Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Page 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986.
15
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Jóna hefði ekki haft neitt á móti því að fylgjast með íslenska landsliðinu í Sviss.
Ef ég væri rík
Jóna hringdi:
Eins og komið hefur fram eru nær
allir þingmenn vorir að spandera í
útlöndum um þessar mundir. Hvað
þeir eru að gera er ekki gott að segja,
nema hvað Steingrímur og Matthías
fóru náttúrlega að horfa á leikinn við
Svía. Ég hefði ekki haft neitt á móti
því að fara með þeim en því miður
hefði ég hvorki getað fengið mig lausa
úr vinnunni, né fjármagnað slíka ferð.
En sumir þurfa aldrei að hugsa um
þessar hliðar, bara gera það sem þá
langar til hverju sinni. Ég get ekki
neitað því að ég dauðöfunda þá félaga
Steingrím og Matthías, ekki bara
fyrir að hafa farið til Sviss, heldur
og fyrir að geta yfirleitt farið hvert
sem er í heiminum. Og þurfa aldrei
að borga neitt, þetta er eins og að
vera milljónamæringur.
Sóknarfélagar - Sóknarfélagar
Félagsfundur í nýja Sóknarhúsinu, Skipholti 50a,
fimmtudaginn 13. mars kl. 20.30.
Fundarefni:
Nýir kjarasamningar,
önnur mál.
Sýnið skírteini.
Stjórnin.
BÍLEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
Framleiðum trefjaplastbretti á eftirtaldar bifreiðar: Lada
1600, 1500, 1200 og Lada Sport, Subaru '77, '79, Mazda
323 '77, '80, Mazda 929 '76-'78, Mazda pickup '77-'82,
Daihatsu Charmant '78, '79. Brettaútvíkkanir á Lödu Sport.
BÍLPLAST .
Vagnhöfða 19, sími 688233. Tökum að okkurtrefjaplastvinnu.
Dnotonnrlum I Vp.lÍÍft l'slfínskt.
Styðjum strákana
DV tekur á móti áheitum og peninga-
gjöfum til HSÍ vegna handknattleiks-
landsliðsins á smáauglýsingadeild DV,
Þverholti 11.
Opið alla virka daga kl. 9.00-22.00,
laugardaga kl. 9.00-14.00,
sunnudaga kl. 18.00-22.00.
Styrkirtil háskólanáms
í Tyrklandi
Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í
löndum, sem aðild eiga að Evrópuráðinu, fjóra styrki
til háskólanáms í Tyrklandi skólaárið 1986-87. Ekki
er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni
koma í hlut íslendinga. Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir
til framhaldsnáms við háskóla. Umsækjendur skulu
hafa gott vald á tyrknesku, frönsku eða ensku. Sendi-
ráð Tyrklands í Ósló (Haldan Svartes gate 5, Osló
2, Norge) lætur í té umsóknareyðublöð og nánari
upplýsingar, en umsóknir þurfa að berast tyrkneskum
stjórnvöldum fyrir 31. maí nk.
10. mars 1986.
Menntamálaráðuneytið.
Stórfelldir reið-
Styrkirtil háskólanáms
í Frakklandi
Frönsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa
Islendingum til háskólanáms í Frakklandi á skólaárinu
1986-87. Um er að ræða eftirtaldar námsgreinar:
Bókmenntir, málvísindi, húsagerðarlist, stærðfræði og
raunvísindi. Umsóknum, ásamt staðfestum afritum af
prófskírteinum og meðmælum, skal skila til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir
7. april nk. - Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Þá bjóða frönsk stjórnvöld fram í löndum, sem aðild
eiga að Evrópuráðinu, tíu styrki til háskólanáms í
Frakklandi næsta vetur. Eru þeir styrkir einkum ætlaðir
til framhaldsnáms eða rannsóknastarfa að loknu há-
skólaprófi, í félagsvísindum, líffræðigreinum, lögfræði
og hagfræði. Næg frönskukunnátta er áskilin. Varð-
andi umsóknareyðublöð vísast til franska sendiráðsins,
Túngötu 22,101 Reykjavík.
10. mars1986.
Menntamálaráðuneytið.
„Drengur og hjól eru oft sem eitt."
hjólaþjófnaðir
Öskureið móðir skrifar:
Mig langar til að vekja athygli á
máli sem allir virðast loka augunum
fyrir og enginn vill taka að sér. Hér
í borg eru stundaðir stórfelldir reið-
hjólaþjófnaðir og virðast heilu gengin
hafa þetta fyrir atvinnu.
Ég las í DV 28.2. bréf frá móður 15
ára drengs sem skcllinöðru hafði
verið stolið frá. Ég er sjálf einstæð '
móðir og á 10 ára dreng. Hans líf og
yndi er að hjóla og fékk hann nýtt,
blátt DBS-reiðhjól í vetur. Aðfaranótt
mánudagsins 17. febrúar var því stolið
fyrir utan heimili okkar í Þingholtun-
um og hefur ekki sést síðan. Þetta er
þriðja hjólið sem cr stolið frá okkur
og ég veit að við erum ekkert eins-
dæmi. Fyrir utan íjárhagslegt tjón
(engin heimilistrygging) þá eru oft
drengur og hjól sem eitt og því er
þetta tilfinningalegt tjón fyrir börnin
og bitnar á saklausu fólki.
Mig langar til að beina orðum
mínum til foreldra, bæði þeirra barna
sem verða fyrir þessu tjóni og hinna
sem eru í þessum bransa. Foreldrar!
Hvar eru börnin ykkar? Er ykkur
alveg sama þótt hörnin ykkar missi
hjólin sín? Jafnvel þótt þið fáið þau
borguð úr tryggingunum. Og er ykkur
sama þótt börnin ykkar séu úti í bæ
að ræna hjólum og ferðist um á stoln-
um hjólum? Hvar eruð þið, foreldrar?
Vitið þið hvar börnin ykkar eru og
hvað þau eru að gera?
Þau sem eru í þeim hópnum sem
stelur eru unglingar, 13-16 óra. Ósak-
hæfir unglingar og fyrir utan það, þá
gerir lögreglan frekar iitið annað í
málinu en að taka skýrslur sem
hi'annast svo upp í bunkum og ekkert
er gert. Foreldrar! Hvað getum við
gert? Mér þætti vænt um ef einhverjir
fleiri létu frá sér heyra því þetta er
bara byrjunin hjá þessum unglingum.
Næst verða það skellinöðrur, bílar,
eiturlyf, innbrot ....