Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985. Truflanirá milli tækja tefjaþyrlu Truflanir á milli radiótækja komu fram við prófanir á nýju þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þaö er ástæðan fyrir því að Aerospatiale- verksmiðjurnar í Frakklandi hafa tilkynnt tveggja vikna seinkun á af- hendingu þyrlunnar. Til stóö að þyrlan yröi afhent formlega ytra í síðustu viku og kæmi til íslands í kringum 10. september. Tveir flugmenn voru farnir út til Frakklands en sneru aftur heim til Islands. Flugmennirnir fara væntanlega aftur út áður en langt um líður því aö nú er gert ráð fyrir að þeir fljúgi Dauphin-þyrlunni heim um næstu mánaðamót. -KMU. Borgarstjórn: Albert f er i profkjor Albert Guömundsson, fjármála- ráðherra og borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins, stefnir að því að taka aft- ur þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna borgarstjórnarkosninga næsta sumar. Og Albert ætlar einnig aö halda áfram þingmennskunni. Eins og kunnugt er á Aibert sæti í borgarstjórn núna. Þetta kom fram í sjónvarpsþætti þar sem Elias Snæ- land Jónsson aðstoðarritstjóri og Páll Magnússon fréttamaður spurðu ráðherrann spjörunum úr. A dag- skrá voru þau mál -sem ráðherrann hefur verið bendlaður við: kjötflutn- ingur varnarliðsins, sala hlutabréfa ríkisins í Flugleiðum og fjárlögin. Fjármálaráðherra var svartsýnn á fjármál ríkisins. Hann sagði að nauðsynlegt yrði að velta verulegum hluta útgjalda þessa árs yfir á næstu fjárlög. Einnig sagöi hann aö ljóst væri aö auka þyrfti skattheimtu á næsta ári. Nefndi ráðherrann þann möguleika að leggja aftur á sölu- skatt á vörur sem nú væru undan- þegnar honum. APH GLER 66 6160 „Is-sex" blómstrar 1 New Yorkl Slagurinn um lögreglustjóraembættið í Reykjavík: Böðvar, Stefán og Hjalti ætla að sækja Lögreglustjóraembættiö i Reykja- vík er nú laust til umsóknar. Umsóknarfresturinn rennur út 10. september nk. I samtali við DV sagðist Þorsteinn Geirsson, ráðu- neytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, ekki geta gefið upp hver margir hefðu sótt um eða hverjir það væru að svo stöddu. „Það hafa borist nokkrar umsóknir um lögreglu- stjóraembættiö bæði hingað í ráöu- neytið og beint til ráðherra,” sagöi Þorsteinn. DV hafði samband við nokkra að- ila sem nefndir haf a verið sem líkleg- ir umsækjendur um lögreglustjóra- embættiö. I samtali við blaðiö sagði Böðvar Bragason, sýslumaður á Hvolsvelli, að hann væri ekki búinn að senda inn sína umsókn. „En ég hef í hyggju að gera það fyrir 10. september,” sagði Böðvar og meira vildi hann ekki tjá sig um málið. Stefán Hirst, skrifstofustjóri hjá lögreglustjóraembættinu í Reykja- vík, kvaðst hafa ákveðið aö sækja um embættið. Aðspurður sagðist hann gera sér ljóst að um krefjandi starf væri að ræða. Lögreglustjóri væri á vakt eða bakvakt nánast allan sólarhringinn. Hins vegar þætti sér freistandi að takast á við erfið og umfangsmikil verkefni einkum þar sem hann hefði öðlast góða innsýn í starfsemi stofnunarinnar. Hjalti Zóphóníasson, deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu, sagði að hann hefði ákveðið að sækja um starfið. „Eg er reyndar þegar búinn að því,” sagði Hjalti. Friðjón Þórðarson, alþingismaöur og fyrrverandi dómsmálaráðherra, sagöist ekki hafa sótt um lögreglu- stjóraembættiö en bætti því við að umsóknarfresturinn væri jú ekki lið- inn. — Þú vilt sem sé ekki segja af eða á um hvort þú munir sækj a? „Það er ástæðulaust á þessu stigi að segja meira,” sagði Friðjón Þórðarson. Friðjón Guðröðarson, sýslumaður á Höfn í Hornafirði, sagði í samtali við blaðið að hann væri margbúinn að lýsa því yfir í fjölmiðlum að hann hefði ekki í hyggju að sækja um starfiö. „Það hefur aldrei flögrað að mér aö vera með í því kapphlaupi,” sagöi Friðjón Guðröðarson. -EH. • Steypubill með nokkur tonn af steypu fór á hliðina á Hringbraut i Keflavík i gærdag. Var steypubillinn að taka beygju inn á götuna en ekki fór allt eins og best varð á kosið, eins og myndin sýnir. Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Liklega hefur komið hnykkur á bilinn þegar steypa kastaðist til i tromlunni. EH/DV-mynd Sólveig Þórðardóttir. Coldwater: Salan að lifna við Oskar Magnússon, DV, Washington: „Salan er að lifna við en við höfum misst einhverja viðskiptavini,” sagði Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater, í samtali við DV. „Það er enn skortur á ýsu og karfa. Okkur hefur því ekki tekist að anna eftirspurn eftir þessum fiskteg- undum. Það leiöir til þess að okkar viðskiptavinir veröa aö fara annað. Þeir fylla inn í eyöurnar á matseðlin- um með vörum frá öðrum en breyta ekki matseðlinum eftir því sem við höfum á boðstólum,” sagði Magnús. Hann sagði að framundan væru erfiðir mánuðir. Á nokkru ylti hversu mikil ferskfisksalan yrði til Bret- lands og Þýskalands. „Ef framleiðslunni verður beint til okkar og nægilegt vinnuafl verður í húsunum á Islandi rætist úr þessu,” sagði Magnús Gústafsson. Fyrrum ungfrú Island auglýsir í bandarísku vikublaði: „Kynlífssögurnar eru frumsamdar” „Eg get ekki sagt kynlífssögur á ís- lensku. Til þess er ég orðin of ryðguð í málinu eftir 20 ára búsetu er- lendis,” sagði fyrrum ungfrú lsland í símaviðtali við DV. Eins og fram hefur komið í DV þá auglýsir fyrrum ungfrú Island þjónustu sína í bandaríska viku- blaðinu The Voice. Býðst hún til að segja viðskiptavinum sínum kynlífs- sögur í gegnum síma gegn ákveöinni greiðslu; og samþykkir öll helstu greiðslukort. „Kynlífssögurnar mínar eru allar frumsamdar enda er ég að skrifa bók um efnið. Þetta rennur upp úr mér strax og ég tek upp tólið og ég hef gamanaf þessu.” — Má spyrja þig að heiti? „Eg sé ekki ástæðu til að gefa það opinberlega en í viðskiptum mínum nota ég nafnið INGA. Ég hef starf- rækt fyrirtæki mitt í eitt ár og er með nokkrar stúlkur í vinnu. Það er f jöld- inn allur af konum sem vill frekar sitja við símann heima hjá sér og æsa upp karlmenn í stað þess að vinnafrá9—5.” — Hvenær varstu kosin ungfrú ísland? „Það eru um 30 ár síðan; í Tívoli ef ég man rétt. Lengst af síðan hef ég verið búsett erlendis,” sagði íslenska fegurðardrottningin rámri röddu. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.