Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Side 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS 1986.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlcgg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 19,5% og ársávöxtun 19,5%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
14% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 20%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 21,55% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 18%
nafnvöxtum og 18,8% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 19% nafnvöxtum og
19,9% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 15% nafnvöxtum og 15,6%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
18% nafnvöxtum og 18,8% ársávöxtun cða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1%
í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 12%, eftir 2 mánuði 13%, 3 mánuði 14%,
4 mánuði 15%, 5 mánuði 16%, og eftir b
mánuði 18%, eftir 12 mánuði 18,6% og eftir
18 mánuði 19%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vcxti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 18.8‘X,, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir úerðir í árslok. Sé
tekið útaf reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir. 12%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársíjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir spariíjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 16,42% eða eins og á verðtryggð-
um 6 mánaða reikningum með 2,b% nafn-
vöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast al-
mennir sparisjóðsvextir, \2,5%, og eins á alla
innstæðuna innan þess ársíjórðungs þegar
tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Inn-
legg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft
næsta heila ársfjórðung. Vextir færast fjórum
sinnum á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir
eru alltaf lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 16.5%, með
17,2% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Rcynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 12%. Vextir færastmisserislega.
Sparlskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
f>au eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. I5au eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. I’au
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12-16*%, umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-Ián, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
cinstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Iján til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 195 þúsund. 2-4 manna fjölskylda
fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars
mest 248 þúsund. 5 manna fjölskylda eða
stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa,
annars mest290 þúsund. Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól.
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir_vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggö og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yftr þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextimir.
Ff l(XK) krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 2,15% á mánuði eða 33%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
0.9167%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í mars 1986 er 1428 stig
en var 1396 í febrúar og 1364 stig í janúar.
Miðaðerviðgrunninn lOOíjúní 1979.
Bygg>ngarvis*tala á 1. ársfjórðungi 1986
er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699
stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) n -20.03. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUIV1 SJÁSfRLISTA ll it UHií ú li ii lisi
INNLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundin innstæða 13.0 13.0 12.5 12.0 13.0 12.0 12.0 12.0 12.5 12.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 14.0 14.5 14.0 13.0 13,5 14.0 13.0 14.5 14.0 13.0
6 mán.uppsögn 17.0 17.7 17,0 14.0 15,0 17.0 15,5 15,5 14.0
12 mán.uppsogn 18.5 19.4 18.5 15.0 18.0
SPARNAÐUR-LÁNSRfrrTURSparað3-5 mán. 17.0 17.0 13.5 14.0 12.0 14.5 14.0 13.0
Sp. 6 mán. ogm. 17.0 17.0 14.0 15.5 15.5 14.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanarcíkningar 11.0 11.0 4.0 5.0 5.0 4.0 5.0 5.0 4.0
Hlaupareikningar 5.0 4.0 4.0 5.0 5.0 4.0 5.0 5.0 4.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.5 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 3.0 2.5 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarlkjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.0 7.5 7.0 7,5 7,5
Sterlingspund 11.5 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5 11.5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.5 3.5 4.0 3.5 4.5 3.5 4.5 4.5
Danskar krónur 10.0 9.5 7.0 8.0 7.0 9.0 7.0 10.0 8.0
ÚTLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5
VIÐSKIPTAVlXLAR 2) (forvextir) kge 24.0 kge 24.0 kge kge kí« kge
ALMENN SKULDABRÉF 3) 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0 20,0 20.0 20.0 20.0
VIÐSKIPTASKULOABRÉF 2) kge 24.5 kge 24.5 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5 19.5
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULDARRÉF 3) Að 2 1/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAIVILEIÐSLU
SJÁNEÐANMÁLS1)
1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 19,25% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10,0%,
í Bandaríkjadollurum 9,5%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,0%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréftim er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stæretu
sparisjóðunum. 3)Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjöre vanskilalána er 2% á ári, bæði
á verðtrveeð oe óverðtrvgeð lán.
Skortur á hæfu fólki
í útflutningsverslun
Það sem stendur útflutningsmál-
um mest fyrir þrifum er skortur á
hæfu fólki til starfa í útflutnings-
verslun. Sérstaklega á þetta við um
fólk til að starfa að markaðs- og
sölumálum. Jafnframt vantar fólk
sem hefur góða innsýn í markaðs-
mál erlendis en þeir sem starfa við
markaðssetningu á erlendri grund
verða að geta aðlagað sig hugsana-
gangi annarra þjóða.
Frá Utflutningsmiðstöð iðnaðar-
ins berast þær fréttir að um þessar
mundir sé unnið að ýmsum nýmæl-
um til þess að bæta úr þessum
skorti. Unnið er að því að kynna
markaðs-og sölumál fyrir námsfólki
sem stundar nám á viðskiptasviði í
framhaldsskólum landsins og unnið
að því að koma á eftirmenntun í
markaðs- og sölumálum.
Einnig er í undirbúningi að gefa
markaðsfólki í ýmsum fyrirtækjum
kost á starfsþjálfun erlendis til
skemmri tíma. Markmiðið er að
fólki, sem starfar að markaðsmálum
í atvinnufyrirtækjum, verði gefmn
kostur á að dvelja í stuttan tíma
við athuganir á erlendum mörkuð-
um. Utflutningsmiðstöðin og Félag
íslenskra stórkaupmanna hafa
ákveðið að taka upp samstarf um
þessa tilraun og mun utanríkis-
ráðuneytið annast fyrirgreiðslu í
þessu sambandi.
-KB
Hótel Saga kynnir
starfsemina erlendis
Hótel Saga hóf nýlega mikla kynn-
ingarherferð innanlands og utan í
tilefni af því að í vor verða fyrstu
áfangar i nýrri álmu hótelsins teknir
í notkun.
Kynrúngarherferð hótelsins felst
meðal annars í útgáfu vandaðs bækl-
ings sem gefinn hefur verið út á ensku
og dreift víða um heim. Þá hefur
Hótel Saga hafið útgáfu á fréttabréfi
á ensku og íslensku sem ætlað er að
komi út reglulega framvegis. Frétta-
bréfið heitir „Sögu-fréttir“ og „Saga-
News“ á ensku og flytur tíðindi af
starfsemi hótelsins, nýjungum sem
gestum standa til boða ásamt almenn-
um fréttum af ýmsu tagi sém áhuga-
vert kann að þykja í höfuðborginni
hverju sinni fyrir gesti.
„Við dreifðum þessu enska frétta-
bréfi á ferðaskrifstofur í Bandaríkj-
unum og Evrópu í 2 þúsund eintökum.
Við erum að reyna að ná til nýrra
aðila og þeirra sem hafa verið í við-
skiptum við ísland. Við höfum fengið
margar fyrirspurnir síðan við dreifð-
um þessu, bæði varðandi ráðstefnuað-
stöðuna, varðandi verð o.fl. Sá mark-
aður sem við stefnum á eru ráðstefnu-
gestir og einnig stefnum við að því
að auka hlutdeild okkar á hinum
almenna ferðamannamarkaði. Nú
erum við langt komin með að fylla
þau herbergi sem við vorum með og
þessi 56 sem bætast við í vor. Einnig
erum við komnir með margar ráð-
stefnur," sagði Jónas Hvannberg,
aðstoðarhótelstjórí á Hótel Sögu.
-KB
PubtiÚHMt U> IJofct Keykjavíkja'taml. _____________________N«». 1 Vot. 1 - Jatwaf.v !98ft|
VVhuu thf
*tm dotríify l fotci Saga's
fcapadtv, Tín* evpanston
(irogtntmnif'v <w»n aíw-, |uivi>
toien providittg
rooms md crcattng a jjoodi
amkwwv Itofd wjfh »11 th«
!alf<4 facititíi-s.
First-class service for the businessman - p. 8
Quality cuisine and breathtaking view - pp. 4&5
„Saga-News“ sem Hótel Saga gefur út í 2 þúsund eintökum og dreift
er á ferðaskrifstofur í Bandaríkjunum og Evrópu.
Fengu styrki Verslunarráðs
Námssjóður Verslunarráðs íslands,
sem styrkir efnilega nemendur til
framhaldsnáms annað hvert ár, veitti
að þessu sinni Hallgrími Ingólfssyni
og Þuríði Helgu Benediktsdóttur 75
þúsund króna styrk hvoru um sig.
Þrjátíu og átta umsóknir bárust og
vegna miklis fjölda umsókna hefur
verið ákveðið að veita þessa styrki á
hverju ári.
Þuríður Helga er fædd 1961. Hún
lauk námi í viðskiptafræðum við
Háskóla íslands 1985 og stundar nú
nám á sviði kerfisgerðar við Verslun-
arháskólann í Kaupmannahöfn.
Hallgrímur er fæddur 1960, lauk
Þuríður Helga Benediktsdóttir og Hallgrímur Ingólfsson.
viðskiptafræðinni hér 1984 og stundar
nú nám í rekstrarhagfræði við há-
skóla í Arizona í Bandaríkjunum.
-KB
Sparisjóður
vélstjóra:
Ný
sparibók
Hjá Sparisjóði vélstjóra býðst
nú ný sparibók með 20% nafn-
vöxtum og jafnhárri ársávöxt-
un. Hver innborgun er bundin í
12 mánuði, er síðan laus í mánuð
en bundin aftur næstu 11 mán-
uði. Ef kjör á sex mánaða verð-
tryggðum reikningum reynast
betri gilda þau.
Vextir á bókinni eru færðir
síðasta dag hvers árs og verða
um leið lausir til útborgunar.
Eins og aðrir sparisjóðir býður
Sparisjóður vélstjóra einnig
svokallaðan trompreikning sem
einnig er innlánsreikningur með
sérkjörum.
HERB