Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Page 14
14
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986.
Spurningin
Hvernig líst þér á Eurovi
sion-lögin?
Sigríður Gylfadóttir nemi: Illa, en
ætli fyrsta lagið, þetta sem Pálmi
söng, sé ekki best, samt ekkert mjög
gott. Jú, svo var lagið Út vil ek líka
svolítið gott, svona skondið.
Þórhalla Guðbjartsdóttir nemi: Mér
þykja þau ekki nógu góð, ég hugsa
að ekkert þeirra sé nógu gott tii að
vinna Eurovision. Ég heyrði að vísu
ekki fyrstu tvö, en af hinum finnst
mér Útvil ekbest.
Eiríkur Ólafsson verkamaður: Bara
vel, og sérstaklega það sem Pálmi
söng í fyrsta þættinum, Gleðibank-
inn, ég held að það eigi möguleika á
að vinna Eurovision-keppnina. Og
ég vil að Pálmi syngi það í Noregi.
Þóra Steindórsdóttir: Eitt er gott,
fyrsta lagið. Það er eina lagið sem á
möguleika á að vinna. Og Pálmi á
að syngja það, hann er bestur.
Jón Jóhannsson póstafgreiðslumað-
ur: Ekkert spes, alltof róleg. Mér
fannst ekkert bera af, en ætli það sé
þá ekki helst Gleðibankinn, það er
skást.
Kjartan Flosason póstafgreiðslu-
maður: Bara vel, þetta númer tvö,
rólega lagið sem Björgvin syngur er
það besta af þessum sex sem komin
eru, en ég vona að það komi betri lög.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Svikin um verð-
lækkun á bensíni
Bifreiðaeigandi skrifar:
Það gat varla farið hjá því að ekki
yrði um einhverjar brigður að ræða
í sambandi við lækkun á bensínverð-
inu. Svo mikið var búið að guma af
því að við íslendingar myndum njóta
þess lága innkaupsverðs sem nú er á
þessari vöru.
Þannig var það fullyrt í flestum
fjölmiðlum ekki alls fyrir löngu, einn-
ig í Ríkisútvarpinu, að um miðjan
mars yrði verðið á bensíni lækkað í
kr. 29.00 á lítra.
Síðan skeður það nú í dag, fimmtu-
daginn 6. mars, að tilkynnt er um
lækkun þessa verðháa vökva um
aðeins tvær krónur á lítra, þ.e. verðið
fer úr 34 kr. í 32.00! Það var nú öll
lækkunin.
I fréttinni segir að vísu að „gera
megi ráð fyrir“ frekari lækkunum og
þá aðallega á svartolíu og gasolíu.
Einnig að innan fárra daga - segir
ekki heldur hvenær - muni flutninga-
skip verða fermt í Sovétríkjunum og
verði farmurinn verðlagður miðað við
það verð sem þá muni gilda á Rotterd-
ammarkaði.
Auðvitað eru íslensk stjómvöld að
bíða eftir því að það verð hækki svo
að ekki þurfi að lækka bensínverð
meira en um þessar tvær krónur.
Það hefur sennilega aldrei verið
ætlunin að lækka bensínverðið nema
í 34 kr. eins og gert var fyrst, fyrir
siðasakir.
Þessi tilkynning nú um lækkun,
allt í einu, um tvær krónur er líklega
gerð til að róa fólk í bili, ekki síst
með tilliti til hækkunar tryggingar-
gjalda á bifreiðum.
Að verðið á bensíni hér fari niður
fyrir 30 kr. á lítra er bamaleg bjait-
sýni. Þetta nýja „bragð" ríkisvalds-
ins, sem beitir fyrir sig Verðlagsráði,
er alveg í samræmi við það sem á
undan er gengið þegar verð á bensíni
er annars vegar.
Það er talað um að „væntanlega
skili sér enn frekar til okkar lækkun
á heimsmarkaðsverði" og fleira í
þessum dúr. Ekki heyrist mikið frá
FÍB þótt verðlækkun á bensíni hafi
komið til framkvæmda í öllum lönd-
um öðrum en íslandi fyrir mörgum
mánuðum.
í Þýskalandi kostar lítrinn í dag
innan við 17 kr. og er þó Þýskaland
ekki ódýrasta landið í Evrópu að því
er snertir neysluvörur.
En það er nauðsynlegt fyrir al-
menning að fylgjast nú vel með hvort
lækkunin í 29 kr. verður að veruleika
um miðjan mars eins og áður hafði
verið gefin út tilkynning um. - Mín
spá er sú að frekar verði bensínverð
ekki lækkað á íslandi. Það verða
ýmsar afsakanir fundnar fyrir því. -
Við sjáum hvað setur!
Gúmmípóli-
tíkusar
Siggi rugludallur skrifar:
Ekki veit ég hvað rugludallur eins
og ég er að skrifa í blöð, en ég asnast
samt til þess. Ég er ekki allskostar
ánægður með þetta þjóðfélag, fjár-
málaspilling og óstjóm síðustu 10 til
15 ára telja flestir sem vit hafa á að
sé orsök þess að ísland er í dag
Singapore norðursins. En hvað er
hægt að gera? Mín tillaga, rugludalls-
ins, er sú að láta ráðherra og al-
þingismenn sverja guði og þjóð holl-
ustu- og hreinlyndiseið eftir næstu
alþingiskosningar eins og t.d. Banda-
ríkjaforsetar verða að gera. Burt með
alla gúmmípólitíkusa og eiginhags-
munaseggi úr ráðherrastólum. Þeir
geta hæglega sett þjóðfélagið á haus-
inn.
„Skrattinn heldur
fastumsitt.u
Lúðvík Eggertsson skrifar:
Mjög margir urðu hissa og trúðu
vart sínum eigin augum og eyrum
þegar Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri boðaði lækkun útlánsvaxta.
Innlánsvextir eiga að heita frjálsir.
Forvextir af víxlum og skuldabréfa-
vextir skyldu lækka úr 32% í 19%.
Ef marka má auglýsingu Landsbank-
ans í Morgunblaðinu 1. mars lækk-
uðu vextir af þessum víxlum og
skuldabréfalánum, sem á annað borð
fáanleg eru, aðeins ofan í 24%. Sjálfur
reyndi svo Jóhannes að lauma inn
hækkun vaxta af verðtryggðum lán-
um um 1% en fékk ekki leyfi ríkis-
stjómar. Gemingahríð vaxtaauglýs-
inga hjá bönkum og sparisjóðum
heldur áfram af fúllum krafti í sjón-
varpinu.
Ríkisstjómin lét ekki sitt eftir liggja
því að um leið og kjarasamningar
höfðu verið undirritaðir var tilkynnt
um 5°/. bækkun á landbúnaðarafurð-
um - að undanskildu smjöri auðvitað,
því að fólk borðar ekki smjör. Þess
vegna höfum við smjörfjall. Fólk
borðar margarín eða ekki feitmeti,
eins og læknar ráðleggja.
Þessi línudans er að verða harla
skoplegur. Albert útbjó fjárlög sem
þóttu of há. Þá kom Stykkishólms-
fundur, stólaskipti í ráðuneytunum
og lægri fjárlög hjá Þorsteini. Síðan
eru ráðherrastólamir í reynd fluttir
upp í Garðastræti og í þá setjast for-
menn vinnuveitenda og verkalýðs.
Ný fjárlög eru gerð, hærri en fjárlög
Alberts og verðbólga sögð lækka við
það ofan í 8%. Trúi því hver sem trúa
vill. Talað var um „rauð strik“ sem
ekki mátti fara yfir en síðan fallið frá
öllum fyrirvörum. Vextir em frjálsir,
verðlag frjálst, kaupið bundið. Ás-
mundur, Þröstur og Guðmundur J.
em komnir í forustusveit frjáls-
hyggjumanna á íslandi og hættir að
kauna Þióðviliann.
.Sýningin, sem stúlkan tekur þátt í, er sárasaklaus og telst engan veginn til
kláms.
Klám íVersló
Gamall Verslingur skrifar:
Mig langar að leggja orð í belg
vegna brottreksturs stúlkunnar frá
skrifstofu í Verslunarskólanum. At-
vinnurekendum og yfirmönnum kem-
ur alls ekkert við hvað starfsfólk
þeirra aðhefst í frístundum. Nú er
yfirvinna og launin svo léleg að fólk
verður að vera frjálst til að reyna
eitthvað að bjarga sér. Sýningin, sem
stúlkan tekur þátt í, er sárasaklaus
as telst enean veginn til kláms. Ef
skólastjóri Vl telur þetta klám þá tel
ég það alveg eins vera klám þegar
birtast myndir í Verslunarskólablað-
inu af bem kvenfólki úr stúdentahópi
Ví liggjandi á sólarströndum. Einnig
vil ég benda á að innflutningur á
erlendum klámritum er miklu alvar-
legra mál. Vænta má að einhverjir
gEunlir Verslingar sjái um þann inn-
flutning. Fyrst skólastjóri VÍ gerist
siðapostuli ætti hann að reyna að
banna innflutning þessara rita og
ritskoða Verslunarskólablaðið.