Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd 0164 / NORSKA HERNUM Björg Eva Erlendsdóttir, fréttarit- ari DV í Osló: Slysið í Vassdalnum í Norður- Noregi þar sem 16 ungir hermenn létu lífið í snjóflóði hefur dregið dilk á eftir sér. Yfirmenn í norska hernum hafa hlotið harða gagnrýni fyrir óábyrga stjórnun og jafnvel mis- beitingu valds. Það hefur hvergi komið fram hver ber ábyrgð á því að hafa skipað herdeildinni að fara inn í dalinn þar sem snjóflóðið féll. Strax eftir slysið var skipuð nefnd til að rannsaka tildrög' þess. For- maður þeirrar nefndar og meiri- hluti nefndarmanna voru yfirmenn úr norska hernum. Það þótti ósæmilegt að herinn rannsakaði sjálfur sitt eigið mál í tilfelli eins og þessu þar sem spurn- ingin er hver ber ábyrgð á því að 16 manns létu lífið. Þess vegna var skipuð að nýju borgaraleg nefnd er sér um rann- sóknina. Niðurstöður munu liggja fyrir íljótlega eftir páska. Eftir slysið hefur verið mikil ólga í norska hernum. Ummæli ýmissa yfirmanna í hernum stangast á við mikilvæg atriðið. Hermenn hafa neitað að hlýðnast skipunum, fyrirmæli hafa verið dregin til baka og blaðamenn fylgja hermönnuum í Norður- Noregi við hvert fótmál. Þetta ástand rýrir álit almenn- ings á norska hernum og verst af öllu er að eftir slysið hafa herdeild- ir á ný verið sendar til æfinga inn áhættusvæðið. í gær var hóp hermanna skipað að setja upp búðir á slysstaðnum til þess að standa vörð yfir vopnum og öðru er látnu hermennirnir höfðu látið eftir sig. Margir hermenn neituðu að hlýðnast skipuninni og var þá sent eftir yfirmanni er hótaði þeim allt að sex ára fangelsi fyrir að óhlýðn- astskipunum. Þeir gáfu sig ekki og blaðamaður dulbúinn sem hermaður komst i málið. Þá var skipunin dregin til baka og yfirmennirnir tilkynntu að allt þetta mál væri á misskiln- ingi byggt. Varnarmálaráðherran, Anders C. Sjaastad, segir að engan megi ásaka fyrir slysið. Sú yfirlýsing þykir allt að því ósvífin á þessu stigi málsins áður en niðurstöður rannsóknarnefnd- arinnar liggja fyrir. Fólk vill vita hverjir beri ábyrgð- ina til þess að forðast að neitt slíkt geti endurtekið sig. Ofursti í hernum, Arne Pran, kom fram á blaðamannafundi í fyrradag og tók á sig alla ábyrgð sem einn af æðstu yfirmönnum deildarinnar. Þetta þótti hetjuskapur og drengi- legri framkoma en hjá varnarmála- stjóranum Fredrik-Bull Hansen og ráðherranum Anders C. Saastad, er báðir vilja hrinda frá sér allri ábyrgð. Yfirlýsing Pran hjálpar lítið því allir vita að það var ekki hann er gaf út skipunina um að senda her- deildina inn í Vassdal. Vinsælli sjónvarps- stöð í Kaup- mannahöfn lokað Hin vinsæla sjónvarpsstöð Kaupmannahafnarbúa Week- end-Tv hefur ákveðið að hætta starfsemi sinni. Var ákvörðunin tekin af stjórn stöðvarinnar og samþykkt af starfsmönnum. Þó kostað hafi um eina milljón dan- skra króna á viku að reka Week- end-Tv er ástæðan fyrir lokuninn ekki fjármagnsskortur. Stöðinni er lokað til að undirstrika óviðun- andi ástand þessara mála sem stafar af því að enn hefur ekki náðst samkomulag meðal ráða- manna um áframhald á starfsemi landshlutastöðva og hvort heim- ild verði gefin til að afla tekna með auglýsingum. Reynslutíma landshlutastöðva lýkur 31. mars næstkomandi. Ef ekki koma fram skýrar línur um tekjuöflun með auglýsingum fyrir þann tíma, verður Weekend-Tv að segjaupp öllu starfsliði sínu. Slag- urinn um hvort leyfa eigi auglýs- ingar í sjónvarpi hefur staðið lengi og strandar málið á jafnað- armönnum en ekki þykir vænlegt að útiloka þá frá samkomulagi um þessi mál þó naumur meirihluti fyrir auglýsingum náist án þeirra. Mörgum þykir eftirsjá að Week- end-Tv og til merkis um vinsældir stöðvarinnar mé nefna að hún hefur slegið danska ríkissjón- varpið út á fóstudagskvöldum hvað varðar áhorfendafjölda í Kaupmannahöfn. Sjónvarpsstöðin Canal-2, sem einnig sendir út í Kaupmanna- höfn, lenti í fjárhagserfiðleikum í haust en var hjálpað af sænska stórfyrirtækinu Eselte sem sér stöðinni fyrir íjármagni og mynd- um. Annars er rekstur þeirrar stöðvar fjármagnaður með sölu svokallaðs merkjastillis sem áhorfendur verða að ráða yfir til að fá ótruflaða mynd á skerminn. Ýmsir telja norska herinn hafa orðið fyrir töluverðum álitshnekki vegna þess hvernig yfirmenn hans brugðust við harmleiknum í Vassdal fyrir rúmri viku. Hér sjást björgunarmenn á slysstað í Norður-Noregi er leit stóð sem hæst. f f REYFARAKAUP" Við fengum takmarkað magn af Toshiba örbylgjuofn- um með verulegum afslætti. ER 5400 Mál: br. 50 x d. 33 x h. 32. Nú getum við boðið þér ER 5300 Toshiba örbylgjuofn inn á hreint ótrúlegu verði! LANDSÞEKKTÞJÓNUSTA Islenskar leiðbeiningar fylgja ásamt uppskriftum. Matreiðslubók. Matreiöslukvöldnámskeið án endurgjalds. Toshiba-uppskriftaklúbburinn stendur þér opinn með spennandi uppskriftum. Gerð ER 5300. Ofn fyrir litil heimili og kaffistofur. Timastilling, afþýðing. Verð áður krrt4r?00^ Tilboðsverð til þin kr. 12.900.- e: Láttu ekki þetta tilboð renna þér úr greipum. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995 Greiðslukjör: útborgun 5.000,- eftirstöðvar á 6 mánuðum. AUKIÐFYLGI WALDHEIMS Kurt Waldheim, sem er í framboði til forseta í Austurríki, hefur aukist fylgi eftir að ásakanir á hendur honum um tengsl við nasista á stríðs- árunum urðu opinberar. í skoðannakönnun, sem birt var um helgina, kemur fram að fylgi Waldheims, sem íhaldsmenn styðja, hefur aukist úr þrjátíu og átta pró- sentum í fjörutíu og tvö frá því ásak- anir um vafasama fortíð komu fyrst fram. Aðalmótframbjóðandi Wald- heims, sósíalistinn Kurt Steyrer, fengi þijátíu og fjögur prósent sam- kvæmt skoðanakönnuninni. Ritari íhaldsflokksins, Michael Graff, hefur ásakað sósíalista fyrir að standa að baki ásökununum í garð Waldheims, en sagði jafnframt að úrslit skoðanakönnunarinnar sýndu að vopnin hefðu snúist í hönd- um andstæðinga hans. Áttatíu og sjö prósent aðspurðra sögðu í skoðanakönnuninni að þeir teldu ásakanirnar fram komnar til þess að skaða möguleika Waldheims í forsetakosningunum. Talsmenn sósíalista hafa harðneit- að því að eiga nokkum þátt í þessu máli. „Engin lítur á Waldheim sem stríðsglæpamann,“ sagði ritari flokksins, Peter Schieder, en bætti við að engu að síður væri ýmsum 8pumingum ósvarað varðandi fortíð Waldheims. Waldheim kom fram í sjónvarpi um helgina í áttatíu minútna viðtals- Kurt Waldheim, fyrrum aðalrit- ari Sameinuðu þjóðanna og nú frambjóðandi í forsetakosningum í Austurríki. þætti þar sem hann var ítarlega spurður úti fortíð sína. Sagðist Wald- heim vera orðinn þreyttur á þessum ofsóknum á hendur sér. Hann hefði þjónað landi sínu af trúmennsku í fjörutíu ár og engin fótur væri fyrir ásökunum um að hann hefði verið nasisti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.