Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Blaðsíða 17
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985.
Lesendur Lesendur Lesendur
Vandláturskrifar:
Góð tónlist hjá Gunn-
ari Salvarssyni
Vandlátur skrifar:
Það hefur löngum vantað tilfinn-
anlega létta, sígilda tónlist í hljóð-
varpið, einkum þá sem oft er flokkuð
undir svokallaða „easy listening“.
Þegar rás 2 kom í gagnið hélt;
maður að slík tónlist fengi þar nokk-
urt rúm. - Það er þó ekki svo.
Hins vegar eru þar stöku þættir,
en alltof sjaldan, sem eru áheyrilegir
og flokka má undir þess konar tón-
list. Þar má nefna þætti Svavars
Gests og þætti Gunnars Salvarsson-
ar, sem hann nefnir Nú er lag, þætti
með gömlum og nýjum úrvalslögum.
Slíkur þáttur var t.d. sl. miðviku-
dag (23.10.) þar sem fram komu m.a.
Frank Sinatra, Ella Fitzgerald og
ýmis „big band“-lög þar sem mikið
er um „brass“, eins og þeir segja fyrir
vestan í „guðseiginlandi11.
En - það vantar meira af þessari
ljúfu tónlist. Og úr því ekki er hægt
að hafa fasta þætti með svona tónlist
í rás I þá verður Ríkisútvarpið að
taka sig á og hafa fleiri þætti á nýju
rásinni.
Sannleikurinn er sá að á rás I
hæfir þessi tónlist vel til flutnings,
t.d. um miðjan dag en ekki síður á
morgnana, og væri margfalt betur
þegin en þetta sífellda vandamála-
þrugl þegar maður er að stíga fyrstu
sporin á morgnana, ásamt sænskum
vísnasöngvurum og slögurum frá
Berlínartímum Hitlers sáluga.
Hádegisútvarpið væri náttúrlega
tilvalinn tími og sá allra besti til að
leika þessa tónlist með tilkynningum
og stuttum fréttum í bland í staðinn
fyrir dánarfregnir og jarðarfarir og
langar veðurfréttir sem eru orðnar
plága á þjóðinni eins og týndu skipin
sem verið er að auglýsa eftir fyrir
útgerðarmennina.
Eins er enginn sérstakur þáttur
fyrir suður-ameriska tónlist sem er í
miklum metum hjá fjölda fólks,
sennilega flestöllum landsmönnum,
þvi íslendingar eru suður-amerískari
í sér en margar aðrar þjóðir og því
lætur suður-ameríski „rytminn" vel
í eyrum íslendinga.
Þessi tónlist, sem hér hefur verið
rætt um, er vart á dagskrá í rás I,
nema þegar þulir setja á fóninn plötu
og plötu ef tóm gefst til, t.d. fyrir
fréttir eða tilkynningar og þegar
beðið er eftir næsta dagskrárlið. -
Það skal þó metið við þá, og sýnir
viðleitni þeirra og góðan smekk, en
gengur allt of skammt og nýtist ekki
sem afþreying.
Gunnars þættir Salvarssonar eru
dæmi um þá tegund tónlistar sem
þarf miklu meira rúm á báðum rásum
hljóðvarps.
Rás2:
„Spilið meira
með Rolling
Stones”
Guðmundur hringdi: „Hvernig
væri að fá að heyra meira frá vin-
sælustu hljómsveit síðustu 20 ára,
Rolling Stones? Það er eins og
þáttastjórnendur á rás 2 hafi ekki
heyrt á þessa hljómsveit minnst. 1
raun veitti ekki af að gera þáttaröð
um þessa stórkostlegu hljómsveit
ef vel á að vera. Einnig vil ég skora
á sjónvarpið að sýna hljómleika-
þátt með þeim en þetta er örugg-
lega ein besta „live“-hljómsveit
sem til er og þá sérstaklega þeir
Jagger og Richard. Það kynnu
örugglega flestir „alvarlega hugs-
andi“ menn að meta það.“
Flestir sem hafa farið á tónleika
Rolling Stones eru sammála um
að það sé ógleymanleg upplifun,
enda ekki furða, þarna eru
reyndir menn á ferð, farnir að
nálgast fimmtugt.
Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður færð á kortið.
Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
og ganga frá öllu i sama símtali.
Hámark kortaúttektar í sima er kr. 2.050,-
Hafið tilbúið:
Nafn — heimilisfang — síma — nafnnúmer — kortnúmer
og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.
Athugið!
Áfram verður veittur staðgreiðsluafsláttur af auglýsingum,
sem greiddar eru á staðnum.
17
•n-tc-k-k-n-k-kkk-K-k-k-k-k-kk-K-kkk-kkk-k-K-k-k-K-kk-k-tc-k-k-k-k-k-k-K-k-k-K-k-k-k-k-k
tÓska eftir stórum vöru-!
* *
j lagerum fyrir jólamark-\
í að. Nánari uppl. eftir kl. 20 í síma 45694. \
¥ *
-tc-tc-tc-tc-tc-tc-K-tc-tc-tc-k-tc-tc-k-tc-tc-tc-k-tc-tc-k-tc-tc-k-tc-k-tc-k-k-tc-tc-ic-tc-tc-tc-k-tc-ic-k-k-k-k-k-k-k-k-k
Siðumúla 17, Sími 37140
** H
III ■ IV mmm 111 1 IhW 1 MAZDA l ■' « 8111 lilik
frá kr. m/sölusk.
Vatnsdælur 1.320,00
Kúplingspressur 2.167,00
Kúplingsdiskar 1.474,00
Kúplingslegur 487,00
Bremsuk-lossar 550,00
Startarar 2.640,00
Kveikjulok 198,00
Platínur 99,00
Kveikjuhamrar 123,00
Kveikjuþéttar 125,00
Hitarofar 275,00
Olíurofar 655,00
NIPPARTS á íslandi BÍLVANGUR sf
HÖFÐABAKKA 9 5IMI 687300