Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. 11 Leikfólag Hafnarfjaröar: Fúsi froskagleypir Höfundur: Ole Lund Kirkegaard Þýöandi: Olga Guflrún Árnadóttir Söngtextar: ólafur Haukur Símonarson Tónlist: Jóhann Morávek Ljósameistari: Lárus Björnsson Leikstjóri: Viöar Eggertsson Búningar: Alda Siguröardóttir Leikmynd: Kristfn Reynisdóttir Dýragervi: Margrót Magnúsdóttir Hvaö er verra í lífsins ljóta tafli en lágmarks kvóti af stærö og vöðvaafli? 0, hvaö þaö væri verulega gaman að geta vafiö ljósastaurum saman. Hvílík pína aö vera bara putti ponsulítill vöövalinur gutti. Þett’er mín bæn til æöstu himin- stöðva: Elsku Drottinn veit mér stærri vööva. (Olafur Haukur Símonarson.) Já, þaö er ekkert grín að vera lítill strákur í bænum þar sem hann Fúsi froskagleypir leikur lausum hala. Hann hrekkir og svekkir litlu strákana og hefði örugglega verið kallaður Skrekkur Brekkunnar heföi hann búið á Akureyri. En eins og allt- af, þegar yfirburðimir felast í klof- lengd og aflsmun, eiga þeir litlu tromp uppi í erminni. Fúsi er nefni- lega óttalega auötrúa og þess vegna tekst stundum aö snúa á hann og þá getur ýmislegt gerst. Smiðurinn sterki dregur til dæmis ekki af kröftunum þegar hann veitir Fúsa ráðningu og þá hlakkar í litlu pollunum. Þannig er tvísýnt um leikslok í þessu stríöi þangað til sirkus kemur í bæinn. Þá hleypur heldur en ekki á snærið fyrir Fúsa, gott ef hann verður bara ekki heimsfrægur, áöur en yfir lýkur. Þessa sögu Ole Lund Kirkegaard þekkja margir krakkar og nú á sunnudaginn var frumsýndi Leik- félag Hafnarfjarðar leikritiö við góöar undirtektir. Þetta er fjölmenn sýning og veltil hennar vandaö. Þýðing Olgu Guðrúnar Áma- dóttur er lipur og vel unnin, sem er höfuðatriði í sýningu fyrir böm. Tónlist er sérstaklega samin fyrir þessa sýningu. Höfundur hennar er Jóhann Morávek og er hann jafn- Leiklist AuðurEydal framt stjórnandi hljómsveitar. Fjörug lögin og skemmtilegir söng- textar Ölafs Hauks Símonarsonar lífga mikið upp á sýninguna og eru kannske þaö sem skiptir sköpum. Fjöldi leikenda tekur þátt í sýn- ingunni. Búningar eru einkar vel gerðir, fagurlitir og fjölbreyttir, þannig að oft ríkir mikil litadýrð og f jör á sviðinu. Helstu hlutverk eru í höndum þeirra Hönnu Bjarkar Guðjónsdóttur (Eg), Halldórs Magnússonar (Jakob) og Davíðs Þórs Jónssonar (Fúsi). Þau leika öll ágætlega, eink- um vakti frammistaða Hönnu Bjarkar athygli mína. Gott var til þess að vita hversu framsögn leik- enda var yfirleitt skýr. Þau Hanna Björk og Davíð Þór mynda skemmtilegar andstæður. Eg, ráöagóði smápollinn, í stóru, grænu buxunum, smýgur hvað eftir annaö úr greipum hrekkjalómsins Fúsa sem slettist um reykjandi og ragnandi, en er í rauninni besta skinn inni við beinið. Ef allir eru á einu máli um að ég sé ljótur ég ætla bara að verða sem allra mestur þrjótur. (O.H.S.) Margar aðrar persónur koma við sögu, heimafólk og sirkusstjömur. Hópatriði eru mörg og öllu saman stjómar Viðar Eggertsson leikstjóri af góðum skilningi á því aö i sögu sem þessari má sjálft ævintýrið aldrei glatast. Með mér á sýningunni voru tveir ungir synir mínir. Þeir skemmtu sér konunglega og voru sammála um að þetta hefði verið aldeilis ágæt sýn- ing. Ég held að ég geri þeirra orð að mínum því að hér eru það auðvitað undirtektir barnanna sem segja best til um hvernig til hefur tekist. AE Nú gerist hann fjör ugur Fjörðurinn Sviösmynd úr Fúsa froskagleypi i uppfærslu Leikfélags Hafnarfjarflar. Reyðarfjörður: Loðnuverksmiðjan stendur ónotuð — þrátt fyrir mikla veiði Frá Vigfúsi Ölafssyni, fréttaritara DV á Reyðarfirði: Loðnuverksmiðja ríkisins á Reyðar- firði stendur nú nær ónotuð þrátt fyrir mikla loðnuveiði. Ríkir almenn óánægja á staðnum vegna þessa því að þetta fyrirkomulag hefur mikil áhrif á atvinnulíf staðarins. í Síldarverksmiðjur ríkisins á Seyðis- firði en þar hefur nú verið landað um 50.000 tonnum. En á Eskifirði hefur einnig verið landað um 50.000 tonnum og er það ekki lengri sigling en til Reyðarfjarðar. Loðnuverksmiðjan hér hefur aftur aðeins fengið 2—3000 tonn úr áður- greindum tveim löndunum. Ríkir mikil óánægja meðal staðarbúa með þetta fyrirkomulag, eins og áður sagði, því sem stendur er ekki hægt að treysta á verksmiðjuna sem öruggan þátt í at- vinnulífi Reyðarf jarðar. Born i Fjolufotum Svo virðist sem loðnuverksmiðjunni sé ætlaö að taka viö afla þegar toppar eru og löndunarpláss þrýtur annars staöar. Hér hafa aðeins landaö tveir bátar þegar þetta er ritað. Hins vegar er algeng sjón að sjá báta sigla hér framhjá, drekkhlaðna, á leið til Færeyja. Sú skýring hefur verið höfð á takteinum að lengra sé fyrir bátana að ‘ sigla til Reyðarfjaröar en á aðra löndunarstaöi í nágrenninu. Þetta er ekki alls kostar rétt. Að vísu er styttra Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara DVáSelfossi: Nýlega hélt Fjóla Backman sýningu á Fjólufatnaði fyrir börn. Var sýningin haldin vegna fjölda áskorana. Sýningarnar voru haldnar í Tryggva- skála, en ekki Gjánni eins og fyrri sýningar, því á síðarnefnda staönum eru vínveitingar og börnum því ekki heimill aðgangur. Sýningarnar heppnuðust báðar mjög vel og þótti börnunum mikið gaman að sjá skólasystkin sín í Fjólufatnaði. Þess má geta að Fjóla útskrifaðist úr Húsmæðraskólanum Osk á Isafirði 17 ára gömul. Að eigin sögn var hún ekki mikið gefin fyrir saumaskap á þeim tíma. En svo kom andinn yfir Fjólu þegar hún giftist, átti þrjú börn með stuttu millibili og fór aö sauma á þau. Níjt1;, ivT/itt! Glerskálar með eða án loks. I nýju gjafa- og búsáhaldadeild okkar á 2. hœð í JL-húsinu fást sérlega fallegar og vandaðar vörur. Nocture-glös. og margt fleira. Jón Loftsson hf. E3iJ □ JIÍQlJJ'. u i_ii JUQ 11 Hringbraut 121 Sími 10600 Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð ís-glös og eftirréttaglös I miklu úrvali. Verslið þar sem úrvalið er mest og kjörin best. vrs* Eldfastar skálar. Kökudiskar í úrvali Ballon-glös.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.