Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 7
DV. MIÐVKUDAGUR 4. SEPTEMBER1985.
7
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
I*il*8«ilSii
15 watta
hljómmögnun,
Segulband
með „Metal
og normal
stllllngum.
Útvarp, FM sterló
og MW-bylgjur.
50 watta
3 way hátalarar
Fallegur
vlðarskápur
með glerl
og á hjólum.
Verd aðefns
Klofningur innan bresku
verkalýðshreyfingarinnar
Næststærsta verkalýðsfélag
Bretlands neitaði að verða við fyrir-
mælum landssamtaka verkalýðs-
félaga og hætta að þiggja ríkisstyrki til
að fjármagna atkvæðagreiðslur. Þykir
nú horfa til klofnings innan hinnar
skipulögðu verkalýðshreyfingar
Breta.
Eftir fjögurra stunda fund forystu
Amalgamated Union of General
Workers (AUGW) í gær var fyrir-
mælum Trades Union Congress (TUC,
sem jafna mætti til ASl hér á Islandi)
hafnaö.
Leynilegar atkvæðagreiðslur um
verkfallsheimildir og kjör verkalýðs-
leiðtoga voru umbætur sem íhalds-
stjóm Thatchers beitti sér fyrir og
styrkir síðan verkalýðsfélögin með
nokkurri fjárhæð til að standa straum
af kostnaöi af slíku.
Líklegt þykir að TUC reki AUGW úr
landssamtökunum fyrir óhlýðnina en
samtök 335 þúsund rafvirkja lýstu því
yfir í gær að þau mundu segja sig úr
TUC ef AUGW yrði rekið úr
sambandinu.
Norman Willis, framkvæmdastjóri
TUC, átti viðræður við fjölda verka-
lýðsforkólfa í gær út af málinu en
virðist litt hafa náð einingu.
Verkalýflur í Bratlandi er ekki ð einu máli um ágæti verkalýflsfálagalaga
þeirra sem Thatcherstjórnin setti á. Lögin gera verkalýflsfálögum skylt afl
spyrja fólagsmenn sina álits áflur en farifl er i verkfall.
Adelsohn kennir
A-Þjóðverjum um
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DVíLundi:
Ulf Adelsohn, leiötogi sænskra
hægrimanna, lýsti því yfir í sænska
sjónvarpinu í gærkvöldi að hann teldi
nauðsynlegt fyrir Svía að taka upp
mjög harðar aðgerðir gagnvart a-
þýskum yfirvöldum sem leituðust við
að græða peninga á því að ferja út-
lenda flóttamenn til Svíþjóðar og ann-
arra landa V-Evrópu.
„Á sama tíma og a-þýskir borgarar
eru skotnir ef þeir reyna aö flýja land
sitt þá græða a-þýsk yfirvöld ómældar
fjárhæðir á flóttamönnum frá öðrum
löndum — það er fyrirlitlegt,” sagði
Adelsohn.
Meðal hugsanlegra aðgerða gegn A-
Þjóðverjum nefndi Adelsohn mögu-
leikann á að leggja niður ferjusam-
göngur milli Trelleborgar í Svíþjóð og
Sassnitz í A-Þýskalandi en það er ein-
mitt með ferjunum á þeirri leið sem
óslitinn straumur flóttamanna hefur
komið til Svíþjóðar á síðustu mán-
uðum.
Auglýst á spönsku
í Bandaríkjunum
Óskar Magnússon, DV, Washington:
Fjölmörg bandarísk stórfyrirtæki
birta nú auglýsingar með spönsku tali
en ekki ensku. Auglýsinga-
sérfræðingar benda á að fjöldi fólks af
spönsku bergi brotið í Bandaríkjunum
sé sennilega á bilinu 16 til 30 milljónir
manna.
Erfiðlega hefur gengið að finna
nákvæmari tölur vegna þess hve
margt af þessu fólki er ekki til á opin-
berum skrám. Hitt er talið ljóst að
spönskumælandi fólki fjölgi sex
sinnum hraöar en hvítum mönnum.
Meöalaldur fólks af suður-amerískum
uppruna er 22 ár, en meðalaldur
annarra Bandaríkjamanna er 30 ár.
Sérstakar auglýsingastofur hafa
verið settar á fót til aö annast
auglýsingagerð sem beinist að
spönskumælandi fólki. Sérfræðingar
þessara auglýsingastofa segja að
Spánverjar séu mjög tryggir
aðdáendur þeirra vörutegunda sem
þeir hafa einu sinni keypt. Og þótt þeir
geti sennilega flestir bjargað sér á
ensku er tryggðin við móðurmálið
auðvitað mikil.
Sérfræðingarnir segja að það sýni
þessu fólki virðingu að tala til þess á
móðurmálinu í auglýsingum. Þeir
viðurkenna vitaskuld líka aö um leið sé
hagnaðarvonin meiri.
Tækifæri til að auglýsa á spönsku
hafa aukist með útþenslu spönsku
sjónvarpsstöðvarinnar SIN.
Auglýsingar frá MacDonalds,
Polaroid, Eastern Airlines, Sears og
fleiri stórfyrirtækjum birtast
reglulega í spönsku sjónvarpsstöðinni.
Sérfræðingar auglýsingastofanna
vara við ýmsum hættum samfara
auglýsingagerð af þessu tagi. „Svona
auglýsingar verður að vanda mjög.
Þær fela í sér nokkra hættu á kynþátta-
misrétti. Það er til dæmis ekki nóg að
skella sombrero á hvern sem er til að
ná til þessa fólks, segir einn þeirra.
Umboðsmenn um land allt.
SJÖNVARPSBUÐIN
Lágmúla 7 — Reykjavík
Sími 68 53 33
jSjT
*****&*
Þúsund
drukkn-
uðu
Yfir eitt þúsund Japanir hafa
drukknað í sumar sem er nær
helmingur þess fjölda sem farist
hefur í umferðarslysum þar.
Það eru alls 2.356 sem farist hafa
í umferðarslysum á síðustu þrem
mánuðum en 1.015 hafa drukknað
eða týnst á sjó eða í flóðum. — Það
eru 55 færri dauöaslys í umferðinni
miðað við sama tíma í fyrra en 16
fleiri drukknanir.