Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Qupperneq 17
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. Lesendur Lesendur Lesendur Vandláturskrifar: Góð tónlist hjá Gunn- ari Salvarssyni Vandlátur skrifar: Það hefur löngum vantað tilfinn- anlega létta, sígilda tónlist í hljóð- varpið, einkum þá sem oft er flokkuð undir svokallaða „easy listening“. Þegar rás 2 kom í gagnið hélt; maður að slík tónlist fengi þar nokk- urt rúm. - Það er þó ekki svo. Hins vegar eru þar stöku þættir, en alltof sjaldan, sem eru áheyrilegir og flokka má undir þess konar tón- list. Þar má nefna þætti Svavars Gests og þætti Gunnars Salvarsson- ar, sem hann nefnir Nú er lag, þætti með gömlum og nýjum úrvalslögum. Slíkur þáttur var t.d. sl. miðviku- dag (23.10.) þar sem fram komu m.a. Frank Sinatra, Ella Fitzgerald og ýmis „big band“-lög þar sem mikið er um „brass“, eins og þeir segja fyrir vestan í „guðseiginlandi11. En - það vantar meira af þessari ljúfu tónlist. Og úr því ekki er hægt að hafa fasta þætti með svona tónlist í rás I þá verður Ríkisútvarpið að taka sig á og hafa fleiri þætti á nýju rásinni. Sannleikurinn er sá að á rás I hæfir þessi tónlist vel til flutnings, t.d. um miðjan dag en ekki síður á morgnana, og væri margfalt betur þegin en þetta sífellda vandamála- þrugl þegar maður er að stíga fyrstu sporin á morgnana, ásamt sænskum vísnasöngvurum og slögurum frá Berlínartímum Hitlers sáluga. Hádegisútvarpið væri náttúrlega tilvalinn tími og sá allra besti til að leika þessa tónlist með tilkynningum og stuttum fréttum í bland í staðinn fyrir dánarfregnir og jarðarfarir og langar veðurfréttir sem eru orðnar plága á þjóðinni eins og týndu skipin sem verið er að auglýsa eftir fyrir útgerðarmennina. Eins er enginn sérstakur þáttur fyrir suður-ameriska tónlist sem er í miklum metum hjá fjölda fólks, sennilega flestöllum landsmönnum, þvi íslendingar eru suður-amerískari í sér en margar aðrar þjóðir og því lætur suður-ameríski „rytminn" vel í eyrum íslendinga. Þessi tónlist, sem hér hefur verið rætt um, er vart á dagskrá í rás I, nema þegar þulir setja á fóninn plötu og plötu ef tóm gefst til, t.d. fyrir fréttir eða tilkynningar og þegar beðið er eftir næsta dagskrárlið. - Það skal þó metið við þá, og sýnir viðleitni þeirra og góðan smekk, en gengur allt of skammt og nýtist ekki sem afþreying. Gunnars þættir Salvarssonar eru dæmi um þá tegund tónlistar sem þarf miklu meira rúm á báðum rásum hljóðvarps. Rás2: „Spilið meira með Rolling Stones” Guðmundur hringdi: „Hvernig væri að fá að heyra meira frá vin- sælustu hljómsveit síðustu 20 ára, Rolling Stones? Það er eins og þáttastjórnendur á rás 2 hafi ekki heyrt á þessa hljómsveit minnst. 1 raun veitti ekki af að gera þáttaröð um þessa stórkostlegu hljómsveit ef vel á að vera. Einnig vil ég skora á sjónvarpið að sýna hljómleika- þátt með þeim en þetta er örugg- lega ein besta „live“-hljómsveit sem til er og þá sérstaklega þeir Jagger og Richard. Það kynnu örugglega flestir „alvarlega hugs- andi“ menn að meta það.“ Flestir sem hafa farið á tónleika Rolling Stones eru sammála um að það sé ógleymanleg upplifun, enda ekki furða, þarna eru reyndir menn á ferð, farnir að nálgast fimmtugt. Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður færð á kortið. Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar og ganga frá öllu i sama símtali. Hámark kortaúttektar í sima er kr. 2.050,- Hafið tilbúið: Nafn — heimilisfang — síma — nafnnúmer — kortnúmer og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar. Athugið! Áfram verður veittur staðgreiðsluafsláttur af auglýsingum, sem greiddar eru á staðnum. 17 •n-tc-k-k-n-k-kkk-K-k-k-k-k-kk-K-kkk-kkk-k-K-k-k-K-kk-k-tc-k-k-k-k-k-k-K-k-k-K-k-k-k-k-k tÓska eftir stórum vöru-! * * j lagerum fyrir jólamark-\ í að. Nánari uppl. eftir kl. 20 í síma 45694. \ ¥ * -tc-tc-tc-tc-tc-tc-K-tc-tc-tc-k-tc-tc-k-tc-tc-tc-k-tc-tc-k-tc-tc-k-tc-k-tc-k-k-tc-tc-ic-tc-tc-tc-k-tc-ic-k-k-k-k-k-k-k-k-k Siðumúla 17, Sími 37140 ** H III ■ IV mmm 111 1 IhW 1 MAZDA l ■' « 8111 lilik frá kr. m/sölusk. Vatnsdælur 1.320,00 Kúplingspressur 2.167,00 Kúplingsdiskar 1.474,00 Kúplingslegur 487,00 Bremsuk-lossar 550,00 Startarar 2.640,00 Kveikjulok 198,00 Platínur 99,00 Kveikjuhamrar 123,00 Kveikjuþéttar 125,00 Hitarofar 275,00 Olíurofar 655,00 NIPPARTS á íslandi BÍLVANGUR sf HÖFÐABAKKA 9 5IMI 687300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.