Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1985, Blaðsíða 26
26
imm
DV. MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER1985.
Andlát
Hulda Michelsen ljósmyndari er látin.
Hún fæddist 26. nóvember 1912, dóttir
hjónanna Guörúnar Pálsdóttur og
Jörgen Frank Michelsen. Hún læröi
ung ljósmyndun hjá ljósmyndastof-
unni Jón & Vigfússon á Akureyri.
Lengst af starfaöi Hulda sem ljós-
myndari á Rannsóknarstofu Há-
skólans. Utför hennar var gerö frá
Fossvogskirkju í morgun.
Jón Hjartarson frá Sæbergi, V-Húna-
vatnssýslu, veröur jarðsunginn frá
Fossvogskapeilu föstudaginn 6. sept-
ember kl. 10.30.
Hilmar Símonarson, Vesturgötu 17
Akranesi, lést þann 25. ágúst. Utför
hefurfariðfram.
Bergþóra Elva Zebitz, Bræöraborgar-
stíg 13 Reykjavík, lést í Borgarspítal-
anum laugardaginn 31. ágúst.
Laufey Jóhannesdóttir, fyrrum hús-
freyja í Víöigeröi, Eyjafirði, veröur
jarösungin frá Grundarkirkju laugar-
daginn 7. september kl. 13.30.
Nanna Guðmundsdóttir frá Hóli,
Stöðvarfirði, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 5.
september kl. 16.30.
Erla Axelsdóttir lést 25. ágúst sl. Hún
fæddist í Reykjavík 19. apríl 1924, dótt-
ir hjónanna Axels Böövarssonar og
Margrétar H. Steindórsdóttur. Eftirlif-
andi eiginmaður hennar er Einar Ingi-
mundarson. Þau hjónin eignuðust þrjú
böm. Utför Erlu veröur gerö frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 13.30.
Þorbjörg Guðrún Guðlaugsdóttir
Wium, Drápuhlíð 15, sem andaöist 23.
ágúst sl., verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 5.
september kl. 13.30.
Árai ögmundsson, Galtafelli, Hruna-
mannahreppi, verður jarðsunginn frá
Hrepphólakirkju föstudaginn 6.
september kl. 14.
Herluf Poulsen, Hraunbrún 40, Hafnar-
firði, verður jarðsunginn frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði fimmtudaginn 5.
september kl. 15.
Tilkynningar
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Farið verður í skemmtiferðina laugardaginn
6. september. Vinsamlegast látið vita fyrir
fimmtudag. Aliar upplýsingar veittar eftir kl.
19 í símum 81742 Þuríður, 23630 Sigríður og
82367 Erla.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á Holta-
seli 20, þingl. eign Helga Kr. Eirikssonar, fer fram eftir kröfu Búnaðar-
banka Islands, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Jóns Ólafssonar hrl., Haf-
steins Sigurðssonar hrl. og Steingríms Þormóðssonar hdl. á eigninni
sjálfri föstudaginn 6. september 1985 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á hluta í
Kambaseli 56, þingl. eign Dóru Kr. Guðmundsdóttur, fer fram eftir
kröfu Landsbanka Islands og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri
föstudaginn6. september 1985 kl. 15.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 87., 94. og 103. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á hluta i
Barmahlíð 8, þingl. eign Guðmundar Stefánssonar og Helgu Árnadótt-
ur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Veðdeildar Lands-
bankans og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 6.
september 1985 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á hluta i Kríuhólum 4, tal. eign Jóns H. Garðarssonar, fer fram eftir kröfu Péturs Guðmundarsonar hdl., Jóns Ingólfssonar hdl., Jóns Ólafssonar hrl. og Landsbanka islands á eigninni sjálfri föstudaginn 6. september 1985 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var i 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á hluta í Kríuhólum6, þingl. eign Margrétar Jóhannsdóttur, Sigurðar, Sveins og Asbjargar R. Jónsbarna, fer fram eftir kröfu Guðjóns A. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 6. september 1985 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik.;
Nauðungaruppboð sem auglýst var i 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á hluta i Bogahliö 22, þingl. eign Þórunnar Andrésdóttur Kjerulf, fer fram eftir kröfu Brynjólfs Eyvindssonar hdl., Jóhanns Þórðarsonar hdl., Arn- mundar Backman hdl. og Baldurs Guðlaugssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 6. september 1985 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
I gærkvöldi I gærkvöldi
Albert lét ekki snúa á sig
Að mínu mati er breski mynda-
flokkurinn Charlie einhver sá allra
leiöinlegasti sem sjónvarpiö hefur
sýnt og hafa þó ekki allir verið upp á
það besta.
Atburðarásin er mjög flókin og svo
margir kallaöir til sögunnar að varla
er búið að fá þráö að spinna almenni-
lega úr og aðeins einn þáttur eftir.
I guðanna bænum forðið okkur frá
breskri verkalýðsbaráttu í framtíð-
inni. Ef einhverjum finnst Dallas-
fólkiö vera forskrúfaö og ekki í takt
við tímann þá finnst mér svona þætt-
ir ekki vera það heldur, kannski'
öfgarnar í hina áttina.
Fjármálaráðherra svaraði spurn-
ingum knárra fréttahauka og lét þá
ekkert snúa á sig. Þetta var mjög
fróðlegur þáttur. Það er ekki
lítilsvirði að fá að vita hvað nafnlaus
almenningur segir um þennan fræga
stjórnmála- og knattspyrnumann.
Það væri sannarlega skemmtilegt
að fá Geir Hallgrímsson í sams
konar þátt með sömu spyrjendunum.
Veðurfregnir voru á skjánum í
gærkvöldi eins og venjulega en að
þessu sinni voru þær „life” frá
stúdiói útvarpsins í Laugardalshöll-
inni. Undirritaður rétt missti af
Markúsi, honum hefur eflaust tekist
vel upp.
Vegna heimsóknar í Laugardals-
höllina missti ég einnig af fréttunum.
Nú vita allir að fréttirnar í útvarpinu
eru kl. 7 og standa yfirleitt til 7.30 eöa
jafnvel lengur. Þá fara heimilishald-
arar að ganga frá í eldhúsinu og
koma niöur bömunum ef einhver
eru. Margir missa því af byrjun sjón-
varpsfréttanna eða verða að láta
eitthvað af hefðbundnum verkum
bíða.
Væri ekki tilvalið aö færa sjón-
varpsfréttatímann aftur um einn klt.
og hafa fréttirnar ekki fyrr en kl. 9.
Utsendingar geta auðvitað hafist á
sama tíma en tímann mætti nýta
fyrir léttmeti og náttúrulífsmyndir
sem eru á dagskránni seinna á
kvöldin.
Mér finnst einnig að sjónvarps-
fréttir eigi ekki að vera upptugga á
fréttum sem allir eru nýbúnir að
hlusta á í útvarpi, eins og svo oft hef-
ur verið bent á. Mér finnst einnig að
sjónvarpið ætti að leggja meiri
áherslu á innlendar fréttamyndir. Að
minu mati mætti aö skaðlausu
sleppa erlendu stríðsmyndunum.
Þær má svo hafa á dagskrá svona
tvisvar í mánuöi með smá yfirliti, til
þess að fólk vissi hvað er aö gerast í
stórum dráttum.
Fréttirnar í sjónvarpinu þurfa að
komast svolítið nær okkur hér á Is-
landi. Það er þó fyrst og fremst það
sem skiptir okkur máli.
Eg hugsa hreinlega að Islendingar
almennt séu betur inni í öllum mögu-
legum stríðum og byltingum úti í
heimi heldur en þorri fólks í öðrum
löndum. Það er svo sem ekkert við
það að athuga en mér finnst að fyrst
ættum við að vita um okkar eigin
hagi og svo má hitt koma ofan á.
A.Bj.
Opnuvíðsál viö Pótu? Péíuisscn # Vöyíjmynd af
Ouran Ouran st Liíla rauða ryksugan ný fram-
haldssaga eflir Hertíísí Egiisdóttur K-ass-
gátur # þrautir # ftíndur # spurninnaleikír,
Pétur Pétursson í
Veggmynd fyigir Æskunni og er hún af Dur-
an Duran. I poppþættinum er kynnt hljóm-
sveitin Frankie Goes To Hollywood, þar er
einnig efnt til getraunar og skoöanakönnunar
um efni þáttarins. Hverageröi er heimsótt,
krakkar þar teknir tali og barnaritnefndin
ræöir viö Hafstein Kristinsson, forstjóra Kjör-
íss.
í þættinum Sannleiksopnunni eru birt nokk-
ur bréf sem börn hafa skrifað Guði og svarað
er spurningunni: Er barnalegt aö biðja til
Guðs?
Margs konar þrautir eru í blaöinu, kross-
gátur og spurningaleikir.
Ritstjórar Æskunnar eru Eðvarð Ingólfsson
og Karl Helgason en útgefandi er Stórstúka
Islands.
Háskólafyrirlestur
Halvard Mageröy, prófessor í íslensku við há-
skólann í Osló, flytur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Háskóla Islands
fimmtudaginn 12. september 1985 kl. 17.15 í
stofu 423 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist „Aristóteles og
Snorri” og verður fluttur á íslensku.
Öllum er heimill aðgangur.
Haustmót T.S.
Dagskrá.
Haust-mót T.S. hefst 10. sept. kl. 7.30. Tefldar
verða 9 umferðir eftir monrad kerfi. Teflt
verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl.
7.30 og laugardögum kl. 2.
Firmakeppnin hefst þriðjudaginn 1. okt. kl. 8.
Sept. hraðskák 5. sept. kl. 8.
Okt. hraðskák 3. okt. kl. 8.
Nóv. hraðskák7. nóv. kl. 8.
Des. hraðskák 5. des. kl. 8.
Jólahraðskák 28. des. kl. 2.
Nýtt mót. Sandvíkur-mót, vegleg verk-
færaverðlaun, verður haldiö helgina 2.-3.
nóv. kl. 2 báða dagana. Umhugsunartími
verður 30 mín. á skák. Tefldar veröa 7 um-
ferðir eftir monrad-kerfi.
Bónusverkfall á Austf jörðum
opnuviðtali
Æskunnar ...
6. tbl. Æskunnar er komið út. Þar kennir ým-
issa grasa eins og endranær. Opnuviðtalið er
að þessu sinni við atvinnuknattspymumanninn
Pétur Pétursson. Fyrsti hluti nýrrar fram-
haldssögu eftir Herdísi Egilsdóttur birtist í
blaðinu. Nefnist hún Litla, rauða ryksugan.
Sagt er frá ferð tveggja verðlaunahafa til
Stokkhólms en þeir unnu til hennar með
áskriftasöfnun.
Þrjú verkalýðsfélög á Austurlandi
tilkynntu í gær að í byrjun næstu viku
myndu félagsmenn þeirra leggja niður
bónusvinnu. Er þetta gert til að þrýsta
á um breytingu á bónuskerfi í fisk-
vinnslunni.
Verkalýðsfélögin eru Árvakur á
Eskifirði, Verkalýðs- og sjómanna-
félag Breiðdælinga, Breiðdalsvík, og
Verkalýðs- og sjómannafélag Vopna-
fjarðar.
-KMU.
r|jL ;,Vk| V|t V
Storfsfólk Þjóðleikhússins mætt til að undirbúa annasaman vetur.
LANDSLIÐIÐ í SÖNG
í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Skærustu stjömurnar úr hópi ís-
lenskra söngvara verða á fjölum
Þjóðleikhússins í fyrsta verkefni
þessa leikárs. Er það Grímudans-
leikurinn, hin kunna ópera Verdis.
Meðal söngvara má nefna Kristján
Jóhannsson, Kristin Sigmundsson
og Sigríöi Ellu Magnúsdóttur. Alls
taka um 70 manns þátt í sýningunni
auk hljómsveitar. Leikstjóri er
Sveinn Einarsson. Vegna þess að
Kristján Jóhannsson er mjög bund-
inn við önnur störf verða vart fleiri
en 15 sýningar á óperunni.
Alls verða 8 verk sýnd hjá Þjóð-
leikhúsinu í vetur. Gamanleikurinn
Með vífið í lúkunum verður nú fyrst
sýndur þar eftir að hafa verið sýnd-
ur 14 sinnum úti á landi í sumar. Þá
verða sýnd þrjú klassísk leikrit:
Villihunang eftir Tsjékhov, I deigl-
unni eftir Arthur Miller og loks Rík-
harður III. eftir Shakespeare. Nýtt
leikrit eftir Birgi Engilberts verður
og frumsýnt eftir áramótin. Á út-
mánuðum verður einnig frumsýnt
nýlegt enskt leikrit, Ástríðuleikur,
eftir Peter Nicholls. Þá er Marjo
Kuusela aö semja ballett fyrir Is-
lenska dansflokkinn til sýningar í
vor.
GK