá Norðurtanganum
á Isafirði.
„Það er mjög mikið af skólafólki hér
við vinnu, það er alltaf svo í júli og
fyrstu vikumar í ágúst,” sagði Gunnar
Lórenzson hjá Utgerðarfélagi Akur-
eyringa.
„Það er mest af skólafólki hjá okkur
í júní, þá er fullmannaö hús. Nú er
undirmannað, mig vantar 30 manns,”
sagði Hjálmar Jóhannsson, hjá Síldar-
vinnslunni á Neskaupstaö.
„Það er ekkert vandamál að fá
skólafólk, ’ ’ sagði Tryggvi Finnsson hjá
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur og kvað
undirmannað hjá sér yfir hásumarið.
„Það er rólegt hjá okkur Vest-
mannaeyingum í ágúst, fólk fer þá
mikið í sumarleyfi, enda sigla togar-
arair vegna þess að þaö vantar fólk í
vinnu héma,” var svarað í Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum.
Utlendingar í f iskvinnslu á íslandi:
A ANNAÐ
HUNDRAÐ
— segir Óskar Hallgrímsson hjá
félagsmálaráðuneytinu
„Það eru á annað hundrað útlending-
ar með atvinnuleyfi í fiskvinnslunni og
til viðbótar eru einhverjir
Norðurlandabúar en þeir þurfa ekki at-
vinnuleyfi,” sagði Oskar Hallgríms-
son hjá félagsmálaráðuneytinu um
hve margir útlendingar væru við störf í
íslenskum f rystihúsum.
Oskar sagði að það virtist ekkert
vandamál að fá fólk hingaö til starfa
erlendis frá. „Annars er ávallt mikil
hreyfing á útlendingum í þessum
störfum, þeir eru alltaf að koma og
fara.”
Ráðningartiminn er yfirleitt þetta
frá 6 til 9 mánuðir. Eins og gengur
halda sumir út vistina, aðrir ekki.
Nýsjálendingar og Ástralir eru hvað
fjölmennastir útlendinga í fiskvinnslu
á Islandi. „Þetta er annars mjög
blandaður hópur, fólk hvaðanæva að,”
sagðiOskar.
En á hvaða aldri eru þeir út-
lendingar sem leggja leið sina til
Islands til að vinna í fiski?
„Mér virðist það vera mest ungt
fólk. Það er gjarnan nýbúið að ljúka
skólagöngu og ákveður að halda í
heimsflakk. Vinnur síðan í ákveðinn
tíma í hverju landi til að hafa upp í
feröakostnað, jafnframt sem það
kynnist þá viðkomandi landi á annan
hátt en venjulegir ferðamenn,” sagði
Oskar Hallgrímsson. -JGH.
Bjallan hringir
ífrystihúsunum
Fjöldl Hlutur
skólafólks
20-30%
30-40%
40-50%
50-00%
60-70%
70-80%
-JGH.
Húsin nítján
semkönnun
DVnáðitil
Þetta eru frystihúsin nitján sem DV húsanna voru frí og var þá fengið mat
hafði samband við í síðustu viku og á því hvernig staðan hefði verið í
spuröist fyrir um hve mfltíð af starfs- sumar.
mönnunum væri skólafólk. I sumum -JGH.
Hlutiskólafó iks Undirmannað
BæjarútgerðRvík. 80% Undirm.
Isbjörninn Rvík. 30% Undirm.
Miðnes, Sandgerði 40% Undirm.
Sjöstjarnan, Keflav. 75% Undirm.
Hraðfr. Hellissands 40% Ekki undirm.
Heimaskagi, Akranesi 50% Undirm.
Hjálmur, Flateyri 60% Undirm.
Ishúsfélag Isf. 45% Undirm.
Norðurtanginn, Isaf. 50% Ekkiundirm.
FiskiðjaSauöárkr. 30% Ekki undirm.
Þormóður rammi, Sigluf. 20% Undirm.
Magnús Gamalíelsson, Olafs. 25% Ekki undirm.
Otgeröarfél. Akureyr. 80% Ekki undirm.
Síldarvinnslan, Nesk. 75% Undirmannað
Fiskvinnslan, Seyðisf. 25% Undirmannað
Vinnslustöðin, Vestm. 40% Undirmannað
Fiskiðjan, Vestm. 25% Undirmannað
Kaupf. Austur-Skaft. 40% Undirmannað
„Okkur vantar alltaf fólk, það
fækkaði mikið fólki hér hjá okkur
fyrir verslunarmannahelgina,” sagði
Heimir Hávarðsson hjá Kaupfélagi
Austur-Skaftfellinga, Kask, á Homa-
firði.
„Þaö vantar alltaf stórlega fólk hér
á vertíð, ef við hefðum fleira fólk
gætum við unnið í dýrari pakkningar,”
sagði Rögnvaldur Olafsson á Hellis-
sandi.
„Það er vandamál að fá fólk yfir
sumarið, föstu konurnar hjá okkur
taka sér oft frí frá miðjum júní og fram
í miðjan september,” sagði Adolf
Guömundsson hjá Fiskvinnslunni á
Seyðisfirði.
„Okkur vantar alltaf fólk, við gætum
bætt við okkur um 20 manns í pökk-
unarsalinn,” sagði Venný Sigurðar-
dóttir hjá Sjöstjörnunni í Keflavík.
-JGH.
Sverrir Bergmann, lengi yfirmafl-
ur Herraríkis, fór þaflan vestur til
kaupfólagsins á ísafirfli.
Kaupfélagið á ísafirði:
Sverrir
hættur
Sverrir Bergmann, kaupfélags-
stjóri á Isafirði, hefur nú látið af því
starfi. I staö hans hefur verið ráðinn
Jens Olafsson og tók hann við
starfinu 1. ágúst síðasthðinn. Jens
hefur unniö hjá kaupfélögunum sem
verslunarstjóri í 26 ár. Hann stýrði
síðast kjörmarkaði KEA í Hrísa-
lundi. Hann er kvæntur Helgu Olafs-
dóttur og eiga þau fjögur uppkomin
börn.
„Eg get ekki sagt þaö að svo
stöddu hvar ég er að fara að vinna.
Það ræðst á næstu dögum,” sagði
Sverrir Bergmann í samtali við við-
skiptasíðuna. -JGH