Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Miklirbardagar viö landamærin Yfirvöld í Afganistan skýrðu frá miklum sigrum í baráttunni gegn skæruliöum. Þau sögðu aö herir sínir hefðu eytt liði skæruliða í Gardez, Kost Jaji og Alikel héruð- um í Paktia. Einnig hefðu margir skæruliða gengið í lið með st jórnar- herjum. Vestrænir sendimenn í Islambad og talsmenn skæruliöa sögðu að miklir bardagar ættu sér staö í Paktia. Sovétmenn stæðu í miklum liösflutningum þangað. Skæruliðar sögðu einnig að sov- éskir hermenn hefðu nálgast landa- mærin við Pakistan. Þeír hefðu um tíma verið í aöeins tveggja kíló- metra fjarlægð frá Pakistan og bardagar hefðu stundum borist inn fyrir landamærin. Námamenn kokhraustir Verkalýðsfélag svartra náma- manna töluðu digurbarkalega í gærkvöldi þrátt fyrir aö námafyrir- tæki hefðu náð að brjóta verkfall þeirra á bak aftur. „Þetta er sigur vegna þess að þetta er forsmekkur- inn aö miklu stærri sigri,” sagði aðalritari félagsins. Verkalýösfélagið neyddist tU að aflýsa verkfailinu eftir að í ljós kom að fæstir verkamannanna virtu þaö. Námamam sögðu að hótanir fyrirtækjanna hefðu eyöi- lagt verkfallið, en fyrirtækin neita því. Stríðstólíviöur- eignviðbola Oður boii slapp úr sláturhúsi í bænum Kircheim í S-Þýskalandi og gekk berserksgang um bæinn. Eftir klukkustundar eltingarleik sá lögrglan sig knúna tU að grípa til vélbyssu til þess að fella bola sem hafði áður skemmt fjölda bUa. íslandsfarinn titSenegal Frá Kristjáni Bernburg, fréttarit- ara DV í Belgiu: Gamall togari, sem sótti á Is- landsmiö mestalla sina lífdaga, hefur verið seldur til fiskveiða í Senegal. Þetta er togarinn Belgian Lady. Hann var smiðaöur 1959. Síð- asta ferð hans til Islands var árið 1983. Síöan hefur togarinn verið bundinn við bryggju í Ostende. Af fjórum belgískum togurum sem veiddu svo tU eingöngu á Is- landsmiðum er aðeins einn eftir sem stundar enn veiðar. Hann er þó ekki á Islandsmiðum. Hvetjatilefna- hagsaðgerða Winnie Mandela, eiginkona hins fangelsaða blökkumannaleiðtoga, Nelson Mandela, skoraði í bresku sjónvarpsviðtali í gær á öll ríki vin- veitt mannréttindabaráttu blökku- manna í Suður-Afriku aö beita S- Afríku efnahagsrefsiaðgerðum tU þess að þvinga hana af villu að- skilnaðarstefnunnar. „Ekki á morgun, ekki í gær, held- ur akkúrat núna,” sagði Mandela og kvaðst tala í nafni hinna útlægu ANC-samtaka blökkufólks. Hún sagði að stefna S-Afríku- stjórnar hefði kallað yfir landiö verstu ofbeidisöldu, sem nokkurs staðar hefði sést án formlegra stríðsyfirlýsinga. — „Við sjáum engin önnur úrræöi gegn þessu of- beldi en efnahagsaögerðir,” sagði hún. Umsjón: Þórir Guðmundsson og Guðmundur Pétursson Toppfundurinn í nóvediber: Gorbatsjov lofar hinum „róttæk- ustu tiílögum” Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefur gefið í skyn að Sovétmenn séu reiðubúnir að koma með „hinar róttækustu tillögur” í afvopnunarmálum ef Bandaríkja- menn eru reiöubúnir að ræða um aö falla frá geimvopnaáætlunum sínum. Öldungadeildarþingmaöurinn Ro- bert Byrd, sem hitti Gorbatsjov ásamt sjö öörum þingmönnum, segist telja eftir fundinn aö Gorbatsjov myndi „vera jákvæður í afstöðu sinni” til toppfundarins með Reagan í Genf í nóvember. Sovétmenn hafa ráðist mjög harka- lega að Bandaríkjunum vegna geim- vopnaáætlananna sem í daglegu tali eru kaliaðar stjörnustríðsáætlanir. Þingmennirnir bandarísku fara frá Moskvu í dag. Þeir hrósuðu Mikhaíl Gorbatsjov mjög fyrir orku og dug og sögðu hann hafa góðan skilning á um- ræðuefnum fundarins með þeim. Gorbatsjov veitti þremur ritstjórum Time tímaritsins viðtal sem síðan var birt að mestu leyti í Pravda, málgagni kommúnistaflokksins. I viðtalinu þótti hann koma viðhorfum Sovétmanna fram af einstökum sannfæringar- krafti. Hann reyndi aö sýna Reagan- gjarna og gjama til að líta fram hjá mikilvægum tillögum Sovétmanna. Byrd þingmaður sagöi aö Gorb- atsjov hefði verið neikvæður þegar hann var spurður um Afganistan og mannréttindi. Bandarisku öldungadeildarþing- mannirnir voru ánægðir mefl Gorbatsjov eftir fundinn mefl honum i gær. ctinrninn otír rSKncalooíi árncar. Maxwell samdi við Mirror-prentarana HRÍÐSKOTABYSS- URNAR GELTA í PUNJAB A NÝ — sex manns myrtir, 15 særðir Ofgasinnaöir sikkar myrtu i dag þekktan stuðningsmann Rajivs Gandhi, forsætisráðherra á Indlandi, og gerðu árásir í Punjab sem ollu dauða fjögurra manna í viðbót. Fimmtán manns særðust. Þaö voru þrír menn sem skutu Ar jun Dass, meðlim borgarráðs höfuðborg- arinnar Delhí, til dauða á skrifstofu hans í borginni. Lífvörður hans dó einnig og sex menn í skrifstófu hans særðust í kúlnaregninu. Þar sem einn árásarmannanna var Willoch er sigurstranglegur í kosn- ingunum sem verða á mánudag. með túrban gera lögreglumenn ráð fyrir að þeir hafi verið sikkar. I Punjab gerðu öfgamenn átta árásir sem lögregla telur hafa verið sam- hæfðar. I öllum tilvikum óku menn á skellinöðrum framhjá húsi fórnar- lamba sinna og skutu á fólk með hríð- skotabyssum. Morðiö á Dass kemur fimm vikum eftir morðiö á Lalit Maken, öðrum stjórnmálamanni Kongressflokks Gandhis. Nöfn beggja þessara manna voru á lista yfir þá sem hefðu gengist fyrir árásum á sikka eftir morðið á Indiru Gandhi í október í fyrra. Noregur: Borgara- flokkarn- ir sigra Frá Jóni Einari Guðjónssyni, fréttarit- ara DV í Osló: Samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í dag mun stjórn Káre Willoehs halda velli í Noregi eftir kosningarnar á mánudag. Ríkisstjórnarflokkarnir fá 50,1 prósent atkvæða í skoðanakönnun- inni, en stjórnarandstæðingar samtals 47,8 prósent. Könnunin var tekin fyrstu tvær vik- urnar í ágúst. Spurningin er því hvort síöustu vikur kosningabaráttunnar hafa breytt afstöðu manna. Daiiy Mirror, blaöið breska, er kom- ið til blaöasala á Bretlandi, eftir 12 daga stopp. Eigandi biaösins, Robert Maxwell, hefur samþykkt málamiðl- unarsamkomulag við verkalýðsfélag prentara í tilraunum sínum til að tæknivæða blað sitt. Þegar verkalýösfélagið setti sig á móti ákvörðun Maxwells að færa prentun á tímariti sem hann gefur út, Sporting Life, út úr blaðahverfi Lund- únaborgar, hætti Maxwell útgáfu Daily Mirror og lofaði að láta aldrei prenta neitt blaöa sinna aftur í London. Eftir samkomulagiö í gær dró Max- weil síðara loforðið til baka, en segist munu selja Sporting Life innan fjög- urra vikna. Mirror dagblaðinu stendur hætta af nýju dagblaöi sem Eddie nokkur Shah hyggst hefja útgáfu á í vor. Það blað á að vera tölvuvætt og mun því kosta lít- ið brot af því sem kostar að gefa út hin stóru blöðin á Bretlandi. Palme ræflst nú á mengi sem eiga afl vera ástæða lélegrar reikningskunn- áttu ungra Svia. Krakkar+ Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari DVíLundi: Olof Palme, forsætirráðherra Svíþjóðar, kennir mengjafræðinni um lélega stærðfræðikunnáttu sænskra unglinga. Nýleg könnun hefur leitt í ljós að stærðfræðikunnátta fjórtán ára sænskra unglinga er svo léleg að leita verður til vanþróaðra ríkja Afríku til aö finna hliöstæöu. Er Palme sat fyrir svörum í sænska sjónvarpinu í fyrrakvöld var hann inntur álits á þessu. Hann svaraði því að sama könnun hefði leitt í ljós að sænsk skólaæska stæði mjög framar- lega í öllum greinum nema stæröfræði mengi ef boriö væri saman við aðrar þjóðir. Hann sagðist geta sér þess til að það væri mengjafræðinni að kenna að sænskir unglingar stæðu ekki eins vel að vígi í stærðfræðinni. — Þess má geta aö mengjafræðin var innleidd í íslenskt skólakerfi fyrir um 20 árum að sænskri fyrirmynd. Skólamálin hefur talsvert borið á góma í sænsku kosningabaráttunni. Hægrimenn berjast fyrir því að einkunnagjöf verði á nýjan leik tekin upp í sænska grunnskólanum og gagn- rýna núverandi kerfi fyrir að reyna að steypa alla unglinga í sama mót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.