Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 1
Bandaríkjastjórn vildi endurskoða afstöðu sína til fargjalda Rainbow:
Undirréttur hafnaði ósk
stjómarínnar um frestun
Óskar Magnússon, DV, Washíngton:
„Bandarísk stjórnvöld gerðu tilraun
til að fá málinu frestaö. Sú ósk var
borin fram svo flotamálaráðherrann
gæti endurskoöað þá afstöðu sína að
farmgjöld Eainbow Navigation væru
svo há að þaö réttlætti frávik frá lögun-
um.” Þetta sagði Frank Costello, lög-
maður Rainbow Navigation í máli
skipafélagsins gegn bandarískum
stjórnvöldum, vegna samkomulagsins
við Islendinga um að flutningar á
farmi fyrir varnarliðiö skuli boðnir út
á almennum markaöi.
„Rétturinn féllst ekki á þessa
frestunarbeiðni,” sagöi Frank
Costello.
Hann var spurður að því hvort
gefnar hefðu verið frekari skýringar á
beiðninni eöa hvort líta mætti svo á aö
stjórnvöld telja sig hafa vonlausan
málstað: „Ég vil ekki leggja þeim slik
orð i munn en þaö er bersýnilegt aö
þeim þykja þessi málaferli óþægileg.
Þeir hafa áhyggjur af lagalegri stöðu
sinni.”
Það var það álit flotamála-
ráöherrans að farmgjöld Rainbow
Navigation væru of há sem lagði
grunninn að samkomulaginu við
Island. Að áliti bandariskra stjórn-
valda er til þess heimild í einokunar-
lögunum frá 1904 að víkja frá þeim
lögum ef gjaldtaka þykir óeðlilega há
og bjóða flutningana út á almennum
markaði.
Engin viðbrögð var að fá hjá
bandarískum stjórnvöldum þegar DV
leitaði eftir þeim.
— ÞóG.
Á meðan frýs fyrir norðan renna menn í Reykjavík sér á
sjóskiðum i sundskýlu og sokkum. Viðeyjarstofa
baðar sig i sólskini en allt á þetta eftir að breytast er
nœr dregur jólum.
-EIR./DV-mynd KAE
Vissu um tilboð Birkis
á undan ríkisstjórninni
— segir Steingrímur Hermannsson
„Eg er ansi hræddur um að Flug-
leiðamenn hafi haft þær upplýsingar,
sem þeir töldu sig þurfa, áður en til-
boö Birkis var lagt fram á ríkis-
stjórnarfundi. Eg er nokkuð viss um
það,” sagði Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra í morgun.
Steingrímur sagðist ekki vera
búinn að ákveða hvort hann yrði við.
áskorun Kjartans Jóhannssonar al-
þingismanns um aö láta rannsaka
sölu hlutabréfa ríkisins í Flugleið-
um. Steingrímur kvaðst ekki vita
hvaðan „lekinn” væri kominn og er
hann var spuröur hvort hann teldi
ekki ástæðu til að hreinsa ríkis-
stjómina af grun svaraði hann:
„Ég vildi það mjög gjarnan. En
hvernig það veröur gert er annaö
mál. Flugleiðamenn gengu á minn
fund fyrir ríkisstjórnarfundinn, áður
en ég hafði séð þetta tilboö, og tjáðu
mér að þeir vildu gera tilboð af því
aö þeir hefðu upplýsingar um aö
tilboð Birkis væri á annan veg en
þeir hefðu áöur talið. Þannig að þeir
vissu um þetta fyrir ríkisstjórnar-
fundinn. Þaðveitég.”
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra lýsti því yfir í sjónvarpinu í
gærkvöldi að hann væri þess fullviss
að upplýsingar um tilboð Birkis
hefðu hvorki borist Flugleiðum frá
Fjárfestingarfélaginu né úr fjár-
máiaráðuneytinu.
-KMU.
Kasparovmeð
vinningsstöðu
— Jón L. skýrir
heimsmeistara-
einvígiö í skák
- sjá bls. 2
Sigra Þórsarar
— sjá íþróttir
bls. 16-17
Gefiðí
í Gríndavík
-sjábls.4
Hverfærað
keyrastrætó
á ísafirði?
— sjá bls. 11