Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Síða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986. 5
Fréttir Fréttir Fréttir
Fokkervélin dregin af Suðurgötunni þremur klukkustundum eftir óhappið.
DV myndS.
Slökkvilið-
ið kom seint
á vettvang
Haraldur Karlsson við olíubílinn: „Ég var kominn svona fjórai' til fimm bíllengdir á þessum stóra bíl frá flugvallarendan-
um þegar flugvélin fór fram af.“ DV-mynd: S.
Olíubíll rétt slapp
undan flugvélinni
„Ég var nýbúinn að fara þetta, bara
fyrir nokkrum sekúndum. Ég var
kominn svona fjórar til fimm bíl-
lengdir á þessum stóra bíl fró flug-
vallarendanum þegar flugvélin fór
fram af,“ sagði Haraldur Karlsson,
bílstjóri olíuflutningabíls Skeljungs,
sem var á leið um Suðurgötuna í ótt
að olíustöðinni í Skerjafirði.
„Ég var bara rétt kominn í beygjuna
þegar flugvélin kom fyrir aftan mig.
Ég var alveg nýbúinn að fara fyrir
brautarendann.
Ég sá flugvélina koma þarna niður
brautina á mikilli ferð. Ég só strax
að það var eitthvað skrýtið við þetta.
Hún var á svo miklum hraða.
Ef ég hefði aðeins orðið fyrir ein-
hverjum smátöfum væri ég stein-
dauður. Ég er alveg klár ó því. Ef
flugvélin hefði lent á mér hefði hún
bara rúllað bílnum á undan sér. Þetta
hefði lagst allt saman.
En ég er ekkert viss um að að þetta
hefði sprungið. En þó veit maður
aldrei. Geymirinn var tómur og það
er meiri hætta á að þeir springi þegar
þeir eru tómir. Þá eru gufumar alls-
ráðandi. Eldur frá flugvélinni ’ hefði
hugsanlega getað skapað sprengingu
íþessu.
Mér skilst að einhver smádrengur
hafi staðið þarna við girðinguna.
Hann hefur ekki verið nema svona
5-6 metra frá vélinni. Ég tók reyndar
sjálfur ekki eftir honum," sagði Har-
aldur Karlsson.
-KMU
Farþegar um borð og starfsmenn
Flugleiða, sem fyrstir komu á vett-
vang, virðast sammála um að slökkvi-
lið Reykjavíkurflugvallar hafi komið
seint á staðinn. DV spurði Guðmund
Guðmundsson flugvallarslökkviliðs-
stjóra um þetta:
„Útkall hjá okkur og hingað niður
eftir er ein og hálf mínúta.“
- Kemur útkallið ekki um leið og
þetta gertst?
„Það virðist ekki gera það, nei.“ -
Veistu hvað leið langur tími frá því
að þetta gerðist þangað til þið voruð
komnir á staðinn?
„Nei. Ég hef ekkert talað við þá í
flugtuminum um það ennþá.
- Þú hefur sem sagt gmn um að þið
hafið frétt þetta seint?
„Já.“
- Veistu hvers vegna?
„Nei. Ég er ekki búinn að tala við
þá í flugturninum."
- Var skvggni slæmt? Er hugsanlegt
að starfsmenn í flugtumi hafi ekki
séð hingað?
„Nei, nei," svaraði slökkviliðsstjór-
inn.
-KMU
Kaffíveitingar
eftirflugóhapp
- farþegar biðu rólegir
eftir næstu ferð vestur
Flugleiðir buðu farþegum sfnum
á leið til Þingeyrar upp ó kaffi og
meðlæti í hádeginu í gær. Það var
beðið eftir annarri flugvél sem flutt
gæti fólkið vestur ó Þingeyri. Það
hafði mistekist í fyrstu tilraun.
Árfari, ein af Fokker-vélum Flug-
leiða, komst aldrei lengra en út á
Suðurgötu þar sem hún ló þversum
ó veginum, brotin og illa farin.
Þegar eftir óhappið var farið með
farþegana, 41 að tölu, í farþegaaf-
greiðslu innanlandsflugs Flugleiða
þar sem kaffiveitingar voru fram-
reiddar. Fólk ræddist við í hálfum
hljóðum og flestir voru ákveðnir i
að halda ferðinni áfram. Mesta
mildi var að enginn slasaðist,
„...þetta er vissulega lífsreynsla en
það er best að halda áfram", var
viðkvæðið.
-EIR
Ólafur Ólafsson landlæknir og Inga,
ciginkona hans: -Það vantaði ein-
ihvern kraft. DV-myndir E.J.
„Mérbrá“
-sagði landlæknir
semvar meðal
farþega í Árfara
„Mér þótti merkilegt að sjá hversu
rólegir farþegarnir voru,“ sagði
Ólafur Ólafsson landlæknir en hann
var meðai farþega í Fokker-vél
Flugleiða sem endaði flugtak sitt á
miðri Suðurgötu. „Hræðsla virtist
ekki grípa um sig í vélinni og það
komust allir út fljótt og vel. En mér
þótti slökkviliðið vera óeðlilega
lengi á leiðinni. Ég ætla að líta
nánar á það mál,“ sagði landlæknir
sem meðal annars á sæti í Almanna-
varnaráði. Landlæknir var á leiö til
Þingeyrar ásamt eiginkonu sinni.
Ingu Ólafsson. þar sem hann ætlar
að gegna læknisþjónustu á næs-
tunni. Þau voru bæði staðráðin í
að halda ferðinni áfram.
„Það er eiginlega ómögulegt að
segja hvað gerðist þama í raun og
veru. Flugvélin virtist hvorki geta
tekið sig á loft né stansað. Það
vantaði einhvem kraft. Þetta var-
aði aðeins í nokkrar sekúndur en
ég neita því ekki, mér brá,“ sagði
landlæknir. Inga, eiginkona lians,
sagðist hins vegar hafa verið að
liugsa um á hvaða braut flugvélin
væri: „Ég var hrædd um að hún
færi út í sjó.“
-EIR
Hákonía og Guðlaugur fá sér hressingu á kaffistofu Flugleiða skömmu eftir
óhappið,
„Höldum
áfram“
-sögðuhjón
fráTálknafirði
„ Við setjum þetta ekki fyrir
okkur og höldum ótrauð áfram
vestur þegar flugvélin er ferðbúin,"
sögðu þau Guðlaugur Guðmunds-
son og eiginkona hans, Hákonía
Páisdóttir, sem búsett eru á Tálk-
nafirði.
„Hrædd? Það var nú enginn tími
til að hugsa um slíkt, þetta gerðist
svo snöggt. Það var eins og vélin
gæti ekki liafið sig til flugs. Svo
endaði hún þarna úti á miðri götu,"
sögðu Tálknfirðingarnir. „Það var
reyndar ótrúlegt hversu mikla still-
ingu farþegarnir sýndu við þessar
aðstæður."
-EIR
„Fólkið
. 'mí í
gret
„Fólkið grét, bæði böm og full-
orðnir, þegar það var komið út úr
flugvélinni. Þetta var álag á tauga-
kerfið," sagði Einar Þorleifsson frá
Reykjavík en hann var á leið vestur
áÞingeyri.
Einar kvað það furðulegt hversu
lengi slökkviliðið hefði verið að
komast á staðinn þó ekki væri langt
að fara: „Dróttarvagnarnir sem
notaðir eru til að keyra töskur og
farangur út í vélarnar voru meira
að segja komnir á undan slökkvibíl-
unum. Það var eins gott að ekki
gaus upp eldur,“ sagði Einar.
-EIR
Einar Þorleifsson: - Hvar var
slökkviliðið?
Björgvin Sigurjóns-
son frá Patreksfirði:
„Höggið
ekki mikið
„Flugvélin byrjaði að bremsa á
miðjum vellinum þannig að maður
vissi að ekki var allt með felldu."
sagði Björgvin Sigurjónsson frá
Patreksfirði en hann beið eins og
aðrir eftir að geta haldið áfram ferð
sinni vestur eftir óhappið á Suður-
götu. „Það gafst ekki mikið ráðrúm
til að hugleiða málin á meðan á
/ f' •/
^ wm y
: j : I | > f - i i j :
Björgvm Siguijónsson: - Hvar endar
vélin?
þessu stóð. Reyndar skaust í gegn-
um huga manns: - Hvað er eiginlega
að gerast, hvar endar vélin? En svo
stöðvaðist hún allt í einu og allir
flýttu sér út. Sjálft höggið var ekki
mikið. Fólk kastaðist ekki einu
sinni til í sætunum," sagði Björgvin.
-EIR