Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 2
2 DV. MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER1985. vmningsstöðu Þaö var engin lognmolla í Tsjai- kovsky tónlistarhöllinni í Moskvu í gær er Karpov og Kasparov drógu upp sverðin að lonu sumarleyfi. Eftir snubbótt handaband lék Kasparov drottningarpeði sinu fram og þar með var fyrsta skákin í nýju einvígi hafin. Skákskýrendur hafa flestir spáð jafnri og spennandi keppni og því kom þeim á óvart ekki síður en áhorfendum aö eftir aðeins 15 leiki skyldi Karpov vera kominn í krappa vöm. Er leiö á taflið varð hann að gefa peð og lenti í tímahraki að auki. Kasparov lék biöleik í 42. leik og svo virðist sem sigur blasi við. Góður undirbúningur kom Kaspar- ov á sporið í gær. Hann bauö Karpov í fyrsta skipti upp á Nimzo-indverska vörn sem áreiöanlega hefur komið Karpov og aðstoðarmönnum hans í opna skjöldu. Þeir fylgdu skák tveggja Sovétmanna, Ubilava og Lerner, þar til Karpov breytti út af án þess þó að ná árangri. Haft er eftir stórmeistaranum Dorfman, sem aðstoðar Kasparov, að Karpov hljóti að hafa þekkt til þessarar skákar, því að Ubilava og Lerner hafi báðir veitt honum holl ráð fyrir einvígið. Takist Kasparov að sigra verður heimsmeistarinn Karpov kominn i harla óvenjulega aðstöðu því að hann hefur aldrei fyrr verið undir í heims- meistaraeinvígi. Og nú spyrja menn í Moskvu: Það skyldi þó aldrei vera að keppnin nú verði beint framhald af einvíginu endalausa, þar sem Kasparov sótti hvað mest í sig veðrið í lokin? Sovésku stórmeistararnir Averbakj, Tajmanov og Dorfman telja allir stöðu Kasparovs „tækni- lega unna”. Averbakh hefur ritað fjölda bóka um endatafl og þykir sér- fræðingur á þ\'í sviði. Biðskákina á aö tefla áfram í dag. Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Anatoly Karpov Nimzo-indversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3! Fyrsta leynivopnið í einvíginu sér dagsins ljós. Hann býður upp á Skák Jón L. Ámason Nimzo-indverska vörn sem iðulega leiðir til flóknari baráttu en drottn- ingarindversk vörn eftir 3. Rf3 b6. Karpov getur stýrt yfir í drottningar- bragð með 3. — d5 en hann tekur áskoruninni. 3. — Bb4 4. Rf3 c55.g3Re4 Karpov hafði notaö 45 mínútur af umhugsunartíma sínum eftir þennan leik. Afbrigðið sem Kasparov velur er sjaldséö en hentar þó skákstil hans vel. Eftirð. — cxd4 6. Rxd4 væri komin upp staða úr enskum leik. 6. Dd3 Da5 7. Dxe4 Bxc3 8. Bd2 Auðvitað ekki 8. bxc3? Dxc3+ og vinnur hrókinn. 8. — Bxd2 9. Rxd2 Db6 Nýjasta framlag svarts. I byrjunarbókum er gefið upp 9. — Rc6 10. d5 Rd4, eins og Romanishin og Tal tefldu eitt sinn. 10. dxc5 Dxb211. Hbl Dc3?! Hér breytir Karpov út af skák Ubiiava og Lemer í undanrásum sov- éska meistaramótsins í fyrra. Eftir 11. - Da3 12. Bg2 Dxc5 13. 0-0 Rc6 14. Hfdl 0—0 náði svartur aö halda umframpeðinu og vann um síðir. Það er kannski ekki erfitt að endurbæta taflmennsku hvíts, t.d. 12. Dd4 0—0 13. Bg2 Rc6 14. Dd6 o.s.frv. en leiðin sem Karpov velur virðist lakari. 12. Dd3! Dxd313. exd3 Ra614. d4 Hb8 15. Bg2 Ke716. Ke2Hd8! Eini raunhæfi möguleikiim en engum dylst að svartur á í erfiðleik- um. Ef 16. - d6? 17. cxd6+ Kxd6 18. c5+ Kc7 19. Rc4 og síðan 20. Rd6 og vinnur a.m.k. peð; ef 16. — e5? 17. Kd3 exd4 18. Hhel+ og 19. Kxd4 með yfirburðastöðu og ef 16. — b617. cxb6 axb6 18. Hb3 Kd8 19. Hhbl Kc7 20. Re4 d6 21. Rc3 Bd7 22. Rb5+ og aftur vinnur hvítur peð því að eftir 22. — Bxb5? 23. cxb5 á riddarinn ekki grið- land. 17. Re4 b618. Rd6! Sterkur leikur, sem hindrar 18. — bxc5 vegna 19. Rxc8+ Hxc8 20. Bb7! og vinnur lið. Svartur á óhægt meö aö losa um sig. 18. — Rc7 19. Hb4 Re8 Karpov átti nú aðeins hálfa klukkustund eftir af umhugsunar- tímanum. Riddarann verður hann að losna við. 20. Rxe8 Kxe8 21. Hhbl Ba6 22. Ke3 d5 23. cxd6 Hbc8 Ef 23. — Hxd6 24. c5 og peð fellur. 24. Kd3 Hxd6 25. Ha4 b5 26. cxb5 Hb8 Þannig tekst honum að forðast mannstap en endataflið með peði minna verður erfitt. 27. Hab4 Bb7 28. Bxb7 Hxb7 29. a4 Ke7 30. h4 h631.f3Hd5?! Betra var að bíða átekta. Karpov freistar þess að ná gagnfærum en hrókurinn fer úr vörninni. Nú átti Karpov aðeins 5 mínútur eftir fram að 40. leik. 32. Hcl Hbd7 33. a5 g5 34. hxg5 Hxg5 35. g4 h5 36. b6 axb6 37. axb6 Hb7 38. Hc5! f5 39. gxh5 Hxh5 40. Kc4 Hh8 41. Kb5 Ha8 8 7 ó 5 4 3Í 2 1 abcdefgh Og í þessari stöðu fór skákin í bið, Kasparov (hvítur) lék biðleik. Eftir 42. Hbc4 hótar hann aö skipta upp á hrókapari á c7 og tryggja sér vinn- ingsstöðu. Ekki gengur 42. — Kd6 43. HC7 Hbb 44. H4C6+KD5 45. Hd7 mát! -JLÁ. Kapparnir Karpov og Kasparov eru sestir að skákborðinu i Moskvu á ný. Heimsmeistaraeinvígið í Moskvu hafið á ný: Kasparov með Milliþinganefnd um húsnæðismál: Skilar áfanga- áliti í byrjun þingsins Vonir standa til að miliiþingnefnd, sem skipuö var í vor til að vinna að stefnumótun í húsnæðismálum, skili áfangaskýrslu í þingbyrjun. Endan- legar niöurstöður nefndarinnar munu þó, aö líkindum, ekki liggja frammi fyrr en seinna í haust. „ Starfi nefndarinnar hefur miðað fremur rólega. Við höfum fram að þessu, fyrst og fremst, notað tímann til aö afla gagna. Mér sýnist að þetta muni verða töluvert viðamikið verk ef koma á á einhverri uppstokkun,” segir Guðmundur Bjarnason, alþingismaður og formaður nefndarinnar. Hann segir aö starf nefndarinnar sé í meginatriöum tvíþætt. Annars vegar að finna lausnir á því ástandi sem við er aö glíma núna og hins vegar að marka framtíöarstefnu í skipulagn- ingu húsnæðislánakerfisins. Guömundur segir aö enn séu störf nefndarinnar ekki komin á þaö stig að hægt sé að nefna til hverra aögerða verðurgripiðtil. APH Þessum bíl var ekið eftir Reykjanesbraut i fyrradag þegar bilstjórinn, sem var einn í bilnum, fann einhverja brunalykt. Hann leit aftur í bilinn og sá að logaði litilsháttar i aftursætinu. Hann stöðvaði bilinn og kippti aftursætinu út úr bilnum til að slökkva eldinn. En þegar hann leit aftur á bilinn var hann í björtu báli. Var þá slökkviliðið kallað til og réð það niðurlögum eldsins. í bílnum brann hins vegar allt sem brunnið gat og er hann talinn ónýtur eftir. -KÞ/DV-mynd S. Hver að verða síðastur íberjamó: Ber enn góð þrátt fyrír næturfrost Nú fer hver aö verða síðastur til að fara í berjamó. Samkvæmt þeim upp- lýsingum sem DV hefur aflað sér var krækiberjaspretta góö sunnanlands og vestan en lítið var af bláberjum um allt land. Á Austurlandi var minna af berjum en oftast áður en á Noröurlandi svipað og í fyrra. „Þaö var rass viö rass hérna fyrstu dagana,” sagöi starfsstúlka á Hótel Valhöll, Þingvöllum, og átti viö fjölda höfuðborgarbúa í berjatínslu. Hún sagði að þrátt fyrir næturfrost í fyrri viku mætti enn tína krækiber þarna í nágrenninu. Svipaða sögu var að segja frá Kirkjubæjarklaustri. „Þaö er mjög lítið af berjum hér. Þaö er búiö að vera ofsalega kalt og fólk hefur lítiö fundið. Berin hafa ekki náð aö þroskast nægilega,” sagði starfsstúlka á Hótel Valaskjálf á Egils- stöðum. Hún kvað sömu sögu að segja af öllu Austurlandi. Á Akureyri fengust þær upplýsingar að berjavertíðinni væri svo til lokið þar nyrðra. Mikiö næturfrost hefur verið þar aö undanförnu þannig að kartöflu- grös hafa fallið og rabarbari er orðinn ljótur í görðum. Flest ber eru að öllum líkindum ónýt. í Skagafiröi fengust svipaðar upplýsingar. „Við köllum þaö ekki ber nema það séu aöalbláber og það er mjög lítiö af þeim. Hins vegar er mikið af kræki- berjum,” sagði Ragnar Guðmundsson i Króksfjaröarnesi í Barðastrandar- sýslu. Tvisvar hefði gert næturfrost að undanförnu en þaö sæist þó ekki á krækiberjunum. Afgreiðslumaður í söluskála Olíufé- lagsins í Hvalfirði sagði aö stórir hópar hefðu tínt ber þar að undanförnu. „Svo fór kokkurinn hjá Varnarliðinu upp í fjall um daginn og tíndi alveg fullt,” sagði hann. -JKH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.