Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 11
DV. MIÐVKUDAGUR 4. SEPTEMBER1985. 11 Hver fær strætisvagnaaksturinn á ísafirði? „Afskaplega skrítið mál” Strætisvagnamál isfirðinga eru enn óútkljáð, þó svo aö akstur þeirra hafi verið boðinn út þann 18. júlí síðastlið- inn. Þá bárust þrjú tilboð sem öllum var síðan hafnað. Einn þeirra sem sendi inn tilboð var Gísli Árnason og segir hann í samtali við DV aö öll af- greiðsla málsins hafi verið hin ein- kennilegasta af hálfu bæjarráðs. Tilboð Gisla var langlægst þeirra þriggja tilboða sem bárust, eða 2,6 milljónir. Elías Sveinsson gerði tilboö upp á 4,6 milljónir og Ásgeir Sigurðs- son upp á 4,3 milljónir. Gísli segir: „Ég hafði hugsað mér gamla SVR- bíla, tvo Volvo '68 og einn Benz. Þetta eiga að vera mjög góöir bílar, þrátt fyrir aldurinn, og mjög vel við haldið. 1 tilboði Elíasar var aðeins tilgreind ein rúta frá 1980 og hjá Ásgeiri voru tvær rútur. Hann ætlaði þó að bjarga einum strætisvagni í viðbót.” yÓsannindi" tveir sem buöu í aksturinn. Gísli fékk sent bréf þennan dag þar sem tilboði hans var hafnað. „Mér finnst óeðlilegt að fá slíkt bréf, úr því þeir litu svo á að ég heföi verið búinn að draga tilboðið til baka,” sagði Gíslé Hinir tveir fengu einnig bréf þar sem þeirra tilboðum var hafnaö, en jafnframt var þeim gef- inn kostur á að taka þátt í lokuðu út- boði. Gísli sagöi að sér fyndist mjög óréttlátt að hann skyldi ekki hafa verið boðaður á þennan fund, en eftir stend- ur bókun um að hann sé tilbúinn að breyta tilboði sínu. „Eg hef reynt að fá skýringu hjá bæjarráðinu á því hvers vegna mínu tilboði var hafnað. Hald- bærasta skýringin virðist vera sú aö þeim þótti bílakostur minn of gamall. Ég vissi að þeir voru á ferð fyrir sunn- an og skoöuðu þá SVR-bílana og leist ekkert á þá. En samkvæmt reyndum bílstjóra hjá SVR eru þessir bílar full- boðlegir,” sagði Gísli. Síðari tilboð opnuð bílana af þeim akstri. „Af þvi greiöir ríkissjóður 85%. Þaö hlýtur því að vera hagur bæöi bæjarins og ríkisins að þessi kostnaður verði sem minnstur. Svo er annað einkennilegt í málinu, sem er þaö að bæjarráð hefur leitaö eftir samningum við mann á Suðvest- urlandi sem stundað hefur svipaöan rekstur. Allt er þetta mál óskaplega skrýtiö. Og mér finnst þaö skylda mín að benda íbúunum hér á þaö hvernig stendur til að verja skattpeningum þeirra,” sagði Gísli Árnason að lokum. -pá /-MÁLASKÓLI ----------26908 • Danska, sænska, enska, þýska, franska, ítalska, spænska og ís- lenska fyrir útlendinga. • Innritun daglega kl. 13—19. • Kennsla hefst 16. sept. • Skírteini afhent 13. sept. (föstudag) kl. 16—19. • Fjölbreytileg kennslutæki, m.a. segul- og myndbönd. • Greiðslukorthafar velkomnir. • 20% afsláttur fyrir hjón, systkini, öryrkja og ellilífeyrisþega. • Starfsmannasjóður ríkisstofnana veitir ríkisstarfsmönnum námsstyrki. Þann 16. ágúst var Gísli boðaður á fund bæjarráðs og var það rúmri viku eftir að tilboöin voru opnuð. Fimm dög- um síðar, 21. ágúst, birtist frétt í Vest- firðingi þess efnis að Gísli hefði dregið tilboð sitt til baka. Að sögn hans sjálfs eru þaö hrein ósannindi, því hann hafði sent bæjarráðinu bréf um að tilboð sitt stæði óbreytt. Einnig liti hann svo á aö verktaki héldi því sem inn kæmi af far- gjöldum, en í útboðsgögnum var ekk- ert tekiö fram um það atriöi. Daginn eftir fór Gísli til bæjarstjóra og bað um að tilkynnt yrði á bæjarráösfundi sama dag að hann væri reiðubúinn að yngja upp hjá sér bílakostinn. Á þessum fundi voru viöstaddir hinir Síðastliöinn mánudag voru síðari til- boð Ásgeirs Sigurðssonar og Elíasar Sveinssonar opnuð og reyndist Ásgeir þá hafa lækkað sitt niður í 2,9 milljónir á ársgrundvelli og gerir ráð fyrir að hann haldi fargjöldum. „Ég lít svo á að þessi lækkun hafi orðið fyrir mitt til- stilli, hann varð að vera nálægt því sem ég haföi boðið,” sagði Gísli og bætti við að sér hefði borist til eyrna að Ásgeir, sem annaðist skólaaksturinn á ísafirði síðastliöinn vetur, hafi haft um 320.000 á mánuði fyrir aksturinn. Gísli benti á að í þessu dæmi væri skólaakstur stór hluti, eða níu mánuðir á ári, og væri meirihluti kostnaöar við Árni Sigurðsson bæjarráðsmaður, ísafirði: EKKISJÁLFGEFIÐ AÐ LÆGSTA TIL- BODIVERDITEKID „Það bárust í upphafi þrjú tilboð. Bæjarráð kallaði Gísla á sinn fund og ræddi við hann um hans tilboð. Þar sagöist hann líta svo á að öll fargjöld ættu aö renna til sín en bæjarráð var þeirrar skoðunar að þau ættu aö renna til bæjarsjóös, þó svo að ekki væri bein- línis kveöiö á um þaö í útboösgögnun- um. Gísli lagði einnig fram á fundinum sundurliðaðar tölur sem voru verulega hærri en upphaflega tilboðið,” sagöi Árni Sigurösson, bæjarráðsmaður á Isafirði, í samtali viö DV. „Við í bæjarráði litum svo á aö hann væri fallinn frá tilboöi sínu. Svo var ýmislegt annað sem kom fram sem olli því að okkur leist ekki á að gera samn- ing við Gísla, m.a. það að hann ætlaði aö nota 17 ára gamla bíla.” Árni sagði aö bæjarráð hefði ákveðið að gefa hin- um tveim bjóðendunum kost á aö taka þátt í lokuðu útboöi. Báðir hefðu þeir annast skóla- og hópferðaakstur og hefðu því reynslu og aðstööu til þessa rekstrar. Varðandi önnur tilboö í strætis- vagnaakstur á isafirði, sagði Árni, að maður af Akranesi hefði komið að máli við bæjarstjóra og bæjarstjórnarmenn og boðist til aö taka að sér aksturinn fyrlr rnun lægri upphæð en í nokkru hinna tilboöanna. Var bréf mannsins bókað í bæjarráði. „Hans mál er hins vegar ekkert til umræðu hjá okkur meðan verið er að ræða hin tvö,” sagði Árni. Aö hans sögn er það ekki sjálfgefið í svona málum að lægsta tilboði sé tekið. „Viö höfum oftar en einu sinni samið við lægstbjóðendur og orðið fyrir skakkaföllum vegna þess aö menn hafa ekki getað staðiö við skuldbind- ingar sínar. Þetta verður að meta eftir aöstæðum hverju sinni,” sagði Árni Sigurðsson. Samkvæmt útboösgögnum átti akst- ur að hefjast um leiö og skólar, 1. sept- ember, en horfur eru á að skólar hefj- ist ekki fyrr en eina til tvær vikur af september vegna skipulagsbreytinga og kennaraskorts og því ekki aðkall- andi að akstur hefjist fyrr. Á fundi bæjarráös á mánudaginn veröur tekin ákvöröun um hvort samið verður við lægstbjóðanda úr lokaða útboðinu eða hvort báðum tilboðunum verður hafn- að. Ef hið síðarnefnda gerist eru tveir möguleikar fyrir hendi: að aksturinn verði boðinn út aö nýju eöa að leitað verði samninga viö einhvern aöila um að taka hann að sér. ——■ -----------—— --------------Pé- 26908- H ALLDÓRS Johnson hf. i 178, Laugavegi 178, nœsta hús við Sjónvarpið, simi 686780. Skólavörur sem slá í ffegn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.